Vikan - 05.08.1971, Side 6
Louis Armstrong varvan-
ur að segja, að þegar
hann kæmi til himna-
ríkis, myndi hannleika
dúett með erkienglinum
Gabríel. Og það er víst að
sjálfur Gabríel hlýtur að
hafa öfundað Louis af
krystaltærum hljóminum
úr gulltrompettinu. Kringl-
ótta andlitið var velkomið
livar og hvenær sem var í
heiminum og sjálfsagt var
Louis Armstrong frægari
en nokkur annar maður af
hans kynþætti. Hann var
tónlistarsnillingur semvarð
jafnvel ennþá frægari sem
söngvari. Meira að segja sú
staðreynd að rödd lians var
áþekk gömlu, ryðguðu
kerruhjóli á leið upp brekku
breytti engu. Þjóðsagnaper-
sónur þurfa ekki gullradd-
ir.
Skyndilegur dauði Louis
Armstrong, tveimur dögum
eftir 71. afmælisdag hans,
kom óvænt og vakti hvar-
vetna mikla hryggð. í marz
var hann svo veikur, að
enginn bjóst við að sjáhann
aftur á lífi, en Louis spjar-
aði sig og skömmu fyrir
dauða sinn hélt hann blaða-
mannafund og tilkynnti þar
DÚETT
MED
GABRÍEL
Mesti jazzleikari í heimi,
Louis Arm&trong, lézt hinn 7. júlí, sl. Með honum er
genginn mikill persónuleiki og heilt
tónlistarsvið.
ÁriS 1960 fór Louis Arm-
strong meS „The All
Stars" til Kongo og
lék þar fyrir 100.000
manns, á vegum utanrík-
isráSuneytis Banda-
ríkjanna.
að hann ætlaði að fara að
byrja aftur af miklum
krafti. Dauðdagi lians, sem
var hjartaáfall, — endaði
feril sem náði yfir öll stig
jazzins. Louis byrjaði að
leika jazz þegar sú tónlist-
artegund var mjög ung og
varð fyrsta jazzstjarnan í
heiminum. Ifver sá hljóð-
færaleikari sem nokkru
sinni lék með honum, varð
nær samstundis frægur.
Þegar jazzinn var aðfæð-
ast, var engin tónlist til sem
hægl var að kalla banda-
ríska. Að visu voru til ball-
öður, þjóðlög og fleira sem
hægt var að kalla amerískt,
en höfundarnir voru allir
af evrópsku bergi brotnir.
En i New Orleans var í
deiglunni undarlegt sam-
bland af afrískri, spænskri,
franskri og þýzkri tónlist,
sem síðar varð jazz. Tón-
list blökkumannanna frá
Afriku hafði orðið fyrir á-
hrifum af kirkjutónlist og
]tannig var hún sungin á
bómullarekrunum, til að
gera lif þrælsins bærilegt.
Og um aldamótin 1900, i
skipaskurðum og hóruliús-
um New Orleans, varð þessi
tónlist að jazz.
6 VIKAN 31.TBL.