Vikan - 29.05.1969, Qupperneq 21
lesið um stefnumót Chaplins í blöð-
unum jafnóðum og þau gerðust. A
þeim tímum var siðferði kvikmynda-
leikara ekki orðið eins slæmt og
nú, enda hneykslaðist almenningur
óspart á hegðun Chaplins.
En Chaplin var ekki af baki dott-
inn. I þriðja sinn kveentist hann
barnungri stúlku, Paulette Goddard,
19 ára. Hún var af ríkum ættum,
vel gefin og prýðilega menntuð.
Hjónaband þeirra var álitið ham-
ingjusamt og entist í 9 ár.
ÞJÓÐHÆTTULEGUR
Árið 1952 fluttist Chaplin frá
Bandaríkjunum að fullu og öllu. Or-
sökin var sjúklegur andkommúnist-
ískur áróður hins ofstækisfulla öld-
ungadeildarþingmanns, McCarthys.
Chaplin var sakaður um óamertska
starfsemi og talinn þjóðhættulegur.
Slíkar ásakanir þoldi Chaplin ekki,
ákvað að flytjast til Evrópu og hefur
búið þar síðan. Hann hafði sig úr
landi í hasti miklu ásamt konu og
börnum, en síðan fór Oona, sem
ekki var grunuð um græsku af yf-
irvöldunum, þegjandi og hljóðlaust
aftur til Bandaríkjanna, seldi eignir
Chaplins og fór síðan aftur til manns
síns með fullar hendur fjár.
Nú búa þau Chaplin og Oona f
hvíta húsinu sínu f Sviss og hafa
ekkert ónæði frá umheiminum. Að
Framhald á bls. 36.
Chaplin ásamt þremur dætr-
um sínum, sem allar líkjast
móður sinni, Oonu (yzt til
vinstri). Oona er ekki aðeins
undurfríð, lieldur einnig sjálf-
stæður og ríkjandi persónu-
léiki.
Umrenningurinn, fræg-
asta persóna, sem um
getur í sögu kvikmynd-
anna. Hann vann strax
hug og hjörtu allra með
skoplegum töktum sín-
um og dæmalausum
limaburði.
Móðir Chaplins, Hann-
ah, var gamanvísna-
söngvari í Englandi á
dögum Viktoríu drottn-
ingar. Hún missti rödd-
ina og maður hennar
hljóp frá henni. Upp
frá því bjó hún við fá-
tækt og skort, ásamt
sonum sínum, Charlie
og Sidney.
Þessi skemmtilega mynd er af
Chaplin og yngsta syni hans.
Það fer vel á með þeim feðg-
um þarna á myndinni, en allt-
af öðru hverju gera börnin
uppreisn gegn gamla mannin-
um, sem vili vera strangur
uppalandi.
22. tw. VIKAN 21