Vikan


Vikan - 21.09.1967, Page 21

Vikan - 21.09.1967, Page 21
HÚS OG HÚSBÚNADUR Þeir sem komið hafa til Spánar, hafa víst flestir hrifizt af gamla, spánska húsgagnastílnum, sem enn er í heiðri hafður. Þessi spönsku húsgögn fást raunar víða um heim, m. a. bæði í Kaupinannahöfn og London. Hér er spánskt borðstofuborð og stólar, hvort- tveggja dæmigert. Borðið er eins og sjá má af fótunum, lagt saman að nokkru leyti, en annars er það rauð- málað og það eru stólarnir líka, nema setan, sem ofin er úr snæri eða basti. Á gólfinu er einnig snærismotta. Al- gengt er, að spönsk borðstofuhúsgögn séu smíðuð úr dökkri eik og þá ómál- uð, eða að þau séu máluð svört. Það má segja, að hér ægi öllu saman: Nýtízku sveiflu- og ruggu- stól með fótaskemli, kjaftastól, sem í rauninni er garðstóll, nýtízku leslampa, myndum eftir börn og ævagömlu skrifborði. Samt er sam- komulag og samstaða hlutanna með þeim hætti, að heildin verður hcimilisleg, en kjölfestan er ekki sízt gamla borðið. Það er óneitanlega eitthvað rómantískt við svefnherbergi með göml- um rúmum, allra helzt rúm með stólpum, jafnvel háum stólpum og himni. Hér eru rúm sem eitt sinn hafa verið samkvæmt tízkunni og firna fín. Þau eru blámáluð en gulur flötur á gafli hvers rúms og þar á málað rósaflúr. Höfðagaflinn er hærri og skrautlegri. Hand- an við rúmin er hornbekkur, borð og stólar, sem líklega hafa ein- hvern tíma átt heima í eldhúsi. Að minnsta kosti stólarnir eru af gamalli gerð og eins og hornskápurinn þar yfir. Kistur eru nú úr sögunni á húsgagnamarkaönum og hafa fataskápar og aðrar liirzlur leyst þær af hólini. Samt er eitthvað veglegt við þessar stóru eikarkistur, sem sumar voru járn- slcgnar. Þar sem húsakynni eru af rýmra taginu, fer vel á að láta kistu standa í forstofu eða jafnvel í stofu ef hún væri eins fallegur gripur og kistan á myndinni. Þessi kista er af útlendum uppruna; íslenzkar kistur stóðu ekki á fótuin. 38. tbi. VIKAN 21

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.