Vikan - 30.06.1966, Side 20
.
. ;
K * Wií: fvw újJkjBm|
K. í •&$& UBHi 'iúi iV' i'ifiF&lfflM
■k*. 1' “■:'i~ ii'
■KjL , ‘r„
Charles og Georg, 26 ára gaml-
ir tvíburar, sem eru andlega
vanþroskaðir, hafa verið rann-
sakaðir á New York State Psy-
chiatric Institute. Þeir hafa sýnt
furðulega leikni í að finna út
og muna dagsetningar. Það er
þeirra sérgáfa.....
Þessar jsrjár myncJir eru af tvíburunum Charles og Georg.
Ein af þeim fáu dagsetningum sem sérhver
normal manneskja man með vissu er eigin
fæðingardagur, sá dagur sem þær fyrst sáu dags-
ins Ijós. Það er dagsetning, en hvaða dag vik-
unnar var það? Ef þetta var á þriðjudegi, hve
margir afmælisdagar þínir hafa þá borið upp á
þriðjudag?
Charles og Georg vita það.
Charles og Georg eru eineggja tvíburar, and-
lega vangefnir, 26 ára gamlir. Þeir heyra til litl-
um sérkennilegum hópi, sem sálfræðingar kalla
„fábjána fræðimenn". Þótt þeir kunni ekki ein-
földustu atriði í tölvísi, geta þeir sagt hvaða
vikudag sérhver mánaðardagur ber upp á í ár
og aldir. Charles er alveg óskeikull þegar reikna
þarf út vikudaga og mánaðardaga á þessari öld.
Tvíburarnir eru nú til rannsókna á New York
State Phychiatric Iristitute, og nýlega gaf Georg
hárrétt svör viðvíkjandi vikudögum og mánaðar-
dögum á tímabilinu frá því árið 4100 f.K. þang-
að til 40.400 ár fram ( tímann, frá deginum
í dag.
— I hvaða mánuðum ársins 2002 ber fyrsti
dagur mánaðarins upp á föstudag- spurði lækn-
irinn.
— í marz, febrúar og nóvember, sagði tvíbur-
inn, án þess að hika.
— Hvenær ber 21. aprd upp á sunnudag?
- 1968, 1957, 1963, 1946... Svörin komu
fljótt og voru hárrétt, þótt þau væru ekki í röð.
— Hvað er sjö sinnum fjórir? spurði læknir-
inn.
— Tveir. svaraði annar tvlburanna.
— Hvað merkir það, sjö sinnum fjórir?
— Það er 14.
Og þannig heldur þetta áfram; tvíburarnir eru
á verði og mjög ákafir, þeir depla Ijósbláum
augunum bak við þykk gleraugun og svara þess-
um spurningum um vikudaga og mánaðardaga
á svipstundu, en það myndi taka vel menntað-
an stærðfræðing fleiri mínútur og venjulegt fólk
margar klukkustundir að leysa úr þessu; en svo
geta þeir ekki svarað einföldustu spurningum
um talnafræði.
Það, að kalla tvíburana „fábjána fræðimenn"
er ekki allskostar rétt. Þeir eru alls ekki algerir
fábjánar og á hinn bóginn ekki heldur fræði-
menn. Það mætti kalla þá pörtótta. Sálfræðing-
ar nota þetta heiti til að lýsa persónum sem hafa
afbrigðil. gáfur, þ.e.a.s. hafa aðeins vit á einhv.
2Q VIKAN 26. tbl