Vikan


Vikan - 17.03.1966, Blaðsíða 22

Vikan - 17.03.1966, Blaðsíða 22
SMÁSAGA EFTIR ROBERT RUARK Alec Barr hefur oft sagt við sjálfan sig, mörg- um árum sfðar, að hann hafi aldrei hugsað sér neitt alvarlegt f sambandi við Barböru. Hann var að hefja fyrirlestrarferð sem átti að byrja í Chicago, rétt eftir að ein bókin hans kom út. Hann hafði drukkið sig fullan, vegna þess að hann hafði andstyggð á þvf sem hann var að gera. Þegar hann kom upp ( flugvélina, var hann svo þjáður af timburmönnum að það leið heill klukkutfmi þar til hann tók eftir sessu- naut sfnum, hún var f einskonar blámóðu við hliðina á honum. — Þeir virðast ekki ætla að bjóða neitt á- fengi í þessari ferð. Mild, skær en ákveðin rödd reif hann upp af ömurlegum dvalanum. — Það vill svo til að ég er af gamla skólanum og tek alltaf með mér einhverja hressingu. Ég held að þér ættuð annaðhvort að reyna að lifna svolítið við, eða þá hreinlega að sofna frá þessu volæði, herra Barr. Hvort viljið þér heldur? — Þér þekkið mig- sagði Alec bjálfalega og deplaði augunum. Ljósið meiddi aum augu hans. — Höfum við hitzt áður? — Ég þekki yður. Þér eruð ekki algerlega óþekktur. Þeir sitja stundum mynd af yður á kápusfðu og stundum f dagblöðin Ifka. Eftir á að hyggja þá erum við f sama sjónvarpsþætti. Ég heiti Barbara Bayne og ég er léleg atvinnu- leikkona. Alec deplaði aftur augunum, svolftið gáfu- legri á svipinn og tók við vasapelanum, sem var úr hömruðu silfri. Hann sveið ( augun þeg- ar hann reyndi að beina þeim í rétta átt. — Auðvitað þekki ég yður. Ég hefi séð marg- ar af myndum yðar. En þér voruð dökkhærð á þeim. Og sú síðasta, sem ... — Sem dó eftir fimm sýningar? Þér sáuð hana Ifka og samt viljið þér drekka viskíið mitt? Rödd Barböru Bayne var óhugnanlega hressileg, þegar tekið er tillit til þess að hún var að fljúga snemma morguns til þessarar skltugu borgar, sem Alec hafði aldrei fyrr en nú langað til að heimsækja. — Mér fannst leikurinn ekki svo slæmur. Og mér fannst þér vera ... — Sæmileg, sögðu leikdómararnir. Það er yf- irleitt ekki annað sem þeir sjá f mér. Þetta er andstyggilegt orð. En sannleikurinn er sá að óg læt yflrleitt vel að stjórn að rffst ekki við mér betri leikara. Þessvegna er ég alltaf ráð- In. Viljið þér vatn í viskfið? — Ne-ei. Ég held ég vilji það óblandað. Mér veitir ekki af hressilegri innspýtingu. Ætlið þér ekki að drekka neitt? — Ekki fyrr en þú býður mér til hádegis- verðar f Chicago, sagði Barbara Bayne og brosti. — Ég hefi beðið eftir þessu augnabliki í mörg ár. Og mér finnst sfðasta bókin þfn „Algert tap" alveg dásamleg. Hún hlýtur að hafa kom- ið beint úr görnunum. Alec Barr saup stóran sopa úr pelanum og hristi sig. — Það er alveg rétt, ég meina að hún kom beint úr görnum mínum. En þetta verður sfð- asta garnagaulið. Þetta er fallega sagt og mér þætti það mikil ánægja að bjóða þér til hádeg- isverðar og til kvöldverðar líka og á eftir. .. Barbara Bayne brosti. — Nei. Það tölum við um seinna. Alec fann hvernig hann roðnaði. Hann fálm- aði eftir sígarettunum og bauð henni, notaði það sem afsökun fyrir því að hann virti hana nákvæmlega fyrir sér. Barbara Bayne var björt yfirlitum, kringluleit og hafði mjög djúpan spé- kopp í annarri kinninni. — Það sem ég ætlaði að segja var að það er hnefaleikakeppni í kvöld. Þú hefðir kannske gaman að því að sjá þá, það er að segja ef þú hefur gaman að slíkum kappleikjum. — Mér þykir gaman að kappleikjum, sagði Barbara, — yfirleitt öllum kappleikjum. Mér þætti gaman að sjá reglulega hnefaleikakeppni. — Þú sýnist stærri á leiksviðinu, sagði hann og horfði á hana gegnum sfgarettureykinn. — Og eldri. í kvikmyndum ertu yfirleitt óörtug og veraldarvön í útliti. Það er líklega vegna þess að þú ert dökkhærð. Ég vona þú reiðist ekki þótt ég segi þér að þú ert bæði yngri og fallegri í veruleikanum. Og þó nokkuð sakleys- islegri. Barbara hristi skínandi, Ijóst hárið. — Það er hárgreiðslukonunum að kenna. Ég veit ekki hvað þessar kerlingar eru að brugga bak við mig, en þær segja að þetta passi svo vel við augu mín, vegna þess að þau eru