Vikan - 29.05.1969, Síða 9
það gæti bent til þess, að
trúarlíf sé talsvert meira
meðal almennings en sum-
ir vilja vera láta. Yfirleitt
er það góðs viti að dreyma,
að m'aður sé í kirkju, en
er þó undir ýmsu komið.
•—- Þessi draumur þinn er
líklega fyrir góðu. Kf ást-
leitni gengur illa í draumi
er það talinn fyrirboði
ánægju og heppni, jafnvel
giftingu. Þessi skólabróðir
þinn á áreiðanlega eftir að
koma mikið við sögu í lífi
þínu, ef hann hefur þá
ekki þegar gert það.
SKRÍTIN
SKÍRN
Kæra Vika!
Mig langar til að biðja
þig að ráða draum fyrir
mig. Hann er svona:
Eg er stödd á stóru túni,
þar sem ég átti heima áð-
ur. Ég er mjög skítug á
höndunum. Ég er í þann
veginn að fara yfir girð-
ingu, þegar ég heyri sagt:
— Það á að eyða öllum
skordýrum í Gullfossi.
(Ég hef aldrei séð Gull-
foss nema á mynd).
Síðan er ég komin að
stórri kirkju, sem er full af
fólki. Ég þekki margt af
þessu fólki. Þetta eru ná-
grannar okkar og ættingj-
ar. Ég geng inn í kirkjuna
og fer að þvo mér um
hendurnar upp úr skírnar-
fontinum. Hann er inn á
milli bekkja, við hliðina á
mömmu. Ég fer að þvo mér
þarna um hendurnar með
sápu meira að segja. Þá
skipar mamma mér að
hætta þessu. Eg hlýði því
með hendurnar allar sáp-
ugar.
Þá sé ég, að mamma er
með lítið barn, sem hún á
og ætlar að láta skíra það.
Hún fer að skírnarfontin-
um, sem nú er allt í einu
kominn á sinn rétta stað.
Presturinn spyr, hvað
barnið eigi að heita. Þá
segir mamma:
— Erla Erna.
Barnið var ekki í neinum
skírnarkjól, heldur gulum
galla. Það grét ekkert á
meðan á þessu stóð. Prest-
urinn lét vatn aðeins tvisv-
ar á höfuðið, en einu sinni
á kinnina.
Mamma fer svo til konu,
sem við þekkjum vel. Hún
óskar henni til hamingju,
en sezt síðan. Presturinn
fer fram og er þar dálitla
stund. Hann kemur aftur
með þúsund krónur, réttir
mömmu þær og segir:
— Þá er þetta búið.
f því vaknaði ég.
Mér finnst Vikan alveg
ágæt. Ég þakka sérstaklega
greinina um Geir Hall-
steinsson. Ég vona, að þið
getið ráðið þetta.
Ein forvitin.
Þetta er býsna torráðinn
draumur. Táknin eru svo
mörg, að maður verður
næstum alveg ruglaður. En
við skulum reyna það sem
við getum. Skím er mikið
heillatákn í draumi og boð-
ar að heitustu óskir manns
rætist. Hins vegar mun það
tákna svolitla erfiðleika að
dreyma að athöfn í kirkju
gangi öll á afturfótunum.
Að þvo sér um hendumar
er einnig fyrir góðu. Mörg
fleiri tákn koma fram í
draumi þínum, en við álít-
um, að þessi séu mikilvæg-
ust og ráðum því draum-
inn að mestu út frá þeim.
Og þá kemur loks sjálf
ráðningin: Innan skamms
mun þér bjóðast tækifæri,
sem þú hefur Iengi beðið
eftir. Það felur í sér al-
gjöra breytingu á lífi þínu
og högum. En fjölskylda
þín og þá sérstaklega móð-
ir þín eru mótfallin því, að
þú notir þetta tækifæri. —
Þetta veldur leiðindum um
tíma, en svo fer að lokum,
að þú færð vilja þínum
framgengt og allir aðilar
samþykkja að leyfa þér að
grípa gæsina, á meðan hún
gefst. Það kemur í ljós síð-
ar, að ótti þinna nánustu
skyldmenna var með öllu
ástæðulaus. Þér mun farn-
ast vel eftir breytinguna.
LAUGAVEGI 59 SlM118646
r---------------------------------------
SKYNDIGETRAUN 4
Dregið hefur verið í fjórðu skyndigetraun
Vikunnar. Vinningar voru tveir, símabekkir
frá húsgagnaverzluninni Dúnu. Vinningana
hlutu Björg Hulda Konráðsdóttir, Bjargi við
Suðurgötu, og Guðbjörg Þorsteinsdóttir,
Finnbogastöðum, Árneshreppi, Stranda-
sýslu.
22. tbi. VIKAN 9