Vikan - 17.03.1966, Síða 25
samúðarfullir menn höfðu verið
sendir frá París, og þar til þeir
kæmu, mátti ekkert snerta. La Val-
ére og hinir höfðu átt að gæta
hússins, þar til mikilmennin, hinir
réttu menn kæmu.
Hvergi var Ijós að sjá. Húsið var
autt. Mennirnir, sem höfðu verið
þar, voru dauðir núna eða heima
hjá Turner að bíða eftir lögregl-
unni. Hann tók upp lyklakippu Puc-
ellis. Þriðji lykillinn var sá rétti,
og hann fór inn, aftur inn á skrif-
stofuna, þar sem St. Briac hafði
spurt hann svo vandlega út úr.
Veggskáparnir voru lokaðir, en lykl-
ar Pucellis dugðu einnig á þá, og
hann hafði lært tölurnar á peninga-
skápslæsingunni. f honum voru ný-
frankar, tíu þúsund sterlingspunda
virði, og skjalataska, full af skjöl-
um. Craig lagði hvort tveggja til
hliðar og fór síðan yfir innihald-
ið ( skápnum og borðskúffunum.
Listar af nöfnum yfir staði, yfir
sjóði, yfir hermenn, yfir óvini, allt
auðlæsilegt í tunglsljósinu. Hann
valdi það úr, sem hann áleit að
hann þyrfti á að halda, og skildi
afganginn eftir — allt nema einn
lista. Það var sá, sem hafði hans
eigið nafn að geyma, nafn Baum-
ers og nafn Rutters og Langes. Hann
brenndi þennan lista, þar sem hann
var viss um, að loginn sæist ekki;
það voru einnig önnur nöfn á hon-
um.
f einu herberginu fann hann
tösku og fyllti hana af skjölum og
bréfum og fór síðan fram í and-
dyrið með töskuna f hendinni. Aft-
ur ýlfraði hundur, og Craig flýtti
sér inn í skuggann undir stigan-
um, lagði frá sér töskuna og tók
upp Woodsman byssuna, þegar
hundurinn spangólaði einu sinni
enn.
Það hringlaði f lyklum við dyrn-
ar og að lokum opnuðust þær. Byss-
an í hönd Craigs var klettstöðug,
þar sem hann beið f skugganum
og sá móta fyrir nýja manninum
f tunglisljósinu. Síðan — allt f einu
rak hundurinn upp eitt gól enn og
þriðji maðurinn kom þjótandi, skall
á þeim, sem í dyrunum stóð, og
keyrði hann niður. Sá fyrri engd-
ist eins og köttur og mennirnir tveir
ultu fram og aftur, og allt f einu rak
Craig upp skellihlátur, hló þar til
tárin streymdu úr augunum á hon-
um, hann fann til f maganum og
hann var svo veikur, að hann gat
ekkert annað gert en láta fallast
niður á þrepin og stynja f hlátrin-
um, og mennirnir tveir, sem voru
að slást, hættu og urðu vandræða-
legir og staðnæmdust fyrir framan
hann, sárir og hneykslaðir yfir þvf,
að Craig skyldi hlæja, þegar hann
hefði átt að hjálpa þeim.
— Ó, Grierson, stundi Craig. —
Af hverju varstu ekki kyrr í Bordig-
hera? Og þú Larry, af hverju fórstu
ekki heim?
— Ég varð að sjá, hvað um þig
yrði, sagði Larry. — Ég sá þennan
náunga brjótast inn. Ég hélt, að
hann væri kannske á eftir þér. Er
hann vinur þinn?
Craig hætti að hlægja. — Við
erum samherjar, sagði hann og
sneri sér að Grierson. — Hvert ætl-
arðu nú?
— Baie des Anges, sagði Grier-
son. — Báturinn bíður þar.
— Er ætlazt til, að ég komi með?
Grierson kinkaði kolli.
— Kannske Larry skutli okkur,
sagði Craig.
— Auðvitað, sagði Larry. — Mér
þykir fyrir því, að ég skyldi ráð-
ast á þig. Ég hélt að þú værir að
ná í Mr. Reynolds.
— Allt í lagi, sagði Grierson.
— Ég á við, að Mr. Reynolds
er vinur minn. Ég myndi ekki horfa
upp á, að honum verði gert mein.
— Ég hef orðið var við það, sagði
Grierson. — Þú ert mjög góður.
— Ósjálfrátt, sagði Larry. — Ég
held, að það sé langmikilvægast.
Ef þú ert fæddur með ósjálfráð
viðbrögð, kemur hitt af sjálfu sér.
Svo bætti hann við: — Ég veit ekk-
ert hvaðan á mig stendur veðrið.
Ef ég vissi hverjir væru samherjar,
gæti ég kannske hjálpað einhverj-
um . . .
— Þú getur það, sagði Craig. —
Aktu okkar til Baie des Anges.
— Ashford . . . byrjaði Grierson.
— Ashford er dauður, sagði
Craig.
— Okay, sagði Larry. — Okay.
Meðan einhver veit hvað hann er
að gera . . . Og hvað um lögguna?
— Ég er hræddur um, að ég hafi
slegið hann niður, sagði Grierson.
Þeir fóru með töskuna með sér
og Craig og Grierson biðu meðan
Larry fór niður á veginn og náði
í Kadilakkinn. Svo lögðu þeir af
stað. Craig sagði ekkert, og Grier-
son, sem sat við hlið hans, var
stffur og vandræðalegur f þögninni.
