Vikan


Vikan - 21.09.1967, Blaðsíða 46

Vikan - 21.09.1967, Blaðsíða 46
MEIRA UM VETRARTÍZKIINA Sumar os vetur mætast — vetrarklæðnaðurinn heldur drungalegur, há stígvél, síð pils og stúlkurnar allar dúðaðar, svo a.ð varla sést meira en í andlitið. — Reyndar er augað strax farið að venja sig við síðu pilsin, cn hað er algild regla í tízkunni, að bví meira sem fóllt hneyksiast f byrjun og því frábrugðnari klæðaburður frá því sem áður var, því meiri vinsældum nær hann er frá líður. Tilbreytingarþörfin segir þar til sín ómeðvitað, og það sem áður var eins ljótt og gamaldags og hugsazt gat, verður nú að bví eftirsóknarverðasta. Reyndar er núverandi ástand ákaflega þægilegt og skemmtilegt vegna þess, að nú geta stúlkurnar valið um svo stutta kjóla að hærra verður ekki komizt með fald- inn og kjóla sem ná niður fyrir miðja kálfa. Og bað sem betra er, valið þarf ekki að gilda algjörlega, þær geta átt hvort tveggja og skipt þannig um útlit frá degi til dags. Þótt hér og í síðasta blaði hafi verið sýnt meira af siðum fatnaði en stuttum, er ekki bar með sagt að hann sé þegar búinn að ná yfir- höndinni. Stuttu pylsin eru enn í mciri hluta, en hitt var nýrrg. og forvitnilegra, svo að fleiri myndir urðu fyrir valinu af þeim fatnaði. Flauel er mikið notað, en það er dökkbrúnt í bessari buxnadragt. Rétti brúni liturinn nú er eins og á suðusúkku- laði. Buxurnar á dragt- inni eru beinar niður, vesti með frönsku munstri notað við og löng úrkeðja milli vest- isvasanna. Blússan er á- kaflega vinsæl núna, bæði við pils og buxur, pífukragi upp í háls og pífur á ermum. Takið sérstaklega eftir húf- unni, en hún er úr sams- konar flaueli og á á- byggilega eftir að sjást oft á næsta vetri. kápa, litirnir og appelsínurauður. Tak- ið eftir kragahornunum, hve breið þau eru neðst, sömuleiðis hönzkunum, en um úlnliðinn er spennt ól og skarð upp í á hliðinni. Stuttar og hálfsíðar buxur til götunotk- unar eru jafnmikið notaðar. Utan yfir þær hálfsíðu sjáið þið á annarri mynd- inni dökkbrúna kápu með skörðum upp i hliðarnar, röndóttan trefil og sams konar húfu, en sokkarnir eru þeir vinsælustu núna, dökkbrúnir með strofprjóni langsum. Við hinar buxurnar er notuð slá, en á þeim bar mikið á tízkusýning- unum í haust. Stuttu buxurnar eru frá Ungaro og er aðeins styttri kápa með öðrum þeirra, en með hinum sjáið þið sokkastígvél, sem þó skilja eftir auða rák milli buxna og stíg- vélabrúnar.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.