Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 04.11.1965, Qupperneq 16

Vikan - 04.11.1965, Qupperneq 16
■O í þróunarlöndunum cr konan víðast álitin óæðri vera. í löndum, sem játa múhameSstrú er henni skylda að bera blæju svo aðcins augun sjást. Persónu- frelsi og einstaklingshæfileikar hennar er hvort tveggja fótum troðið. Myndin sýnir fulikomnasta veiðiútbúnað fiskimann- anna umhverfis vatnið Ala- otra, sem er stærsta stöðu- vatn Madagaskar — ein- búans í Indlandshafi. Þarna eru um 1500 fiskimenn og þeim tekst að landa um 4000 tonnum af fiski yfir órið — fjögurþúsund tonnum. Samtals framfleyta þeir um 10 þús- und manns. En á Madagaskar er skortur. Eink- um skortir fólk í þurrari héruðum landsins protein, og protein er í fiski. Fiski sem þeir við Alaotra veiða ó bómullarfæri eða í bómull- arnet, sem grotna niður í höndunum ó þeim og jafnvel hraðar en bót- arnir þeirra, eintrjáningar holaðir úr meyrum viði, eyðileggjast. Það er til að færa þessum mönn- um sómasamlegar fleytur og sterk veiðarfæri, sem framlag þitt, les- andi góður, rennur. Sá hlutur, sem þú leggur fram í herferð gegn hungri, stuðlar að því að fiskimenn- irnir við Alaotra geti sótt gull i greipar vatnsins og aflað fæðu handa íbúum eyjarinnar í Indlands- hafi, eyjarinnar, sem varð lýðveldi 14 árum á eftir eyjunni í Norður- höfum, einbúanum í Atlantshafi — ekki í þúsundum tonna á ári, held- ur hundruðum þúsunda. Því nógur er fiskurinn. Það þarf aðeins að sækja hann. -O Skynsamleg vélvæðing landbúnaSar- ins er eitt þeirra vandamála, sem þróun- arlöndin hafa við að stríða. Þau þurfa einnig tilsögn í meðferð búpenings, það þarf að kenna þeim hreinlæti og að berj- ast við dýrasjúkdóma. -O í ótrúlega miklum hluta heims byggist akuryrkja enn í dag á þessum tækjum: Tréplógi aftan í nautum. í Hong Kong eru um 3000 íbúar á fcrkílómeter. Kúliinn i) hefur ekki mikið rúm fyrir sig og fjölskyldu sína — og tekjur hans svara tuttugu eða þrjátíu krónum íslenzkum á dag. Hér byggjum við hallir með fjórum svefnherbergjum og 70 fermetra stofum. Ótrúlega stór hluti mannkynsins á hvergi skýli yfir höfuðið, heldur lætur fyrirberast undir veggjum og börðum, tötrum klætt og étur aðeins illt og lítið. Jg VIKAN 44. tbl. r i

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.