Vikan - 04.11.1965, Síða 50
Pylsur á ýmsan háttt
Sænskar pylsur
8 pylsur, 50 gr. smjörlíki, 2 — 3 stórir laukar, ca. % kg. soðnar
kartöflur, 375 gr. tómatar (flysjaðir) 14 1. rjómi, e.t.v. svolítið vatn
eða kjötsoð, salt, pipar, saxaðar púrrur.
Pyisurnar skornar í bita og snöggsteiktar í smjörinu með laukun-
um, sem skornir hafa verið í sneiðar. Kartöflurnar og flysjuðu tóm-
atarnir skorið í sneiðar og hvort tveggja sett saman við pylsumar
og látið hitna vel í gegn. Þá er rjómanum bætt í (má vera súr) og
rétturinn kryddaður með salti og pipar og söxuðu púrrunni stráð
yfir.
Skomar pylsur með kartöflumós
4 — 6 pylsur, 1 matsk. matarolía, 1 stór laukur, 30 gr. smjör eða
smjörlíki, sultaðar rauðbeður skornar í teninga, karsi, kartöflumós.
Saxið laukinn smátt og brúnið í smjörinu, bætið rauðbeðutening-
unum í og blandið vel saman. Kryddið með salti og pipar. Skerið
eftir pyisunum endilöngum og opnið þær, penslið með oliunni og
grillerið þær í 5 — 6 mín. Leggið þær svo ofan á rauðbeðujafninginn
og berið fram með kartöflumós. Hér í Reykjavik fást margar teg-
undir af ágætu kartöflumós í pökkum — duft, sem hrært er út með
mjólk eða vatni.
Medisterpylsur í rauðvíni
% — % kg. medisterpylsur, 3 dl. vatn, 1% dl. rauðvín, 250 gr.
epli, 125 gr. laukur, 50 gr. smjör eða smjörlíki, 1 tesk. sykur, salt,
maizenamjöl til að jafna með. Kartöflumós, persilja, paprika.
Medisterpylsan soðin við lítinn hita í vatninu og rauðvíninu í ca.
15 mín. (rétt látin malla). Þá er hún veidd upp úr og steikt í smjör-
inu með eplasneiðunum og lauknum, sem skorinn hefur verið í bita
(sé laukurinn mjög smár, má hafa hann heilan). Borið fram með
kartöflumósi, en út á það er stráð saxaðri persilju og papriku. Sósan
gerð úr rauðvínssoðinu og jöfnuð með maizenamjölinu.
Pylsur a la Harlekin
8 þykkar pylsur, ostur, 8 baconsneiðar, kartöflumós, 1 pakki frosn-
ar, grænar baunir og gulrætur, persilja.
Skerið hverja pylsu eftir endilöngu. Leggið jafnlangan ostbita
í hverja og vefjið baconsneiðinni um. Setjið pylsurnar í smurt eld-
fast fat og steikið við mikinn hita eða grill þar til baconið er stökkt
og osturinn byrjaður að bráðna. Búið til gott kartöflumós og blandið
grænmetinu saman við og raðið pylsunum utan með. Stráið persilju
yfir og berið grænt salat með, ef það fæst.
Pylsur a la Strogan
Yz kg. soðin medisterpylsa, smjör eða smjörlíki, 3 — 4 laukar, 250
gr. sveppir, 14 1. þunnur rjómi, tómatpurré, salt, paprika, 100 gr.
baconsneiðar, kartöflumós.
Laukurinn skorinn í sneiðar og sveppir til hálfs eða fjórðuhluta.
Hvort tveggja brúnað í smjörinu. Soðna pylsan skorin í sneiðar og
þeim bætt í. Rjómanum, tómatmaukinu og svolitlum sósulit hellt
yfir. Rétturinn hitaður vel í gegn og sósan jöfnuð aðeins upp og
krydduð með salti og papriku. Borið fram með kartöflumós og vel
steiktum baconsneiðum.
Kartöflupönnukaka með reyktri medisterpylsu
Ca. 1 kg. mélaðar kartöflur, 35 gr. smjör eða smjörlíki, salt, rós-
marin, 400 gr. reykt medisterpylsa, 25 gr. smjör, tómatsneiðar, söx-
uð púrra.
Kartöflurnar flysjaðar og skornar í sneiðar, sem lagðar eru eins
og tíglaþak á pönnu með brúnuðu smjörlíki (lauslega brúnuðu).
Stráið salti og rósmarin yfir, setjið lok á og látið malla í ca. hálf-
tíma. Skerið pylsurnar í sneiðar og brúnið lauslega í smjörinu.
Rennið svo kartöflukökunni varlega yfir á fat, leggið pylsubitana
ofan á í miðju og skreytið með tómatsneiðum.
EGGERT KRISTJANSSON & CO HF
SllVII 11400
Pennavinir frá 100 iöndum óska eftir
bréfaskriftum við ySur. Upplýsingar á-
samt 500 myndum verða send til yðar
án endurgjalds.
C0RRESP0N0ENCE CLUB HERMES
Berlin 11, Box 17, Germany
Eignist nýja vini!
gQ VIKAN 44. tbl.