Vikan - 05.08.1971, Síða 17
magnstæki, sem við fengum í brúðkaupsgjöf, svo sem
hrærivél, steikarpanna, bónvél, fataþurrkari og jafnvel
dósahnifur. Það mætti kalla okkur tveggja bíla fjöl-
skyldu. Við áttum að jafnaði völ á að ferðast með gamla
óslítandi vörubílnum hans Batistes, eða á sleðanum, sem
dreginn var af grænlenzku hundunum okkar fjórum.
Síðastliðinn vetur lögðum við okkur til „skidoo“ (eins
konar vélsieða á skíðum) og við eigum áfram hundana
okkar til vara. Til sumarsins höfum við fengið 42 feta bát.
Rankinflói liefur verið eins konar peningagjá i Kee-
watinhéraði og öðlaðist þá heppilegu aðstöðu, þegar
mikið magn af nikkelmálmi fannst þar í klettunum.
Nikkelvinnslan þar var fyrsti iðnaðurinn á Norðursló^
um, sem nbtaði Eskimóa engu siður en hvíta menn við
vinnsluna. Sumir beztu námumennirnir fengu allt upp í
650 dollara laun á mánuði.
Fyrir nokkrum árum var námunni lokað, og starfslið
og áhöld flutt suður. Að jafnaði voru um 600 manns i
Rankin, 500 Eskimóar og 100 hvítir menn. Nú eru þar
um 450 manns.
Símasamband okkar er þannig gert, að hermanna-
símastrengur er lagður á milli um það bil tólf heimila
og skrifstofa. Símskeyti eru send þráðlaust, þegar góð
skilyrði eru. Næsta sjónvarpstæki er í sjötta húsi frá
okkur — Hudsonflóafélagið hérna á eitt slíkt tæki — en
þarnæsta tæki er í mörg hundruð mílna fjarlægð. Þegar
maður hefur vanizt því, að áætlunarvélin komi með póst-
inn jafnskjótt og veðurskilyrðin leyfa, en biðtíminn get-
ur verið allt að tvær vikur, þá finnst manni Rankin alls
ekki svo mjög afskekktur staður. I litla en kraftmikla
stuttbylgju útvarpstækinu okkar, getum við heyrt bítla-
tónlist frá Winnipeg, Eskimóaútvarp frá Grænlandi og
enskt útvarp frá Moskvu.
í Rankin koma menn á öllum timum dagsins. Húsið
okkar er eins og járnbrautarstöð — þar er alltaf einhver,
sem á leið um í verzlunarerindum eða að fara í heim-
sókn. Mæður sinna börnum sínum i stofunni hjá okknr.
Ungir piltar koma með vinkonur sinar og rafmagns-
gitara til þess að draga sig svolítið eftir þeim án vit-
undar fjölskyldunnar.
Laugardagskvöldin eru skemmtikvöld í Rankin. Fyrst
tökum við um stund þátt í ferdansi Eskimóa, sem fram
fer í skóla stjórnarinnar, og er ég venjulega eina hvíta
manneskjan i salnum. Því næst förum við og leikum
bingo í félagsheimilinu. En venjulega endum við kvöld-
Frwmhald á bls. 33.
31.TBL. VIKAN 17