Vikan - 05.08.1971, Qupperneq 9
Nokkur ártöl úr ævi
Louis Armstrong
1900:
Fæddist í Jane Alley, New Orleans
í Louisiana.
1910—14:
Söng tenór í kvartett drengja í ná-
grenninu. Handtekinn eftir að hafa
hleypt af skammbyssu á götu úti.
Var í rúmt ár á heimili fyrir vand-
ræðadrengi. Fékk tilsögn í hljóð-
færaleik hjá Peter Davis og Joseph
Jones.
1915—17:
Vann ýmsa vinnu: Var mjólkur-
drengur, sorphreinsari, hafnarverka-
maður og fleira. Spilaði alltaf við og
við í og í kringum New Oreleans
með Sam Dutrey's Band, Allen's
Brass Band og fleirum. Var fast-
ráðinn í klúbb Henry Matranga.
1918:
Leysti kennara sinn, King Oliver,
af hólmi í hljómsveit Kid Ory.
Byrjaði að leika með Fate Marable
um borð í skemmtiferðabátum á
Mississippi. Giftist og skildi við Daisy
Parker — hávaðasamt hjónaband.
1919—22:
Fór frá New Orleans í maí 1919 til
að spila með Fate Marable um borð
í bátum sem sigldu frá St. Louis.
Var stöðugt með Fate þar til í sept-
ember árið 1921. Þá fór hann aftur
til New Orleans og lék með Zutty
Singleton og í skrúðgöngum með
Allen's Brass Band, The Silver Leaf
Band og Papa Celestin. Fastráðinn
í Tom Andersen's Club. Fór frá
NO sumarið 1922 til að spila með
King 01iver‘s Creole Jazz Band í
Chicago.
1923—24:
Lék inn á sína fyrstu plötu (sem
ineSlimur í hljómsveit Olivers) í
marz 1923 og giftist píanóleikaran-
um Lillian Hardin i fehrúar 1924.
Spilaði um stund með trommuleik-
aranum og söngvaranum Ollie Pow-
ers áður en hann gekk í lið með
Fletcher Henderson í New York.
1925—26:
Upptökur með Clarcnce Williams
og Bessie Smith í New York. Hætti
hjá Fletcher í nóvemher 1925 og
byrjaði að spila inn á plötur undir
eigin nafni í Chicago. Lék um tíma
í Lil Armstrong's Dreamland Syn-
copators og siðan stöðugt með
tveimur hljómsveitum i Chicago —
Carroll Dickerson's Orchestra
Sunset Café og Erksine Xate‘s
Orchestra í Vcndome Thcatre. —
Kynntist Joe Glaser i Sunsct Café.
1927—28:
Var hljómsveitarstjóri í eigin hljóm
sveitum (sem spiluðu eingöngu inn
á plötur), The Hot Five og The Hot
Seven. Var einnig með eigin „Stom-
pers“ í Sunsct Café undir stjórn
Earl Hines. Stöðug vinna með Erk-
sine Tate og Clarence Jones. Gekk
aftur í lið með Carroll Dickerson
marz 1928.
Framhald. á bls. 44.
í þessu húsi lék Louis Arm-
strong fyrst opinberlega,
heima í New Orleans.
Þá var hann aðeins 15 ára
gamall.
Gömul mynd af „Joe King
Oliver & His Creole
Jazz Band".
Louis er aftast fyrir miðju.
Á jazzhátiðinni í Newport árið 1957 var
Louis nefndur „Konungur jazzins". Þessi
mynd er þaðan.
Þessi mynd var tekin af Louis
17 ára gömlum og er hann hér
með móður sinni, Mary Ann og
systur, Beatrice.
31. TBL. VIKAN 9