Vikan - 05.08.1971, Blaðsíða 24
FYLLTIR
TÓMATAR
Dröfn H.
Farestveit
TOMATAR
MEÐ SPÆGIPYLSU-
SALATI
Spægipylsa skorin í fína strimla,
blandað með söxuðu selleríi.
Lok er skorið af tómötunum.
Síðan er mayonessi blandað
saman við spægipylsuna og sell-
eríið og tómatarnir fylltir með
þessu. Fyrir 4, má reikna með
4 tómötum 100 gr. spægipylsu
og 1—2 dl. af rifnu selleríi.
TÖMATAR MEÐ SÍLD
OG KARTÖFLUM
Skerið lok af tómötunum og
Fiolið þá út. Setjið 2—3 þunnar
sneiðar af kaldri soðinni kart
öflu í Fivern tómat. Þeytið dá-
lítinn rjóma, blandið saman við
súrmjólk og bragðið til með pip-
arrót. Setjið síðan 2 sneiðar af
gaffalbitum á Fivern tómat. —
Skreytið með dilli. Merjið síðan
Fiarðsoðna eggjarauðu í gegn
um sigti yfir.
TÖMATAR MEÐ
RÆKJUSALATI
Rækjur, baunir og soðin Firís-
grjón blandað saman við may-
onesse. Fyllt í útfiolaða tómata.
Fyrir 4 tómata má reikna með
200 gr. rækjur, 1 dl. soðin Firís-
grjón og Ví dl. af baunum.
TÓMATAR MEÐ
KRABBASALATI
Innmaturinn tekinn úr og fyllt
með krabba, sem blandað er
með mayonesse, sem bragðað
er til með sítrónu. Fyrir 4 tóm-
ata má reikna með 1 dós af
krabba, 1 dl af mayonesse sem
blanda má með þeyttum rjóma
eða súrmjólk og 4 msk. af dilli.
TÖMATAR MEÐ
MAISSALATI
Maiskorn úr dós eru notuð og
látið renna vel af þeim. Steikið
flesk og púrru skorna í Firingi,
blandið saman við mayonesse,
sem bragðað er til með sinnepi.
Fyrir 4 tómata má reikna með
2 dl. af mais, 4—6 sn. af fleski
og ca. 3 msk af púrru.
TÖMATAR MEÐ
SVEPPUM
Steikið sveppi í smjöri, blandið
saxaðri steinselju saman við. —
Kryddið mayonesse með Fivít-
lauksdufti og blandið þessu
saman. Fyrir 4 tómata má reikna
með 200 gr af sveppum og ca.
4 msk. af saxaðri steinselju.
24 VIKAN 31. TBL.