Vikan - 05.08.1971, Qupperneq 14
GULLRÆNINGJARNIR
THE GOLD ROBBERS”
V næsta mánuði hefur sjónvarpið sýningar á
brezkum framhaldsmyndaflokki frá London
Weekend Television, sem ber þetta heiti. Hér
segir VIKAN frá þessum þáttum, 13 alls, í
máli og myndum.
Maúnorgun í London árið 1967. Tveir ungir menn komu inn á
bar á Farringdon Road, settust, brostu til gengilbeinunnar, báðu
um bjór og dagblöð og sökktu sér niður í hvorutveggja. Þeir
töluðu ekkert saman en horfðu út um gluggann við og við.
Blár sendiferðabíll kom hægt niður götuna og bílstjórinn rak
höfuðið út um gluggann til að leita sér að stæði meðal vöru- og
sendiferðabílanna á þröngu strætinu. Fastagestirnir voru að byrja
að ltoma á barinn og gengilbeinan tók ekki eftir því þegar menn-
irnir tveir hurfu út um dyrnar og veifuðu laumulega yfir götuna.
Blái sendiferðabíllinn var að fara með gull frá Englandsbanka
til Mocatta & Goldsmid á Thorgmorton Street. Verðmæti farms-
ins var £ 711.448, eða nær 150 milljónir íslenzkra króna. En
áður en bíllinn skilaði af sér gullinu þurfti að koma nokkrum
kílóum af silfri til skartgripasalans beint á móti barnum á Farr-
ingdon Road.
Þegar einn vörðurinn úr bláa bílnum stökk út til að skila silfr-
inu til réttra viðtakenda, stukku tveir menn á hann — mennirnir
af barnum — og hentu honum inn í svartan sendibíl við hliðina.
Síðan gengu þeir inn um hliðið og bönkuðu tvisvar á þungu
eikarhurðina — rétt eins og sendimenn Englandsbanka höfðu átt
Peter Vaughan í hlutverki Cradocks yfirleynilögregluforingja.
að gera — og um leið var lokið upp fyrir þeim. í dyrunum stóðu
tveir menn, sérstakir öryggisverðir sem Englandsbanki hafði út-
vegað skartgripasalanum, og um leið og dyrnar höfðu opnast nóg
og þeir bjuggust við að fá silfrið í hendurnar, tóku mennirnir
tveir upp brúsa með taugadeyfandi gasi og hentu framan í verðina.
Síðan var þeim troðið í sinn eigin bíl og keyrt af stað. í dauðans
ofboði. Öll árásin og ránið fór fram með slíkum hraða og ná-
kvæmni, að enginn í nágrenninu tók eftir nokkru. Um leið og
beygt var fyrir næsta horn var búið að binda mennina þrjá á
höndum og fótum og líma sterkan plástur fyrir munninn á þeim ...
Frásagan hér að framan er sönn og ennþá hefur ekki tekizt að
hafa upp á ölíum ræningjunum og ekki nema örlitlum hluta
gullsins. En leitinni er haldið áfram og Scotland Yard er með
allar klær úti við að reyna að ná mönnunum. Leitin er sögð jafn
víðtæk og umfangsmikil og leitin að lestarræningjunum frægu.
Sjónvarpsþættirnir „Gullræningjarnir“ eru byggðir að sögn, á
þessu ráni. Nánar tiltekið fjallar framhaldsmyndaflokkurinn frá
London Weekend Television um þetta:
Flugvél lendir á Westmarsflugvelli, sem er í einkaeign. Farmur
vélarinnar er gullstangir að verðmæti 5.5.000.000 sterlingspund,'
eða 1155 milljónir íslenzkra króna. Mjög strangur öryggisvörður
er alft í kringum vélina og bíður þess að geta affermt hana og
flutt gullið yfir i Englandsbanka. En í nágrenninu eru óvæntir
gestir — í hæsta máta óvelkomnir. Áður en nokkur veit af, hefur
sagan frá Farringdon Road endurtekið sig. Mitt í allri ringulreið-
inni tekst einum lögreglumanni að komast undan ræningjunum,
en það varir ekki lengi og eftir átök við tvo af ræningjunum
Framhald. á bls. 36.
Tveir helztu skúrkarnir, Oscroft og Anderson, leiknir af Bernard Hepton
og Frederick Bartman.