Vikan - 05.08.1971, Blaðsíða 25
eldhús
vikunnar
Fylltir tómatar eru
alltaf skrautlegir
oggeta verið sem for-
réttir, heitt
grænmeti með
öðrum réttum og
smáréttur, '
jafnvel einn sér.
OSTBAKAÐIR
TÖMATAR
I hvern tómat er sett spínat,
sem suðan hefur verið látin
koma upp á, ca. 2 msk. í hvern,
smiörbiti og 1 msk. af rifnum
osti. Þar á ofan er sett hrá
eggjarauða sem þakin er með
rifnum osti. Tómatarnir eru síð-
an bakaðir í 5—10 mínútur
við 250°.
TÖMATAR MEÐ
EGGI
Holið út frekar fasta tómata.
Stráið að innan með salti og
pipar. Brjótið hrátt egg ofan í.
Það kemst nú að öllum líkind-
um ekki heilt egg í hvern, en
það bezta er nú rauðan. Setjið
í smurt eldfast fat og bakið í
ofni við 225° eða þar til eggið
er stífnað, en alls ekki lengur.
Ristað brauð borið með. Einnig
getið þér prófað þetta brauð:
Skerið franskbrauð í sneiðar, en
ekki alveg niður, þannig að það
hangi saman á skorpunni. Smyrj-
ið blöndu af hvítlaukssalti og
smjöri inn á milli hverrar sneið-
ar, og látið brauðið standa ! ofn-
inum, þar til það er stökkt.
TÖMATAR MEÐ
SARDÍNUFYLLINGU
Fíntsaxið 3 harðsoðin egg og
6—8 sardínur og blandið með
4 msk. af fíntsöxuðum lauk og
mikilli steinselju. Blandið þessu
saman við mayonesse eða þeytt-
an rjóma eða hvorttveggja. —
Bragðið til með sinnepi og olíu
af sardínunum.
TÖMATAR MEÐSÍLD
Holið út tómatana og setjið síld-
arbita á botninn. T.d. kryddsíld.
Þeytið rjóma og blandið með
súrmjólk. Bragðið til með klippt-
um graslauk. Skreytið síðan með
kryddsíldarbitum og berið tóm-
atana fram á salatblöðum.
LAUGARDAGS-
RÉTTUR
Takið tómata, 6 stóra eða 12
minni. Holið þá út. Þerrið að
innan með eldhúspappír. Utbú-
ið síðan salat úr: 1 dl. af fínt-
rifnu selleríi, 1 stórt epli skorið
í teninga. 100 gr. agúrka, dá-
lítið af sýrðri agúrku, kjötaf-
gangur, s.s. kjúklingur, hæna
skinka, eða eitthvað annað gott
kjöt. Skerið í teninga. Blandið
saman með 100 gr. af mayon-
esse sem blandað er með V2—1
dl. af stífþeyttum rjóma og
bragðað til með sítrónu og sinn-
epi eða Italian Seasoning. Sker-
ið salatblöð í fína strimla og
setjið tómatana á það þegar bor-
ið er fram.
UR
ENSKU
ELUHÚSI
WELSH RAREBIT
Þennan rétt tekur u.þ.b. 10—15
mínútur að útbúa og er borinn
fram með öli, tei eða rauðvíni.
4 sneiðar ristað brauð
200 gr. rifinn ostur, (sterkur)
salt, pipar
sinnep, worchestersósa
1/2 dl. öl.
Osturinn er hitaður í ölinu í
þykkbotna potti, við vægan hita.
Kryddið þegar osturinn er al-
veg orðinn bráðinn. Ostamass-
anum skipt á brauðsneiðarnar
og bakað í ofni við 250—275°
í nokkrar mínútur, þar til ost-
urinn fer að fá lit, en hann á
ekki að brúnast. Berið fram
strax og rétturinn hefur verið
tekinn úr ofninum.
31. TBL. VIKAN 25