Vikan - 05.08.1971, Blaðsíða 5
El
stéttin rakni við og sjái hversu
mikið óréttlæti þetta er. Það er
til mikið af feitu fólki sem (
raun og sannleika þarfnast
hjálpar.
Ef einhver læknir skyldi fá á-
huga á að hjálpa mér við lestur
þessa bréfs, viltu þá vera svo
vænn að gefa honum address-
una mína, en ekki birta nafn
mitt og heimilisfang.
Ein 104 kg.
Undarleg og jafnvel ótrúleg
þykir okkur saga þín og enn-
þá ótrúlegra þykir okkur að eng-
inn læknir VILJI hjálpa þér. En
fleira er til en bara læknar:
Megrunarleikfimi og eitt og ann
að í þeim dúr. Svo erum við
með spurningu: Borðar þú bara
ekki of mikið?
En við teljum það heiður fyrir
okkur að birta þetta bréf og
viljum endilega birta allar þær
upplýsingar sem lesendur kynnu
að hafa — og ekki sízt upplýs-
ingar læknastéttarinnar.
Gluggaskreytingar
Elsku Póstur!
Eg ætla að byrja á því að þakka
þér fyrir allt gamalt og gott.
Mig langar að biðja þig að svara
nokkrum spurningum. Ég er
orðin svo aðframkomin af for1-
vitni, að ég get ekki dregið
lengur að skrifa þér og biðja
þig ásjár:
1. Hvar getur maður lært glugga
skreytingar?
2. Er hægt að læra það hér á
landi?
3. Hvað er námstíminn langur?
4. Þarf maður að sýna einhverj-
ar teikningar ef maður vill læra
auglýsingateiknun í Myndlista-
og handíðaskólanum?
5. Hvaða menntun þarf maður
til að komast inn ( skólann?
Viljið þið svo birta grein um
Bahá'í trúna? Svo bið ég að
heilsa öllum hjá VIKUNNI,
Ein spurul á Selfossi.
Gluggaskreytingar mun ekki
vera hægt að læra hér á landi,
en margir íslenzkir glugga-
skreytingarmenn og konur hafa
fariS til Danmerkur, þar sem
nokkrir slíkir skólar eru starf-
andi. Mjög mismunandi mun
vera hversu langt námiS er, allt
frá þriggja mánaSa námskeiSi
og upp í þriggja ára skóla. Al-
gengast mun þó vera aS sækja
skólann (dagskóla) i 9 mánuSi.
Rétt til inngöngu í forskóla
myndlistardeildar Myndlistar- og
handíSaskólans (2 ár og síSan
val: Auglýsingateiknun) veitir
landspróf miSskóla, gagnfræSa-
próf eSa hliðstætt próf meS
þeirri einkunn, sem stjórn skól-
ans metur gilda. Þó ráða list-
rænir hæfileikar mestu um inn-
göngu í skólann. ViS umsókn
um inngöngu í skólann skal
hver umsækjandi leggja fram
teikningar og myndir er hann
hefur sjálfur gert.
Við höfum birt grein um Bahá'i
trúna og sjáum ekki ástæðu til
að gera það aftur, þrátt fyrir
þann mikla áhuga sem Seals og
Crofts vöktu upp. ÞaS biSja all-
ir að heilsa á móti. Svo gætir
þú reynt að skrifa þessum skóla,
sem kennir gluggaskreytingar í
Danmörku, og biðja um nánari
upplýsingar um þaS nám:
Bergenholts Dekoration Skole
Rosenborggade 15,
Köbenhavn K, Danmark.
Ölafía
Virðulegi Póstur!
Það er margt búið að ræða og
rita um nýju rlkisstjórnina og
eiginlega var ég búinn að ein-
setja mér að skipta mér ekkert
af þeim umræðum. Nú get ég,
því miður, ekki lengur staðist
þetta og langar til að biðja þig,
Póstur sæll, að koma þeirri á-
skorun til þjóðarinnar, að gefa
ríkisstjórninni vinnufrið til að
byrja með. Mannagreyin eru víst
ekki búnir að átta sig almenni-
lega á því sem er að ske. En svo
er ég með spurningu: Hvaðverð-
ur gert við álverið í Straumsvík
eftir að helzti andstæðingur frá-
farandi ríkisstjórnar í málefnum
hennar er seztur í valdastólinn?
Páll.
Það er ekki nema sjálfsagt að
koma þessari áskorun áleiðis, en
varðandi framtið álversins höf-
um við ekkert séð um neinar
breytingar. Þó ætti varla að
standa lengi i iðnaðarmálaráð-
herra að koma upp hreinsitækj-
um í verksmiðjuna.
NÝ HLJÓMPLATA
Krístín og Helgi
á nýrri tólf laga liljómplötu, sem er hljóðrituð í
stereo.
Lögin eru innlend og erlend jtjóðlög og lög í jtjóð-
lagastíl.
Hin kunna söngkona Kristín Ólafsdóttir og Helgi
Einarsson (sem áður var i Þremur á palli) hafa
sungið saman undanfarnar vikur og viða komið
fram við miklar vinsældir, — og á jsessi vandaða
hljómplata eflaust enn eftir að auka við vinsældir
þeirra, j>vi söngur þeirra á plötunni cr með þvi
hezta, sein jiau hafa gert.
SG-hljómplötur
mmm lotio h
iwm
mormm *■smm-
wmvgw
«í "í w'l 4 va..
Sólbrnn án
snlbruna
John
Lindsav ht.
SÍMI 26400
31.TBL. VIKAN 5