Vikan - 05.02.1970, Síða 7
að þetta sé sígilt og gullfallegt
verk. Þar sem ég hef heyrt út-
setninguna hjá annarri popp-
hljómsveitinni, get ég ekki séð að
um algera misþyrmingu sé að
ræða, þótt svona verk séu vart
á færi popphljómsveitar. Hvern-
ig finnst þér, kæri M., þegar jafn-
vel sinfóníuhljómsveitir taka
popplög til meðferðar? Er um
enga misþyrmingu þar að ræða?
Það minnsta sem M. getur, er að
hlusta a. m. k. á aðra plötuna
með þessu lagi áður en hann
(hún) fer að skrifa hitt og þetta
og sannfæra aðra um að þetta
sé algjör misþyrming. Það hefur
hver sinn smekk, og ætti enginn
að láta segja sér fyrir um hitt
og þetta heldur dæma sjálfur.
Ungu kynslóðinni finnst þetta
flott lag hjá popphljómsveitinni,
líklega af því að hún (að minnsta
kosti margir hverjir) hefur aldr-
ei heyrt þetta lag í frumútgáfu,
en það er aðallega eldra fólkið
sem talar um misþyrmingu, og
gæti ég trúað því að M. sé kom-
inn nokkuð til ára sinna.
Virðingarfyllst,
S. B.
Hver maður hefur sinn smekk,
eins og S. B. segir réttilega, og
hver maður hefur jafnframt sinn
rétt til þess að segja hvað hon-
um finnst. Ekki vitum við, hvað
M. er gamall, en hann þarf alls
ekki að vera kominn til ára
sinna. Menn geta haft áhuga á
sígildri tónlist, þótt þeir séu ung-
ir. En engu að síður er alltaf
gaman að heyra álit sem flestra
og við þökkum S. B. kærlega
fyrir bréfið. Hann og M. eiga lík-
Iega það eitt sameiginlegt, að
báðir mættu vera gæddir um-
burðarlyndi í ríkara mæli.
Að missa hárið
Kæri Póstur!
Mig langar hér að leita ráð-
legginga hjá þér.
Svo er mál með vexti, að hár-
ið á höfðimi á mér virðist vera
smám saman að detta af. Eg er
tvítug, svo þetta er alls ekki
spaugilegt. Ég hef alltaf haft sér-
staklega þykkt og fallegt hár,
þannig að fólk hefur talað um
það. En fyrir ári síðan tók ég
upp á þeim fjanda að sprauta
hárlakki í það a. m. k. tvisvar
sinnum á hverjum einasta degi,
svo að ég þurfti ekki að snerta
á greiðu allan daginn. Ekki nóg
með það, heldur svaf ég með allt
heila verkið, mikið túberað og
stíflakkað, hverja einustu nótt.
Þessum ósið hélt ég áfram, þar
til fyrir ca. 3 mánuðum síðan. En
þá var hárið byrjað að detta af
svo mikið, að lá við að ég dæi
úr áhyggjum.
Góði Póstur minn! Mig langar
svo að þú ráðleggir mér eitthvað
sem allra fyrst.
Heldurðu að hárlosið myndi
stöðvast, ef ég burstaði hárið vel
niður í hársvörðinn daglega?
Hvernig bursta er bezt að nota
og með hvernig hárum?
Heldurðu að hárið gæti náð
sér og orðið eins og það var upp-
haflega?
Með fyrirfram þökk fyrir góð
og greinileg svör.
Að síðustu langar mig að
þakka ykkur fyrir margar
skemmtilegar greinar í blaðinu.
Dórótea.
Það er afar ósennilegt, að þú
sért að missa hárið fyrir fullt og
allt. Við ráðleggjum þér að borða
vítamín, sérstaklega B-vítamín
og forðast túberingar og lakk.
Að sjálfsögðu er ágætt að greiða
hárið niður í svörð sem oftast.
Það fer illa með hárið að sofa
með það túberað og stíflakkað
sem þú og veizt. En okkur finnst
ólíklegt, að það valdi algeru hár-
Iosi. Annars er öruggara fyrir
þig að leita til læknis, því að
engir erum við sérfræðingar í
þessum efnum.
Saga Bítlanna og fleira
Kæri Póstur!
Getur þú sagt mér, hvort Saga
bítlanna kemur út á íslenzku í
bókarformi, og ef svo er þá hve-
nær? Þetta var nú aðalerindið, en
fyrst ég er setztur niður til að
skrifa, langar mig til að minn-
ast á annað atriði: Er hægt að
sýna myndir af sveitum og kaup-
stöðum hringinn í kringum land-
ið með sjónvarpsklukkunni á
hverju kvöldi, án þess að það
kosti mikið? Ef það skyldi vera
hægt, þá skora ég á sjónvarpið
að gera það.
Að svo mæltu þakka ég fyrir
gott efni á liðnu ári og þá sér-
staklega fyrir Gissur gullrass og
greinina um Livingstone.
Ég vona að þetta bréf mitt
lendi ekki í ruslakörfunni.
Ferðalangur.
Úrdráttur úr Sögu bítlanna birt-
ist eins og kunnugt er sem fram-
haldsefni í Vikunni á sínum tíma
og naut gífurlegra vinsælda. En
ekki er okkur kunnugt um, að
hún sé væntanleg í bókarformi
hér á landi. Síðari spurningunni
getur sjónvarpið eitt svarað.
Strákurinn, sem ég er með,
gaf mér minnsta kveikjara sem
ég hef séð — svo lítinn að ég fæ
varla nógu litla steina í hann.
Annar strákur gaf mér kveikjara,
sem hann keypti í siglingu
— honum er fleygt þegar
hann er tómur. Ekki man ég,
hvorn ég lét róa fyrr,
kveikjarann eða strákinn.
Eg er alltaf að kaupa
eldspýtur, en þær misfarast
með ýmsum hætti.
En eld þarf ég að hafa.
Hver vill
gefa mér
RONSON?
TILVALINN TIL TÆKIFÆRISGJAFAR
Adonis gas kveikjari
Empress gas kveikjari
Mig langar svo í einhvern af þessum
Milady gas kveikjari
Comet gas kveikjari
Til gefenda RONSON kveikjara: ÁfyUingin tekur
5 se:kúndur, og endist svo mánuöum skiptir. Og
kveikjarinn — hann getur enzt að eilífu.
RONSON
Einkaumboö:
I. Guðmundsson S Co. hl.
6. tbi. VIKAN 7