Vikan - 05.02.1970, Side 6
BIBLÍAN
RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA
BIBLÍAN — RIT HENNAR I MYNDUM
OG TEXTA er falleg myndabók í alþjóða-
útgáfu. Myndirnar, sem danska listakon-
an Bierte Dietz hefur gert, eru litprentað-
ar í Hollandi, en textinn er prentaður hér-
lendis. Magnús Már Lárusson, háskóla-
rektor, hefur annazt útgáfuna og ritar inn-
gang og ágrip af sögu íslenzkra Bibliuþýð-
inga frá upphafi. — Þetta er vönduð og
glæsileg myndabók, sem hefur að geyma
nýstárlega túlkun á Heilagri ritningu.
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
PÖSTHÖLF 533 SlMI 35320 REYKJAVÍK
Jalousi
Vika mín góð!
E'g á heima í litlu þorpi á Vest-
fjörðum. Þar er fólk mjög ein-
angrað á veturna, og þar er ekk-
ert sjónvarp. En þar sem ég er
nú stödd í bænum, skrapp ég til
vinafólks til að horfa á þetta
undratæki. Og sjá: þarna birtist
Þjóðleikhússtjóri á skerminum,
ásamt Guðrúnu Á. Símonar og
Þorkatli Sigurbjörnssyni. Eg sat
höggdofa og horfði á þessi ósköp.
Engum var þessi þáttur til sóma
og rýrnaði álit mitt á sjónvarpi
og öllum flytjendunum fjórum
til muna. Ég hélt ekki, að sjón-
varpið væri svo efnissnautt, að
það þyrfti á svona óþverra að
halda, engum til ánægju en öll-
um til ama. Þessi þáttur byggð-
ist á heimskulegri illkvittni og
kjaftarekstri. Hvernig getur fólk
látið hafa sig í svona? Er allt til
vinnandi að komast í sjónvarp?
Mér datt. í hug nautaat, þar sem
nautin eru 2 Vi, en samúðin öll
með nautabananum. Mig langar
til að lýsa því hvernig persónur
þessa þáttar féllu í áliti hjá mér
(ég þekki ekkert þeirra persónu-
lega).
Þjóðleikhússtjóri: Eg hafði
borið virðingu fyrir honum sem
slíkum. En að hann skyldi fara
út í svona lagað er ofvaxið mín-
um skilningi. Mér fannst hann
barnalegur og orðaforðinn tak-
markaður. Svona kom hann mér
fyrir sjónir.
Guðrún Á.: Ég hef verið hrif-
in af henni sem söngkonu. En
henni fer ábyggilega betur að
syngja „Jalousi" en að vera
jalous. Ég las gagnrýnina eftir
hana í Alþýðublaðinu, og mér
fannst hún miskunnarlaus, rætin
og dónaleg um greifafrúna. Þar
sem manni fannst að hún hlyti
að þekkja byrjunarörðugleika
sjálf, átti hún að fara nærfærn-
ari höndum um það, sem henni
fannst ábótavant. f sjónvarpinu
minnti hún mig á hvæsandi kött,
og má hún þakka fyrir að kom-
ast ekki oftar að en hún gerði.
Þorkell Sigurbjörnsson sat
með frosið bros á vör, og fannst
mér hann fyrirverða sig fyrir að
taka þátt í þessu, og ekki hraut
neitt gullkorn af vörum hans.
Stjórnandinn minnti mig á
prakkarastrák, sem er að etja
saman hönum.
En konan, sem allur þessi styr
stendur um? Hvernig skyldi
henni hafa liðið? Er hún dauður
hlutur? Er hún ekki lifandi vera?
Hvað er að? Er hún of falleg?
Komst hún kannski skammlaust
frá greifafrúnni, svo skammlaust,
að það þurfti herferð til að reyna
að láta illar spár rætast? Hún
hefur vafalaust gert sitt bezta.
Kannski stóð hún ekki með
pálmann í höndunum eftir sýn-
ingarnar á Brúðkaupinu. En hún
stendur með hann í dag. Það seg-
ir almúginn, sem ekki hefur vit
á hlutunum, sá sami almúgi, sem
lyft hefur listamönnum undan-
genginna ára og gert þá dáða og
vinsæla.
Inga.
Þarna er ekkert verið að skafa
utan af hlutunum og víða kveð-
ið nokkuð fast að orði. En svo
mikið hefur nú gengið á út af
óperuflutningi Þjóðleikhússins,
að menn kippa sér ekki lengur
upp við smámuni. Hverjum
manni er frjálst að láta í ljós
skoðun sína á þessu mikla „stór-
máli“ og viðhorf Ingu er kann-
ski merkilegast fyrir það, að hún
er úr fásinninu og horfir ekki að
staðaldri á sjónvarp.
Sjúkraliðanám
Kæri Póstur!
Við erum hérna tvær stúlkur,
sem langar til að biðja ykkur að
veita okkur nokkrar upplýsingar
um nám sjúkraliða:
Til hvers á að snúa sér?
Hvenær á að sækja um?
Hvað er námið langt?
Hvert er aldurstakmarkið?
Með fyrirfram þökk.
Unna og Gunna.
Það er bezt að snúa sér til Hjúkr-
unarskóla íslands, Eiríksgötu 34.
Þar fáið þið miklu nákvæmari og
betri svör við þessum spurning-
um en við getum veitt.
Saumanámskeið
Svar til Auðar-Lóu:
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
heldur alltaf öðru hverju sauma-
námskeið, og er því bezt að snúa
sér til þess og biðja um upplýs-
ingar.
Hver maður
sinn smekk
Kæri Póstur!
f 3. tölublaði þessa árs skrifar
einhver M. um frelsarann og
poppið.
Þar minnist M. m. a. á algera
misþyrmingu á Pílagrímakórnum
í Tannhiiuser. Ég er sammála M.
G VIKAN 6-tbl-