brún. — Ég væri hrifin af þér þótt þú hefðir bleik augu og værir rangeygð f ofanálag. Þetta eru fyrstu gulhamrarnir sem þú færð fyrir viskfið þitt. Ég held ég verði að kafa svolítið í flösk- una, til að verða nokkurn veginn eins og ég á að mér, að minnsta kosti á yfirborðinu. Þá fer ég að slá þér gullhamra frá hjartanu. Hann saup á flöskunni og rétti henni hana. — Ég skal segja þér að þú ert falleg kona, það finn ég þegar áfengið fer að verka á mig, ef til vill Ifka án þess. Þú hefur svo fallegt morg- unandlit. — Þakka þér fyrir, góði herra, þetta er fallega sagt. Ég gæti sagt það sama um þig, þrátt fyrir þessa timburmenn þfna . .. Mér lízt alls ekki þannig á að þú sért af þeirri tegund rit- höfunda sem eru leyndardómsfullir, taka sjálfa sig hátíðlega og eru venjulega með setningar á vörunum, sem enginn skilur nema þeir sjálf- ir. — Ég er f raun og veru ósköp venjulegur atvinnurithöfundur og hefi sæmilega afkomu af ritstörfum mfnum. Ég er hræddur um að ég komist ekki í Faulkner-Hemingway hópinn hvað snertir sérvizkulega lifnaðarhætti. Þetta er ósköp einfalt, ég bara skrifa daglega og vona að útgefandinn minn gretti sig ekki of mikið þeg- ar hann les ritsmíðar mínar. Hann er þekktur fyrir það, að gretta sig, á ég við, enda er and- litið á honum vel lagað til þess. — Ekkert rithöfundarstolt? Engin fullvissa um það að það séu ómetanlegar perlur, sem hrynja af fingrum þfnum? Ekkert rifrildi við útgefend- ur út af vafasömum atriðum? — Mjög lítið, eiginlega ekki neitt. Alec Barr brosti hálf vandræðalega. — Mig langar ekk- ert til að hæla sjálfum mér, en mér hefur lengi gengið svo vel. Ég er eins og góðlátleg feit hóra, get ráðið við hvaða sjómann sem er og hvenær sem er. — Þú virðist vera óskarithöfundur útgefenda, sagði Barbara Bayne. — Hefurðu engin önnur göfug lyndiseinkenni? Ekki einu sinni anga af listamannsskapi? Kvennaböðull? — Barnahatari? Ég veit þú átt konu, ég hefi oft séð hana. Hún er mjög falleg. — Þakka þér fyrir. Já, hún er mjög falleg og hún er líka góð kona. Hún hefur aðeins einn leiðinlegan galla. Ég held að hún skilji mig of vel. Það er að segja, ég held henni finnist ég hálf lélegur eiginmaður. Ég held hún hati hjákonuna, sem ég hefi f bakherberginu. Það var enginn feimnislegur tómleiki á and- iiti Barböru Bayne, eins og hann hafði ætlazt til. — Ritvélarskrattinn? — Já, þessi andstyggilega ritvél. Það er bara svo óheppilegt að ég þekki enga aðra leið til að vinna fyrir daglegu brauði. Og það er sér- staklega óheppilegt að þegar maður er búinn að vera framkvæmdastjóri, kvikmyndaframleið- andi, leikstjóri og allir leikararnir, ungir, gaml- ir, kven- og karlkyns, svartir og hvftir, er mað- ur orðinn svo þreyttur eftir faðmlögin við þessa járnjómfrú, að maður veit ekki einu sinni hvað maður heitir. Það eina sem kemst að er að hvolfa í sig einum eða tveimur glösum af Mar- tini og skrfða f rúmið, með bókina á undir- vitundinni, til þess að geta byrjað á þessu leiðinda torfi næsta dag . . . — Drottinn minn, andvarpaði hún, — ég er hrædd um að ég vild/ ekki hafa þig fyrir hús- dýr. Gerir þú aldrei neitt þér til ánægju? — Ekki þegar ég er að vinna, og venjulega er ég alltof þreyttur. Ég var vanur því einu sinni að taka mér frf og reyna að finna það sem þú kallar skemmtun, en mér þykir ekk- ert gaman f þessum drykkjuveizlum. Ég fæ allt- af timburmenn og ég er feiminn við að sofa hjá fólki, sem ég þekki lítið sem ekkert. Barbara Bayne sagði: — Ég held að eitthvað af frumunum í þér hafi frosið. Það þarf að hressa upp á sálina í þér. Eigum við að reyna það f kvöld, þegar þú ert búinn að gera það sem þú þarft og hnefaleikunum er lokið? — Hefurðu ákveðið að láta mig fá taugaá- fall? Jæja, þarna höfum við Chicago. Þakka þér fyrir samfylgdina, það er þér að þakka að þessi ferð var bæði stutt og skemmtileg. Nú er bara eftir að vita hvort við komumst f heilu lagi á þennan litla og lélega flugvöll. — Við skulum vona það, sagði Barbara. — En nú er ég bæði svöng og hræðilega þyrst, 22 VIKAN 11. tbl. I

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.