Vikan - 17.03.1966, Qupperneq 34
þér fáið fleiri rakstra
með Silver Gillette,
en nokkru öðru rakhlaði
og þegar það kemur betra
blað, en Silver Gillette,
þá verður nafnið
Gillette á því.
það bezta í rakstri hefur ávalt
komið frá Gillette.
Silver Gillette er ryðfría
rakblaðið^sem gefurstöðuga
mýkt og raunverulega langa
endingu.
SILVER GILLETTE-GEFUR FLEIRI RAKSTRA EN
NOKKURT ANNAÐ BLAÐ.
lífi Krists. Hann kom ekki til að
lóta þióna sér, heldur til að þjóna
öðrum".
— Hafið þið presta?
— Nei. Á samkomum, sem við
höldum, ræðum við frjólslega um
boðskap Bahó-u-llóh og annarra
lærifeðra okkar og reynum á þann
hátt að efla þroska okkar og þekk-
ingu. Við leitum þroska gegnum
samhyggð, samvinnu. Baháí, sem
ræðir við vinl sína á samkomu,
finnur jafnskjótt hver áhrif orð hans
hafa á þá, fær samstundis svar
við því sem honum er í hug og
sameiginlega finna þeir ef til vill
sannleiksneista sem lægi hulinn ef
málin væru ekki rædd.
— Skriftið þið?
— Abdu'l Bahá segir: „Óánægja
með sjálfan sig er þroskamerki. En
okkur er eindregið bannað að játa
syndir okkar fyrir mönnum, enda
hefur Bahá-u-lláh sagt: „Syndajátn-
ing fyrir mönnum er auðmýkjandi
og niðurlægjandi, og Guð vill ekki
niðurlægja þjóna sína".
— Hafið þið sérstakar hátfðir?
— Já, Ridvanhátiðina og fæðing-
ar- og dánardægur Bábs og
Bahá-u-lláh. Þessir dagar eru haldn-
ir hátíðlegir eftir þvf sem föng eru
á. Baháís vinna þá ekki, ef þeir
geta komið þvf við.
— Takið þið þátt í hátíðahaldi
annarra trúarflokka?
— Jú, við gerum það. Óformlega.
Við leggjum áherzlu á að blanda
geði við annað fólk, skilja sjónar-
mið þess og öðlast nýjan skilning
í samlífinu við það. Hátíðahald
allra trúarflokka gefur tilefni til
slíks.
— Hve margir Baháís eru nú í
heiminum?
— Um það höfum við engar á-
kveðnar tölur, en þeir skipta milljón-
um og hefur farið mjög fjölgandi.
Þess ber að geta f þessu sambandi,
að við rekum ekkert trúboð í venju-
legum skilningi þess orðs. Það er
mikil áherzla lögð á það að beita
engan neinskonar þvingun, til að
fá hann til aðildar í söfnuði okkar.
Hver einstaklingur verður að gera
það upp við sig, án nokkurs þrýst-
ings utan frá, hvort hann vill verða
Baháí.
— Er langt síðan hreyfingin
barst til Islands?
— Orð Bahá-u-lláh mun fyrst
hafa borizt hingað 1924. Útbreiðsl-
an hefur verið hæg, en þó ekki
án áhrifa á ýmis svið. Ég hef til
dæmis heyrt, að Einar Jónsson
myndhöggvari hafi orðið mjög
snortinn af kenningum Bahá-u-lláh.
— Hversu stór er söfnuður ykk-
ar hérlendis?
— Skráðir aðilar eru ekki mjög
margir, en margir íslendingar lifa
örugglega samkvæmt kenningum
Bahá-u-lláh.
— Fylgja ekki einhver skilyrði því
að gerast Baháí?
— Hver Baháí verður að trúa því,
að Bahá-u-lláh sé spámaður Guðs,
og auk þess að hlýðnast boðum
hans. Til dæmis má hann ekki
neita áfengis eða neinskonar eitur-
lyfja nema eftir læknisráði. Hann
verður að hlýðnast boðum og bönn-
um stjórnar þess lands er hann
dvelst í.
— Þið trúið á Bahá-u-lláh sem
spámann hins nýja tíma. Getið þið
útskýrt það atriði nánar?
— Við trúum því að sú framþró-
un, sem átt hefur sér stað með
mannkyninu sfðustu áratugina, hafi
orðið fyrir þann kraft, sem Guð
hefur gefið gegnum Bahá-u-lláh. Á
það má benda f þessu sambandi,
að Bahá-u-lláh viðurkennir fullkom-
lega þátt vísindanna f uppbygg-
ingu mannkynsins; hann hafði og
boðað útrýmingu fátæktar, jafn-
rétti karla og kvenna og margt
annað, sem til sjálfsagðra hluta er
talið í þjóðfélögum nútfmans, löngu
áður en slíkt komst á dagskrá eða
f framkvæmd.
— Viðurkenna þá framámenn f
nútímaþjóðfélögum þýðingu Bahá-
ís?
— Hin óbeinu andlegu áhrif spá-
mannsins hafa víða komið fram,
játendur hans njóta vfða mikils
trausts og álits. Til dæmis má taka,
svo eitthvað sé nefnt, að þegar
stjórnarvöld f Suður-Víetnam köll-
uðu nýlega saman þing allra trú-
arflokka f landinu, til að koma á
sættum milli þeirra, þá var leitað
til Baháfs um að verða tengiliður
milli hinna deilandi aðila. Baháís
VXKAN 11. tbl.