Vikan


Vikan - 21.09.1967, Blaðsíða 28

Vikan - 21.09.1967, Blaðsíða 28
MeSan brjóst mitt æska og ástir... í BORGARSJÚKRAHÚSIÐ VAR EINGÖNGU NOTAÐ THERMOPANE EINANGRUNARGLER ÞÉR FÁIÐ EKKI ANNAÐ BETRA EGGERT KRI§TJÁM§NOW «& CO. HF. SfMI 11400 Framhald af bls. 11. heldur ekki vanta á stúdenta- fundi á Garði eða í Akademish Læseforening, fær á sig orð fyrir að vera meinháðskur, orðhvass og hnyttinn. Hið fjölskrúðuga líf heillar hann. Sama haustið og hann kemur til háskólans þreytir hann inn- tökupróf ög hlýtur aðra eink- unn, flestum félögum til ánægju. Hann skrifar til foreldrahúsa og reynir að berja í brestina, en nagar sig þó í handarbökin, því að námsbræður hans hafa fengið vopn í hendur. Þó tekur hann sig ekki á. Ári síðar þreytir hann 2. lærdómspróf einnig með 2. einkunn. Móðir hans skrifar: „Við examen hefur gengið hér um bil eins og ég hugsaði En skyldi það vera ávöxtur fyrri tímanna hirðuleysis, hvernig getur þú þá verið ánægður með sjálfan þig? En að láta hugfallast, þó svona færi, og leggja árar í bát, það eru þau verstu úrræði.“ Heim til íslands fara að berast miður skemmtilegar sögur af syninum. Það er eins og for- eldrunum eigi ekki að auðnast að standa í ljómanum af frægð hans. Hann er uppskafningur og landeyða að sögn. Þorgrímur hefur orðið að greiða fyrir hann lán, sem hann hefur snúið sér út hjá kunningja í Höfn. Móðir hans fullvissar hann um, að faðir hans greiði ekki skuldir fyrir hann eftirleiðis, enda er ríflega greitt með syninum, 240 dalir eða meir, ef allt er til tínt. Að undirbúningsprófunum loknum er ráð Gríms mjög á reiki. Hann velur sér að náms- efni tungumál, bókmenntir og skyld fræði, sem einna óarð- vænlegust eru til embættisframa á íslandi. „Ofarlega er nú í mér að láta piltinn hætta og koma heim aft- ur“, skrifar Þorgrímur mági sín- um. „Mér finnst eins og þú hald- ir, að ég hafi verið of strangur við Grím, en ég get sagt þér það með sanni, að ég hef ei verið nógu strangur við hann, og betur hefði það líklega farið, að ég hefði verið nokkuð strangari við piltinn, því ég hef þá trú, að ekki dugi einungis blíðskapurinn við unglingana, ef úr þeim á maður að verða.“ Grímur sér sitt óvænna, er hann á á hættu að verða sendur heim. Hann tilkynnir því foreldr- um sínum, að hann ætli að fara að lesa lög. í skjóli þeirrar yf- irlýsingar fær hann gálgafrest. Námi á hann að hafa lokið árið 1842. Lögvísi stundar hann um skeið að nafninu, fær vottorð upp á að hafa sótt fyrirlestra, er hann siðar getur hampað. Ingibjörg skrifar Grími bróður 28 VIKAN 38‘ tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.