Vikan - 17.03.1966, Side 17
KONA LEIKARANS
SEGIR FRÁ EINKALÍFI
MANNSINS SÍNS í
SJÓNVARPS-
KVIKMYND
ER PAPPÍRS-
TÍGURINN AÐ VERÐA
HÆTTULEGUR?
Hér er „pappírstígurinn“ Maó
málaður á silki, eins og vani er
til í Kína.
Fram til þessa hafa Banda-
ríkjamenn lengstum talað með
lítilsvirðingu um „gulu hættuna"
margfrægu, sem þessi árin stafar
frá Kína. Hafa þeir haldið því
fram, að þrátt fyrir alla sína
mannmergð séu Kínverjar svo
illa stæðir með vopn og hráefni
til stríðsframleiðslu, að engin
hætta væri á að þeir þyrðu að
gera annað voðalegra á alþjóða-
vettvangi en rífa kjaft, hvað þeir
líka óspart hafa gert. Og hundar
sem gelta bíta ekki, vill Kaninn
trúlega meina.
En nú kvað nýlega við annan
tón á Nató-fundi í París. Þar
tróð landvarnarráðherrann
bandaríski, Robert McNamara,
upp með heldur geigvænlegar
fréttir: Kína væri á hraðri leið
með að verða slíkt ógnarveldi, að
það gæti innan fárra ára ógnað
hvaða landi sem væri með
kj arnorkuvopnum. Yrði Nató að
bregða hart við til gagnráðstaf-
ana, ef ekki ætti verr að fara.
Þótt mjög sé mikið til í þessu
hjá McNamara, eru þó sumir
þeirrar skoðunar, að hann hafi
dregið þessa mynd upp með
nokkuð sterkum litum til að afla
aukinnar samúðar með hernaði
Bandaríkjamanna í Víetnam, sem
er auðvitað ætlaður til að halda
Kínverjum í skák. Að vísu er
ekki að efa að Kína eigi eftir
að magnast sem heims- og atóm-
veldi, en varla er heldur ástæða
til að óttast að önnur heimsveldi
— eins og til dæmis Bandaríkin
og Sovétríkin — taki allt í einu
upp á því að standa í stað.
FORSÆTISRÁÐ-
HERRANN ÞJÁLFAR
SONINN
Hvernig er einkalíf frönsku
kvikmyndahetjunnar Alain
Delon? Það verður ekki mik-
ið leyndarmál innan tíðar,
því að kona kappans, Natha-
lie Delon hefur gert sjón-
varpskvikmynd af einkalífi
þeirra. Þar kemur það í ljós
að hann lifir ekki neinu
spennandi ævintýralífi, eins
og í myndum sínum, heldur
ósköp kyrrlátu fjölskyldulífi
á búgarði, sem er rétt utan
við París. Hér eru myndir af
þeim hjónum og virðast þau
kunna ágætlega við sig í
sveitasælunni.
ALLT r LAGI MEÐ PILLURNAR
Margar tröllasögur — og víst
flestar lognar — eru sagðar um
skaðsemd þessara pilla.
Alltaf gýs öðru hverju upp
orðrómur þess efnis, að hinar
ýmsu tegundir af pillum til
getnaðarvarna, sem nú eru í
tízku og sagðar eru þrælör-
uggar, séu háskagripir að því
leyti að þeim fylgi ýmsar ó-
æskilegar hliðarverkanir, svo
sem augnverkur, hjartveiki og
offita. Hafa heilbrigðismála-
yfirvöld Bandaríkjanna látið
rannsaka málið og komizt að
þeirri niðurstöðu, að þetta
rykti sé mjög orðum auldð,
en engu að síður sé þó rétt
fyrir konur að kaupa ekki
pillurnar án þess að hafa ráð-
fært sig við lækni fyrst. Verði
þær varar við einhver óþæg-
indi samfara notkun pill-
anna, sé sjálfsagt fyrir þær að
hætta við þær strax. En slík
leiðindi heyri sem sagt til
undantekninga, og sjálfar séu
pillurnar öruggari til síns
brúks en nokkuð annað þekkt
getnaðarvarnalyf.
Jafnvel í Danmörku var
skíðasnjór í vetur, þótt ekki
sé mikið um slcíðabrekkur.
Hér á myndinni er forsætis-
ráðherra Dana, Jens Otto
Krag að hjálpa sýni sínum
Jens Christian á skíðin. Það
getur verið að forsætisráð-
herrann sé líka að þjálfa fæt-
urna fyrir Pressuballið.
SÍDAN
SÍDAST
^;
VIKAN 11. tbl. YJ