Vikan - 04.11.1965, Síða 33
Skemmtanir skammdegisins
eru framundan
RICHARD HUDNUT ELSKAR ALLAR KONUR
Richard Hudnut Fashion Style
hæfii bezt síðu hári. Einu sinnl
heima hárliðun, og hárið helzt
liðað um langan tíma.
Richard Hudnut Egg Shampoo
hæfir öllu hári og töfrar fram
eðlilega fegurð þess. Fyrir feg-
ursta og bezta útlit yðar —
byrjið ávallt með Richard Hua-
nut Egg Shampoo.
Þegar hátíð fer í hönd. eða
tíminn naumur, notar stúlkan
með stutta hárið auðvitað Ric-
hard Hudnut Rollquick heima-
hárliðun — og hárið fer betur
en nokkru sinni fyrr.
Aðlaðandi og ánægð með RfiCHARD HUDNUT
böndum milli fegurðar og menning-
ar og biðu f ofvæni eftir að sjá
hvernig þetta kæmi út.
Brúðkaupið var haldið á heimili
Jean Harlow. Eftir vígsluna var
Harrison fyrstur til að óska brúð-
inni til hamingiu. — Þetta var það
eina, sem gat fengið mig til að
koma hingað, sagði hann, um leið
og hann kyssti Jean. — Vertu sæl,
ástin mín.
Augu hennar fylltust tárum. —
O, Jack. Hann elskar mig sjálfrar
mín vegna, hann elskar sál mína og
hug, allt sem er svo mikils virði!
Framhald í næsta blaði.
The Kinks
Framhald af bls. 19.
Hún vísar goðunum leiðina í
hestaferðinni. Fyrst í stað er far-^
ið á hægagangi, en allt í einu tek-
ur öll hjörðin viðbragð og er von
bráðar horfin bak við rykský,
sem þyrlast upp á veginum.
Knattspyrnuleikurinn í garðin-
um stendur sem hæst. Hinn hæg-
láti Ray Davies fylgist með strák-
unum í leiknum um stund, en
gengur síðan til stofu, þar sem
hann þiggur góðar veitingar hjá
húsfreyju. Hann er undarleg
andstæða félaga sinna í hljóm-
sveitinni. Yfirleitt virðist hann
feiminn og víst er um það, að
þeir eru ekki margir, sem þekkja
hann vel.
Að nokkrum tíma liðnum
koma þeir Dave, bróðir hans,
Pete og Mick blaðskellandi inn
í stofuna og eiga ekki nógu sterk
orð til að lýsa þessum dásamlegu
hestum, sem þeir höfðu komizt
í kynni við.
— Maður þarf ekki annað en
að flauta, þá nema þeir staðar,
segir Mick!
Það voru margir bítlar saman-
komnir í húsi Þórðar á Reykj-
um þennan dag. Þetta var
skemmtileg samkoma hjá gest-
risnu fólki. Hrifningu heimasæt-
anna er vart hægt að lýsa. Allt
í einu voru átrúnaðargoðin
þeirra komin í heimsókn til
þeirra, — rétt eins og þau hefðu
dottið niður úr skýjunum!
Um síðir var heimilisfólkið
kvatt, og þá höfðu The Kinks á
orði, að þeir mundu áreiðanlega
koma aftur í heimsókn, þegar
þeir kæmu aftur til íslands.
A leiðinni til Þingvalla var
Kinks músik allsráðandi í óska-
lagaþætti sjómanna í útvarpinu.
Þeim fannst undarlegt að heyra
allt í einu lagið „Something bett-
er beginning“.
— Við höfum aðeins leikið
þetta lag einu sinni, sagði Ray,
þegar við sögðum honum, að
þetta lag væri eitt hið vinsæl-
asta um þessar mundir hjá ís-
lenzkum unglingum. Ég verð að
játa, að við erum hreinlega bún-
ir að gleyma þessu lagi. Við lék-
um það inn á hljómplötu — og
búið. Kannski væri ekki úr vegi
að gefa það út á tveggja laga
plötu?
Við Almannagjá var numið
staðar. Goðin príluðu upp á
hraunbreiðuna og stóðu lengi við
á brún Almannagjár og nutu út-
sýnisins. Fararstjórinn áminnti
piltana um að fara varlega, gæta
sín á sprungunum og fara ekki of
tæpt út á brúnina. En ekki fengu
orð hans hljómgrunn hjá öllum.
Þessi staður var sannkölluð para-
dís fyrir fjörkálfinn Pete, sem
setti sig í alls konar stellingar
til þess að ná sem beztum mynd-
um á kvikmyndavél sína. Flest-
um þótti nóg um, þegar hann
settist niður á gjábarminn og
beindi myndavélinni niður í
gjána. En þó var flestum iokið,
þegar hönd sást teigja sig upp
úr einni gjótunni, en síðan kom
andlit hans í ljós, skelfingin upp-
máluð. Þegar betur var að gætt,
var hann aðeins að hrella félaga
sína, en fararstjóranum fannst
samt lítið púður í svona gríni!
Enn var numið staðar við Pen-
ingagjá og þá gerði Pete sig lík-
legan til að lauga sig í gjánni.
Honum var þó fljótlega bent á,
að vatnið væri kaldara en svo,
að hæft þætti til slíkra nota!
Að loknum hádegisverði að
Hótel Valhöll var haldið niður
að vatninu, þar sem bátar biðu
Síðan var róið út á vatn. Eflaust
hefði mörgum brugðið í brún,
sem hefðu orðið vitni að öllum
þeim gusugangi, sem átti sér stað
úti á vatninu. Dave og Pete stóðu
þar fremstir í flokki en í bátum
þeirra voru Tempó bítlarnir Þor-
geir Ástvaldsson og Páll Val-
geirsson.
Bílarnir voru víst búnir að
flauta í hálftíma, áður en bítlarn-
ir heyrðu til þeirra og reru ti)
lands. Degi var tekið að halla
og enn var einn viðkomustaðui
eftir: Hveragerði.
í Hveragerði var goðunum
sýnt gróðurhúsið Eden og höfðu
þeir gaman að þeirri heimsókn,
en að lokum voru þeir leystir út
með blómum.
VIKAN 44. tbl. gg