Vikan


Vikan - 03.08.1967, Síða 11

Vikan - 03.08.1967, Síða 11
Fyrsta mánuð ævinnar sér barnið heiminn í óljósri þoku, án þess að greina fólkið í kringum sig. Það sér hvorki andlit eða svipbrigði þeirra sem hjá því eru. Þetta verða allt ruglingsleg strik, og smám saman skynjar það liti. Barnið sér ekki móður sína, en skynjar þó að það er hún, sem tekur það upp. Fyrsta hljóðið kemur af sársauka og hræðslu, en svo fer barnið að venjast heiminum. Skynjunina fær það með augum, munni og húð. Barnið uppgötvar hendurnar og veitir þeim nána athygli. Þroskinn er mjög hraður, frá fyrsta brosinu til fyrsta skrefsins. Barnið hefur meira að gera á fyrsta ári, en stjórnmálamaður á kosningaári. Þetta er langt og erfitt ár, og barnið þarfnast hjálp- ar, blíðu og natni. Fullorðið fólk Framhald á bls. 37. Stólfótur er staur og tréskórinn er alvar- leg hindrun. Barnið skríður undir skrif- borðið og horfir á allt þetta eins og frá hellismunna. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að barnið standi upp þegar það fær styrk. Borðbrúnin er nýr heimur, þar er margt forvitnilegt, bæði til að smakka á og snerta. 31. tbl. vikan 11

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.