Vikan


Vikan - 05.02.1970, Page 31

Vikan - 05.02.1970, Page 31
PLATA MEB NÁTTÖRU En Óðmenn og Tilvera eru ekki einu hljómsveitirnár sem leika inn á plötu þessa dagana; í byrjun næstu viku verður hljóðrituð tveggja laga plata (tveggja laga plöturnar virðast ætla að „dóminera“ á markaðinum í ár) með hljómsveit- inni Náttúru. 'Annað lagið er erlent, og var leikið inn á plötu af Crimpson King undir nafninu „Tallc to the Wind“, en hitt er islenzkt og er eftir Björgvin Gíslason, gítarleikara liljómsveitarinnar. — Jónas Jónsson, hinn frábæri söngvari liljómsveitarinnar gerir textana við bæði lögin. Til aðstoðar piltunum verða svo hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit íslands — sem leika með i fyrra laginu, en þar leikur Björg- vin einnig á sítar. Þessi fyrsta plata Náttúru verður væntanlega komin á markaðinn í marz-apríl, en þeir hafa töluverðan hug á að fara til útlanda i sumar og leika þar inn á LP-plötu. Fálk- Náttúra: Myndin var tekin á popphátíðinni alræmdu í Laugardalshöllinni. Frá vinstri: Björgvin Gíslason, Jónas Jónsson, Rafn Haraldsson og Sigurður Árnason. inn hefur með hljómskífusýsl þeirra Náttúrudrengja að gera. En það sem vekur furðu okkar er það, að þeir í Náttúru þræta harðlega fyrir það að nokkrar mannabreytingar séu á döfinni hjá hljómsveitinni. * TILVERA ENNÞÁ TIL Þær sögur liafa gengið um undanfarið að liljómsveitin Tilvera sé hætt, en það er alls ekki rétt eins og sjá má af því að um þessar mundir vinnur hljómsveilin (ein þeirra sem stofnuð var úr rústum Hljóma og Flowers) að upptöku tveggja laga Iiljómplötu á vegum Fálkans. Auk þess vinna þeir félagarnir að sjónvarpsþætti sem væntanlega verður sýndur hráðlega. Á þessari plötu verða tvö lög, eins og fyrr segir, og eru bæði eftir gítarleikara hljómsveitarinnar, Axel Einarsson. Þegar þessar línur eru ritaðar hefur ekki verið lokið við gerð texta við lögin, en það er hinn góðkunni Þor- steinn Eggertsson sem sér um þá hlið málsins — rétl eins og texta flestra annarra platna sem koma hér út. Lítið hefur heyrzt frá Tilveru síðan í haust, og ekki nema von því þeir hafa aðeins komið tvisvar fram opinberlega síðan þá. í hæði skiptin var þeim vel tekið, en það er eitt- hvað sem aftrar því að þeir fái atvinnu. Við ræddum við Jóhann Kristinsson, bassaleikara liljóm- sveitarinnar fyrir skömmu og kröfðum hann sagna um þetta atvinnuleysi hljómsveitarinnar. „Ég veit vel,“ sagði Jóliann, „að fólk lítur á okkur þrjá sem „mislukkaða liljóðfæraleikara“, og það held ég að sé helzta ástæðan fyrir þessum vandræðum. Ég get ekki fallizt á það, og ég verð að segja fyrir mig, að nú erum við helm- ingi betri en við vorum þegar við byrjuðum í sumar — enda var hljómsveitin léleg þá. Ég er líka allsendis ófeiminn við að segja að það var litlum liluta hljómsveitarínnar að kenna hvernig var; álmgaleysið og kæruleysið var niðurdrepandi. Okkur hefur gengið mun betur síðari. Ef við náum okkur ekki upp á þessari plötu, þá erum við hættir. Þá þýðir þelta ekkert meira.“ Framhald á bls. 43 Tilvera: Engilbert Jensen, Axel Einarsson og Jóhann Kristinsson.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.