Vikan - 05.08.1971, Side 20
ímbmmmmm
ÍiÉlÍiliÍip!::::
í-iiáííiíwxvivivííiýi'
9
^lipllililllll
LJMlMlliMMj
:
Tilgangur hljómleika Ævin-
týris við Árbæjarsafnið í
Reykjavík þann 11. júlí, sl.,
var nokkuð margþættur. Mest
áherzla var þó lögð á að þarna
gæfist ungu fólki kostur á að
sanna fyrir því eldra, að ungt
fólk gæti komið saman á rokk-
hljómleika án þess að allt færi
í hund og kött. Það tókst —
eftirminnilega, enda væri það
ljóta ástandið ef slíkt væri ekki
hægt. Þá gætum við ekki leng-
ur kennt foreldrum okkar um.
Þetta voru góðir hljómleik-
ar — loks þegar þeir voru
komnir af stað. Auglýst hafði
verið að hljómleikarnir byrj-
uðu klukkan 14.30, og þá
myndi Siggi Garðars vera með
diskótekið í hálftíma. Það gekk
allt samkvæmt áætlun, en
klukkan þrjú voru enn ýmis-
legar bilanir í söngkerfi hljóm-
sveitarinnar, svo ekki var hægt
að byrja þá. Á þeim tíma voru
að minnsta kosti 3000 manns
í Árbæ, en þegar ekki var byrj-
að á réttum tíma fór fólk að
tínast burtu. Veðrið hafði nátt-
úrlega sitt að segja líka; kalt
var og næðingur, en hefði ver-
ið gott veður hefði þessi bið
ekkert gert til.
Loks var þó tilkynnt, að nú
myndi Björgvin Halldórsson
syngja nokkur lög eftir sjálfan
sig og spila sjálfur undir á gít-
ar. Þeir sem voru fremstir
heyrðu hvað Biörgvin söng, en
aðrir ekki. Einhversstaðar í
allri magnara- og hátalara-
hrúgunni var takki sem ekki
sneri alveg rétt — og það án
þess að nokkur vissi af, svo
kerfið gaf ekki fullan styrk.
Eins blés vindur af krafti og
um leið og gerð var tilraun til
að hækka kerfið ýlfraði og
hvein í öllu saman.
Eftir að Björgvin hafði lok-
ið sér af (þeir sem voru fremst-
ir í áheyrendahópnum, voru
ánægðir með lög Björgvins og
er það engin furða) komu hin-
ir inn á og meiningin var að
halda kassagítaraprógramminu
áfram. Ekki gekk það neitt bet-
ur í þetta skiþti, svo að á end-
anum var hætt við allt saman,
rafmagnsgræjunum komið upp
á mettíma og byrjað með
brumandi þungri rokkmúsík.
Eg hef ekki hugsað mér að
fara nánar út í að lýsa hlióm-
leikunum og hveriu einstöku
lagi, en get þó ekki látið hjá
Þessi mynd sýnir hluta mann-
fjöldans sem kom í afmælisveizlu
Ævintýris í Árbæ.
(Ljósm: Ómar Valdimarsson.)
20 VIKAN 31.TBL.