Vikan - 05.08.1971, Side 4
Wiither bríhiól
Þríhjólin vinsæiu alltaf fyrirliggjandi.
Einnig reiðhjól í öllum stærSum.
P0STURINN
Hrifin af strák, en ...
Elsku Póstur!
Ég vil byrja á því að þakka VIK-
UNNI fyrir allt gamalt og gott
— og einnig það nýja.
Þannig er málið vaxið að ég
er alveg ofsalega hrifin af strák
sem ég held að sé tveimur og
hálfu ári eldri en ég (er það
kannski of mikið?). Ég hef einu
sinni verið með honum og þá
skeði margt á milli okkar en
samt ekki of mikið.
Nú er hann farinn héðan úr
þorpinu og ég sit eftir með tár
á vanga. Mér finnst allt svo
tómt og eyðilegt framundan og
get ekki hugsað þá hugsun til
enda að sjá hann ekki aftur.
Ég þekki strák hér og veit að
þeir tveir hafa verið mjög góð-
ir vinir, enda var strákurinn
(sem ég er hrifin af) hjá honum
(hinum) á meðan hann var hér.
Ég veit allavega hvar hann býr
(strákurinn sem ég elska) og get
þessvegna skrifað honum.
En þá er það spurningin, hvort
ég á að þora það. Ég hef hringt
í hann og hann var ósköp vina-
legur við mig en samt ekki of
elskulegur. Hann á heima í 46—
48 kílómetra fjarlægð héðan og
ég gæti vel hitt hann, en ég
þori ekki að fara þangað ein.
Jæja, elsku Póstur minn, ég
vona að þú hjálpir mér í þetta
skipti með góðu svari, því ég
kaupi alltaf VIKUNA og les hana
spjaldanna á milli. Svo bið ég
þig fyrir kveðju til þess sem
nefnir sig „Bíógest" og þú mátt
segja honum að mig taki það
mjög sárt hvað við, „smástelp-
urnar", á aldrinum 14—16 ára,
þurfum oft ráð til að krækja
okkur í hinn og þennan gæj-
ann. Ein f ástarsorg.
Spurningin hvort tveggja og
hálfs árs aldursmunur sé of mik-
ill, veltur töluvert á því hvaS
þú ert gömul. Ef þú ert 14 ára
eSa 16 ára, getur aldursmun-
urinn veriS of mikill og hann
getur ekki veriS of mikill. ÞaS
veltur líka á þroska þínum —
andlegum og líkamlegum, þó
frekar andlegum.
Þú ættir að byrja á því aS tala
viS vin stráksins sem þú elsk-
ar og vita hvaS hann segir þér
— og gleyma ekki aS segja hon-
um aS þú ætlist til aS samtal
ykkar verSi trúnaSarmál. Ef
hann gefur þér enga von (og
ekki er víst aS hann geti sagt
þér nokkuS strax) skaltu gefa
strákinn upp á bátinn, því allt-
af má fá annaS skip og annaS
föruneyti. Annars skaltu reyna
aS nálgast hann, hringja aftur
í hann, heimsækja hann — eSa
reyna aS fá vin hans til aS fá
hann í heimsókn í þorpiS þitt.
104 kíló
Kæri Póstur!
Ég vona að þú birtir þetta fyrir
mig, því nú get ég ekki lengur
orða bundist. Hvað er að þess-
um laeknum hér á íslandi? Er
enginn sem tekur að sér að
grenna fólk? Ég er ekki að tala
um það fólk sem þykist vera of
feitt ef það er með 2—4 auka-
kíló utan á sér, heldur er ég að
tala um fólk sem er 20—40 kíló-
um of þungt.
Ég er 21 árs og á tvö lítil börn.
Ég er 35 kílóum of þung, en
enginn læknir virðist geta hjálp-
að mér. Ég var á Landsspítalan-
um í 2—3 vikur og þar var mér
hjálpað til að ná af mér 5—6
kílóum, en svo var það búið.
Þegar ég fór heim fékk ég eng-
ar leiðbeiningar um mataræði
eða læknishjálp.
Nú er ekki hægt að segja að
læknarnir séu ekki nógu marg-
ir eða að viljinn hjá mér sé
ekki fyrir hendi. Ég var í London
í 1 ár og var þá 30 kg. of þung.
Ég var strax tekin af heimilis-
lækninum og var hjá honum
einu sinni í viku; fékk meira að
segja þetta svokallaða „eitur-
lyf", amfetamín eða eitthvað
svoleiðis og það var ég með í
4 mánuði — og sá aldrei eftir
því. Þegar læknirinn í London
tók það af mér var ég komin
niður í 59 kíló og hélt mér
þannig þar til ég kom heim,
gifti mig og eignaðist blessuð
börnin mín. Þá fór ég að fitna
aftur. Ég hef reynt við alla lækna
sem mér hefur verið bent á, en
alls staðar fengið sama svarið
hjá aðstoðarstúlkum þeirra:
„Engin megrunarhjálp".
Ég hef fengið þessa megrunar-
bók, sem er ágæt, en kostn-
aðurinn er of mikill. Við höfum
hreinlega ekki bolmagn til að
fylgja henni.
Nú ætla ég að biðja þig að birta
þetta bréf í von um að lækna-
4 VIKAN 31. TBL.