Vikan

Útgáva

Vikan - 04.11.1965, Síða 29

Vikan - 04.11.1965, Síða 29
Jane Harlow Framhald af bls. 15. gegnum varnarmúrinn, sem var um skrifstofu Redmans. Það var auð- veldara að fá viðtal við forseta Bandaríkjanna en Redman, nema þegar um peninga var að ræða. Landau sagði honum allt um Jean, framtíðarmöguleika hennar og kaupkröfu. — Sextíu þúsund dollara! öskr- aði Redman — Herra Landau, fyrir sextíu þúsund dollara get ég keypt allar dansmeyjarnar í Roxyleikhús- inu. Já, ég gæti kannske keypt leik- húsið líka fyrir það verð. — Það er ekki ég sem ákvað þetta kaup. Það hefir Manley gert. — Hafið þér séð kvikmyndirnar hennar? — Eg hefi séð hana sjálfa, — á leiksviði I New York. Landau eygði þarna möguleika. t — Jæja, svo þér höfðuð það mik- inn áhuga? — Ég fylgist mjög vel með öllu sem skeður í þessari grein. Þess- vegna veit ég nákvæmlega hvað ég á að gera, — og hvað ég á að varast. Landau fór að missa öryggis- kenndina. — Hún gerði lukku, sagði hann hógværlega. Redman hallaði sér aftur á bak í stóinum. — Við getum sett þetta dæmi upp á sem einfaldastan hátt, herra Landau. Við framleiðum kvikmynd- ir til að gleðja milljónir manna, ekki eingöngu í Ameríku, heldur um allan heim. Við getum ekki einskorðað okkur við þá sem vilja sjá stúlku í þröngum kjól, og sem segir ruddalega brandara. — Þeir voru ekki svo ruddalegir, maldaði Landau í móinn. — Það var ekki langt frá því, hélt Redman áfram. — Við fram- leiðum f jölskyldumyndir, söngva- myndir, grínmyndir, sögulegar myndir, ævintýramyndir . . . Hann benti á röð af verðlaunum fyrir kvikmyndir, sem stóðu á arinhill- unni. — Lítið á þetta! Engin þess- ara verðlauna hafa verið veitt stúlku fyrir það eitt að sýna sig opinberlega í nærfötum einum . . . Landau var hálf utan við sig, en beið þegjandi eftir því að vita hvað Redman gerði næst. Kvikmynda- kóngurinn þrýsti á hnapp á skrif- borðinu. — Sendið Bonnie Doon og Pau! Bern inn til mín, sagði hann. Svo sneri hann sér að Landau. — Tímarnir breytazt, herra Landau, og að vissu marki verðum við að fylgj- ast með. Fröken Doon hlustar á æðaslög fólksins fyrir mig. Herra Bern er menntaður maður, með góða dómgreind, en hann hefir líka nef fyrir „show-business" . . . Rennihurð opnaðist og fröken Doon kom inn. Hún var falleg, ung stúlka, mjög smekklega klædd, ró- leg og ákveðin [ fasi. — Fröken Doon, sagði Redman. — Hvað lesa Ameríkanar í dag? Fröken Doon hikaði ekki. — Saka- málasögur, hlaðnar spennu og „sex". Stríðsreyfara um ofbeldi og „sex". Ævisögur, um sálfræði og „sex" . . . — Og hverskonar sjónleiki vill fólk horfa á? — Létt grínleikrit og söngleiki með „sex". — Haldið þér að „sex" eigi sér framtíð í kvikmyndum? — Það hefir alltaf verið þar, það er bara reynt að klóra yfir það, svaraði hún. UNGFRU YNDISFRIÐ býðbtí yður hið laudsþekkta konfekt frá N Ó A. HVAR E R ÖRKIN HANS NOA? I>að cr alltaf sami lclknrinn l henni Vni- ísfríð olckar. Hi'in hefur falið örkina hans Néa cinhvers staðar i blaðinu og heitir aSSnm verðlaunum'hanaa þeim, scm getur fundið örkina. Vcrðlauuin oru stðt kon- fcktkassi, fullur af hczta konfckti, og framlciðandinn er auðvitað Stcigœtisgerð- in N6i. HelmiU Örkin er & bls. < Slðast Cr drcgið var hiaut verðlaunln: Guðbjörn Björgúlfsson, Hóteigsveg 1, Reykjavík. Vinninganna má vitja í skrifstofu Vikunnar. 44. tbi. VIKAN 44. tbl. 29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.