Vikan - 05.08.1971, Side 22
SINIPLICITY SNIÐA-
ÞJÓNUSTA VIKUNNAR
Sniöin má kaupa annaö hvort með því aö
koma á afgreiðslu blaðsins aö Skipholti 33
eöa útfylla pöntunarseöilinn á bls. 36 og
láta greiðslu fylgja í ávísun, póstávísun
eða frímerkjum.
SNIÐ NR. 24 (9574)
í þessum pakka er skyrtublússa eða jakki með löngum
ermum, kraga og vösum. Einnig fylgja með stuttar buxur
og hnésíðar buxur. Athygli skal vakin á því, að ef um
munstrað efni er að ræða þarf meira efni en venjulega,
svo að munstrið standist á. Þetta snið er til í stærðunum
3G—42.
VERÐ KR. 175 (MEÐ PÓSTBURÐARGJALDI 189 KR.)
MÁL:
Stærð 36 38 40 42 cm.
Yfirvídd 83 87 92 97 cm.
Mittisvídd 61 65 69 74 cm.
Mjaðmavídd, 23 cm fyrir neðan mitti 88 91 97 102 cm.
Baksídd frá hálsmáli niður að mitti 40.5 41.5 42 42.5 cm.
VIKAN k/nnir fyrstu-[
deildarlið í knattspyrnu
í þetta skipti eru það tvö knattspyrnufélög
utan af landi sem við kynnum í Knattspyrnu-
kynningu VIKUNNAR, fþróttabandalag
Akraness (ÍA) og Ungmennafélagið Breiða-
blik í Kópavogi (UBK) venjulega kallað
Breiðablik.
AKRANES
Iþróttabandalag Akraness leit dagsins Ijós fyrir 25 árum síðan, og
hefur velgengnin verið upp og niður síðan þá, en á „Gullaldarár-
unum" svonefndu, 1950—60, átti félagið mikilli velgengni að fagna
og persónulegar vinsældir leikmanna voru nær ótrúlegar. Allir litlir
strákar vildu vera eins og Rikki og Donni og Svenni. Á þessu tíma-
bili urðu Akurnesingar 6 sinnum íslandsmeistarar en síðan duttu
þeir niður í aðra deild. Liðið hóf sig þó upp aftur, skipað nýjum
og yngri mönnum og á síðasta ári, 1970, varð ÍA íslandsmeistari
í sjöunda sinn. í liðinu eru nú einir 6 eða 7 menn sem hafa leikið
með landsliði, en formaður ÍA er Óli Örn Ólafsson. Formaður knatt-
spyrnuráðs er Sigurður Ólafsson, gjaldkeri Eiríkur Þorvaldsson og
ritari einn af gullaldarmönnunum, Þórður Árnason.
LIÐIÐ:
Fremri röð frá vinstri: Jón Alfreðsson, Jóhannes Guðjónsson, Jón
Gunnlaugsson, Davíð Kristjánsson, Pétur Hallgrímsson, Friðþjófur
Helgason og Teitur Þórðarson.
Aftari röð frá vinstri: Guðjón Jóhannsson, Eyleifur Hafsteinsson,
Hörður Jóhannesson, Björn Lárusson, Andrés Ólafsson, Haraldur
Sturlaugsson, Matthías Hallgrímsson, Þröstur Stefánsson og Magnús
Kristjánsson, þjálfari.
BREIÐABLIK
Félagið í Kópavoginum hélt upp á 20 ára afmæli sitt á sl. ári, en
það var stofnað 12. febrúar, 1950. Voru þá margvísleg hátíðahöld
og m.a. lék lið félagsins við nýbakaða íslandsmeistara, ÍBK. í lið-
inu er nú einn maður sem hefur leikið með landsliði, Guðmundur
Þórðarson. Breiðablik leikur nú í sumar í fyrsta sinn í 1. deild og
hefur liðið staðið sig vel. Formaður UBK er Gestur Guðmundsson,
en formaður knattspyrnudeildar er Páll Bjarnason; ritari er Jakob
Hólm Hermannsson og gjaldkeri Þórir Arngrímsson.
LIÐIÐ:
Fremri röð frá vinstri: Hreiðar Breiðfjörð, Guðmundur H. Jónsson,
fyrirliði, Gissur Guðmundsson, Ólafur Hákonarson, Magnús Stein-
þórsson og Bjarni Bjarnason.
Aftari röð frá vinstri: Sölvi Óskarsson, þjálfari, Trausti Hallsteinsson,
Ríkharður Jónsson, Sigurjón Valdimarsson, Þór Hreiðarsson, Einar
Þórhallsson, Helgi Helgason, Guðmundur Þórðarson, Haraldur Er-
lendsson og Páll Bjarnason, formaður. Á myndina vantar Steinþór
Steinþórsson.
22 VIKAN 31.TBL.