Larry tók að tala um verk Carls
Sandburg, sem hafði skrifað nógu
mikið til þess, að það entist þeim
framhjá flugvellinum, út að litla
flóanum, þar sem litla skútan beið
fast upp við ströndina og uppi í
fjörunni var lítil skekta með utan-
borðsmótor. Þeir hrundu henni á
flot og Grierson kippti f spottann
og að þessu sinni fór vélin f gang
undir eins. Larry kvaddi Craig með
handabandi og horfði á hann
klöngrast um borð, og rétti Grier-
son sfðan töskuna. Hann sagði ekk-
ert við Grierson. Þegar þeir komu
út að snekkjunni, var þegar verið
að létta akkerum, og þegar þeir
komu upp að og klöngruðust um
borð, var gangur dfselvélanna hrað-
ari. Á þilfarinu horfði Craig á aftur-
Ijós Kadilakksins, þegar hann hvarf
aftur f áttina til Nissa; í áttina til
Cap Ferrat. Larry myndi verða að
útskýra marga hluti, þegar hann
hefði gengið frá bflnum.
Snekkjan stefndi til hafs og skip-
stjórinn og áhöfnin sinntu sfnum
verkum, án þess að taka eftir mönn-
unum, sem stóðu á þilfarinu og
störðu af ákefð á svörtu ströndina,
sem f jarlægðist stöðugt, þar til dög-
unin varð Ijós og geislarauð. Grier-
son sagði: — Það er bezt að við
förum niður. Þú ert ekki beinlínis
ásýnilegur.
Craig fór niður, fór f bað og
fékk sér mat í svölum borðsal, þar
sem lipur þjónn bar fram egg og
beikon og kaffi og loksins gat Craig
farið að hugsa um svefn, þegar
hann hreiðraði um sig f djúpum
hægindastól og hlustaði á tilbreyt-
ingarlaus slögin f díselvélinni. Hann
langaði að hugsa um Sophie —
og St. Briac, Ashford, La Valére og
líka Grierson. Hvernig stóð hann
nú gagnvart Grierson og hinum
feita,sóðalega og bráðsnjalla djöfli,
Loomis? Það var mikilvægt að
hugsa um þessa hluti. Mjög mikil-
vægt fyrir hann, en Grierson kom
hvergi nálægt honum og hann var
þreyttur. Hann sofnaði.
Klukkan var fjögur, þegar Grier-
son vakti hann og hann fór aftur
f bað, hafði fataskipti og fékk sér
aftur að borða. Að þessu sinni var
vfn með matnum og koníak á eft-
ir. Craig velti þvf fyrir sér, hvort
hann ætti að drekka sig fullan,
en hætti við það. Það var ekki kom-
inn tími til þess,- ekki ennþá. Grier-
son sat og horfði á hann borða.
Hvorugur þeirra mælti orð frá vör-
um, þar til Craig hafði lokið sér
af og færði sig aftur út f hæginda-
stólinn, teygði úr sér og geispaði.
Það yrði svo auðvelt og svo þægi-
legt að sofna aftur.
— Ætlarðu að senda mig til
Coventry? spurði Grierson.
— Nei, svaraði Craig. — Ég er
að bíða eftir þvf að þú segir mér,
hvað ég á að gera.
— Allt í lagi, sagði Grierson og
andvarpaði. — Gefðu skýrslu.
Craig sagði honum frá öllu; frá
Ségur, frá Ashford, Lal Valére og
einvfginu, og Turner, sem hringdi
f lögregluna. Það var erfitt að segja
frá því, hver áhrif einvfgið hafði
haft á hann; um hríð hafði hann
verið svo uppgefinn; svo reiðubú-
inn til að deyja, en í staðinn hafði
hann drepið aftur, f skopleik sem
hafði orðið að melodrama; og Sop-
hie og Maria hefðu getað orðið
dauðanum að bráð f hans stað.
— Þegar því var lokið, sagði
hann, — fór ég að hugsa um vinn-
una, og það sem Loomis hafði sagt
okkur að gera. Þú varst horfinn,
og Ashford var dauður. Þá var ég
eftir. Ég vissi, að það var möguleiki
að ég kæmist inn í hús St. Briacs,
og gæti komist í skjölin hans; ég
gerði það og þá komst þú.
— Ef ég hefði ekki gert það,
svaraði Grierson, — hvað hefðirðu
þá gert?
— Ég hefði sloppið, sagði Craig.
— Ég á vini og peninga og byssu.
Ég hefði komizt undan. Þegar ég
Hey — verður það fyrir sjálfan mig
— eða það, sem ég trúi á. Ekki
fyrir Loomis.
— Þegar þú vinnur fyrir þessa
stofnun, samþykkir þú að fara eft-
ir fyrirmælum, svaraði Grierson. —
Hvaða fyrirmæium, sem er — hvern
svo sem þau snerta. Þannig verður
það að vera. Ég vissi, að Loomis
hafði rangt fyrir sér varðandi þig;
ég vissi, að hann vanmat þig — en
Framhald á bls. 48.
Hver er Modesty Blaise? Hún er snjallasta og
harðasta kvenhetja hinna nýju riddarasagna,
njósnabókmenntanna. ÞaS hefði kannske orð-
ið spennandi saga, hefðu þau hitzt James Bond
og hún, en þá hefði líka aumingja Bond orðið
að lúta í lægra haldi. Fyrst og fremst fyrir kven-
legum þokka hennar, en þó öllu fremur fyrir
harðfylgi hennar og lipurð, ásamt óþrotlegum
forða af allskonar tækjum, svo sem varalit með
gasi, rýtingum í brjóstahaldaranum og öðru eft-
ir því.
Og sagan um MODESTY BLAISE verður næsta
framhaldssaga VIKUNNAR.
VIKAN 11. tbl. 25