Vikan - 29.05.1969, Qupperneq 20
IOÁRB
EN6IIK ALDiiR
FVIIRIROI
Chaplin varð áttræður 16. apríl síðastliðinn. Þrátt
fyrir háan aldur er hann enn í fullu fjöri og vinnur
nú að gerð 82. myndar sinnar. Chaplin þurfti að
heyja langa og erfiða leit að hamingjunni og fann
hana ekki fvrr en hann kvæntist Oonu, hinni 18 ára
dóttur leikritaskáldsins Eugene O’Neill. Þá var hann
sjálfur orðinn 54 ára gamall.
20 VIKAN 22- tw.
„Hann er alltaf í leit að hamingj-
unni, en fæturnir flækjast fyrir hon-
um," segir Charlie Chaplin um um-
renninginn sinn, eina frægustu per-
sónu, sem um getur í sögu kvik-
myndanna.
Sjálfur þurfti Chaplin að heyja
langa og erfiða leit að hamingj-
unni. Hann fann hana í rauninni
ekki, fyrr en hann kvæntist Oonu,
dóttur bandaríska lei kritaská Idsins
Eugene O'Neill. 18 ára giftist hún
Chaplin, sem þá var orðinn 54 ára
gamall, enda þótt faðir hennar legð-
ist eindregið gegn því. Chaplin varð
áttræður 16. apríl síðastliðinn. Samt
er hann enn í fullu fjöri og vinnur
nú af kappi við gerð 82. myndar
sinnar.
Chaplin býr í stórri, hvítri villu í
bænum Corsier fyrir ofan Vevey í
hinum franska hluta Svisslands.
Langt fyrir neðan glittir á góðviðr-
isdögum spegilslétt Genfarvatnið.
Þau hjónin hafa eignazt átta börn,
sem nú tala frönsku með svissnesk-
um hreim og gera alltaf öðru hverju
uppreisn gegn ströngum uppeldis-
aðferðum gamla mannsins, sem auð-
vitað eru viðhafðar í beztu mein-
ingu. Oona er ekki einasta undur-
fögur, heldur einnig sterkur, ríkj-
andi persónuleiki. Hún stjórnar
heimili sínu af festu og röggsemi
og nýtur til þess aðstoðar þjóna og
þjónustustúlkna sem fylla heila
tylft. Húsið heitir Manoir de Ban og
umhverfis það er dýrindis garður
með grænum grasflötum og ilm-
andi rórarunnum.
FJÓRGIFTUR
Chaplin kvæntist fyrst árið 1915,
sextán ára gjamajli leikkonu að
nafni Mildred Harris. Eftir sex ára
hjónaband skildu þau. Þótti skiln-
aðurinn opinbert hneyksli á sínum
tíma og varð gómsætur biti fyrir
slúðurdálka blaðanna. 1923 kvænt-
ist Chaplin öðru sinni, aftur barn-
ungri leikkonu. Hún hét Lita Grey
og var ekki nema fimmtán ára göm-
ul. Hann varð yfir sig ástfanginn af
henni, en ánægjan þaut á auga-
bragði út í veður og vind, þegar
hún varð barnshafandi. Hann hafði
ekki hugsað sér að kvænast aftur,
kvaðst ekki vilja brenna sig tvisvar
á sama eldinum. Hann afréð því að
yfirgefa Litu litlu. En þegar hann
frétti, að hún hefði reynt að láta
eyða fóstrinu og einnig gert tilraun
til að svipta sig lífi, varð hann í
senn hrærður og óttasleginn og
kvæntist henni. Þau eignuðust tvo
syni, en hjónaband þeirra var alla
tíð stormasamt og hlaut að enda
með ósköpum. Þau skildu 1927, eft-
ir hávaðasöm réttarhöld og mála-
rekstur. Eldri sonur þeirra, Charlie,
lézt í fyrra í Bandaríkjunum 42 ára
gamall.
Orsök skilnaðarins voru ótalmörg
ástarsambönd Chaplins við frægar
konur, eins og Pola Negri, Marion
Davis, eiginkonu blaðakóngsins
Hearts, Claire Windsor og margar
fleiri. Það var vonlaust fyrir Chaplin
að leyna ástarbralli stnu. Hvarvetna
voru snuðrarar á ferð og allir gátu
Chaplin þótti laglegur á sínum
frægðarárum í Hollywood, enda
naut hann mikillar kvenhylli.