Vikan - 04.11.1965, Side 32
Nútíma kona notar
Yardley fegrunarvörur
Yardley fegrunarvörur eru fram-
leiddar fyrir yður samkvæmt
nýjustu tækni og vísindum, eftir
margra óra rannsóknir og til-
raunir í rannsóknarstofum Yardl-
ey í London og New York.
Yardley veit að þess er vænst
af yður, sem nútíma konu, að
þér lítið sem bezt út, ón tillits
til hvar þér eruð eða hvernig
yður líður.
Þess vegna býður Yardley yður
aðeins hin réttu andlitsvötn og
krem, hvernig svo sem húð yðar
er og Yardley tízkulitirnir í
vatalitum, augnskuggum og
make up, sem fara yður bezt.
BIÐJIÐ UM YARDLEY í NÝJUSTU
PAKKNINGUNUM.
Innflytjandi GLÓBUS h.f.
tl
*
’nupnar
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Jlrútsmerkið (21. marz — 20. aprí)):
Það verður fremur rómantískt andrúmsloft sem
ræður í einkalífinu þessa vikuna og á það eins við
um þá sem eru harðgiftir og þá sem ólofaðir eru.
Nokkrar líkur eru á þvi að þú hafnir smávegis
fjárhagslegum ábata.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. mai):
Nokkrar óveðursblikur eru á lofti. Þú ættir að
forðast allar rökræður og stælur, þótt þér finnist
hallað á rétt þinn. Notaðu eitthvert kvöldið til
kunningjaheimsóknar, hað hressir þig upp.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú hefur í huga nokkrar breytingar á högum þín-
um, en að svo komnu máli ættirðu að hika svo-
lítið og litast betur um. Þú færð gott tilboð í hlut
sem þú átt. Þú leitar ráða hjá vini þínum.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí);
Þú færð góða aðstoð fiá ungum meðlimum innan
fjölskyldu þinnar, en það mun einnig verða ákveð-
inn aðili sem tefur mikið fyrir þér. Kannaðu mögu-
leikana á því að fara í ferðalag yfir helgina.
eLjónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Þú eyðir miklum tíma í að hjálpa öðrum og upp-
skerð laun sem þú ert í aðra rönd ánægður með,
en verður fremur lítið úr. Mál sem þú hélzt að
væri út af dagskrá tekur á sig nýja mynd og get-
ur orðið mikil harka úr öllu saman.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú verður eitthvað upp á kant við tilveruna og
sérstaklega munu vinnufélagar þínir fara í taug-
arnar á þér. Þú verður að taka að þér margbrot-
ið og vanþakklátt verkefni vegna forfalla ein-
hvers.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þér verður mun meira úr fjármunum þínum en
þú hafðir þorað að vona. Kunningi þinn tekur þig
með sér í stutt, en mjög skemmtilegt ferðalag.
Þú kynnist nýju fólki. Heillatala er fjórir.
Drckamerkið (24. október — 22. nóvember).
Það verður margt um að vera og mikið hugsað
þessa dagana. Láttu ekki aðra hugsa fyrir þig
reyndu að mynda þér þínar eigin skoðanir á mönn-
um og málefnum. Þú slæst í félagsskap íþrótta-
fólks.
©Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember):
Þú ert ekkert ánægður með tilveruna og hefur það
á tilfinningunni að þú lifir of einangraður frá um-
heiminum. Hristu þetta þunglyndiskast af þér með
því að kikja inn hjá kunningjum cða hafa sam-
band við þá á annan hátt.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þeir tímar sem nú fara í hönd eru mjög vel falln-
ir til þess að auka andagiftina eða þroska einhverja
ákveðna hæfileika með sér. Reyndu að smita kunn-
ingja þína af góðri hugmynd sem þú færð.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú tekur nú loksins til starfa við verkefni sem þú
hefur undirbúið af mjög mikilli kostgæfni. Gættu
þess að fara varlega að öllu í samskiptum þínum
við aðra. Maður nokkur gerir þér smágreiða.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Það er eins og vissir hlutir í eigu þinni reynist þér
alltaf jafnilla, hversu oft sem þú skiptir um. Reyndu
að læra eitthvað af reynslunni og svo er þér líka al-
veg óhætt að þiggja ráð annarra.
g2 VIKAN 44. tbl.