Vikan - 05.08.1971, Side 36
og líkamlega og á öllum sviS-
um. Ég þurfti að eignast mann
með sterka skapgerð. Og ég var
heppin. Ég fann hann.
Einstöku hluta sakna ég hér,
svo sem salata, að geta stöku
sinnum farið í samkvæmi og ef
til vill að geta valið úr vörum
í stórverzlun í stað þess að gera
alltaf innkaup eftir verðskrá.
En heimþrá fæ ég aldrei, því
að hér á ég heima.
GULL-
RÆNINGJARNIR
Framháld aj bls 14.
lætur hann lífið. Athygli heims-
pressimnar beinist að yfirleyni-
lögregluforingjanum Cradock,
sem hefur fengið málið til með-
ferðar. (Þættirnir greina síðan
frá viðureign Cradocks við ræn-
ingjana og sýna þeir hvernig
hann nær þeim, einum á eftir
öðrum, þannig að þótt þættirnir
séu í framhaldsformi, fjallar
hver þeirra um nýja viðureign).
Cradock setur upp bráða-
birgðaskrifstofu á Westmarsh-
flugvelli og hefur rannsókn
þessa umfangsmikla máls. Hann
byrjar á að jrfirheyra Derek
Hartford, flugumsjónarmann-
inn sem var á vagt þetta af-
drifaríka kvöld. Cradock sann-
færist um að Hartford hafi tek-
ið þátt í ráninu þegar hann
kemst að því að hann hafði í
hyggju að flytjast til Ástralíu.
Næsti maður sem Cradock
nær, er Freddy Lamb, skyttan
sem skaut á og sprengdi upp
lögreglubílinn á meðan á ránlnu
stóð.- Þegar elskhugi konu
Lambs finnst myrtur, skotinn,
þarfnast Cradock ekki frekari
vitna við.
Barry Porter, maðurinn sem
truflaði talstöðvarþjónustu lög-
reglunnar á meðan ránið var
framið, breytir um nafn. Hann
er skyndilega orðinn starfsmað-
ur olíufélags í fríi og eyðir eins
og berserkur sínum hluta pen-
inganna í þeim tilgangi að kom-
ast yfir konu, ríka og fráskilda.
En áður en nokkuð verður al-
varlegt, gerir hann sér grein
fyrir vonleysi slíks hjónabands
og stingur hana af. Um leið og
hann fór, tók hann þó með sér
— sennilega af gömlum vana —
sígarettuveski hennar. Það voru
mikil mistök, eins og kemur
fram síðar.
Cradock nær í Josef Tyzack,
manninn sem henti ammoníaki
framan í lögregluþjón á ráns-
staðnum, með þeim afleiðingum
að sá síðarnefndi blindaðist. En
Tyzack er ekki fyrr kominn í
fangelsi, en hann hittir þar
á glæpaflokk, sem á sér það
eitt takmark að komast yfir þau
30 þúsund pund sem Tyzack
fékk fyrir hlutdeild sína í rán-
inu. Þeir hjálpa honum að flýja,
undir því yfirskyni að flóttinn
sé skipulagður af Gullræningj-
unum, en síðar, þegar allur
flokkurinn finnst myrtur, sann-
færist Cradock um að Gullræn-
ingjarnir hafi staðið að baki
morðunum — og hann verður
himinlifandi yfir því að þar
með hljóti þeir að vera ennþá í
landi.
Peter Conroy, bílstjóri bíls
ræningjanna í gullráninu, flýr
til Austurríkis — og öryggis —
og skilur konu sína eftir handa
lögreglunni, pressunni og henn-
ar eigin örvæntingu. Ef þún
framselur hann, er það þá vegna
hans? Því hún elskar hann —
eða hatar hann ...
Flugmaður vélarinnar sem
flutti gullið til Englands, Tom
Goodwin, hefur loksins efni á
því að kaupa hótel handa unn-
ustu sinni, en um það hafði
hana alltaf dreymt. En þegax
hún kemst að því hvar hann
fékk peningana — á brúðkaups-
nóttina sjálfa — hendist hún út
og Tom situr einn í stóra hótel-
inu... til að bíða eftir Cradock,
sem ekki lætur á sér standa.
Leitin að forsprökkunum í
ráninu hefur tekið Cradock
lengri tíma en hann hafði bú-
izt við. Einkalíf hans er í mol-
um og hann gerir þau mistök
að ætla hlut Eddie Makin í rán-
inu minni en efni stóðu til.
Eddie er smáglæpamaður og
grunaður um að hafa útvegað
gullræningjunum talstöðvar og
fleira slíkt til nota við ránið-
Cradock fær aðstoðarmann til
að flýta fyrir málinu og opin-
berar ávítur um leið — og á
sama tíma nálgast leigumorð-
ingi Eddie.
Harold Oscroft, „gjaldkeri“
ræningjaflokksins, verður skelf-
ingu lostinn þegar blóðský og
ofbeldishótanir birtast skyndi-
lega í úthverfislífi hans: Fjöl-
skyldulífi hans er ógnað. En
Oscroft er áhugaverður fyrir
allt aðra ástæðu, því Cradock
er fullviss þess að í gegnum
hann má komast að hinu raun-
verulega takmarki leitarinnar,
„Mr. Big“ — öðru nafni Victar
Anderson.
Cradock tekur kipp, þegar
hann heyrir að fyrrverandi
major í brezka hernum, Tim-
othy Fry, sé kominn frá Spáni
til Englands, til að hjálpa And-
erson út úr vandamálum heima
fjnrir. Fry veit að lögreglan get-
ur ekki neglt hann á neinu, svo
hann losar sig við þá á einfald-
an hátt. Síðan smyglar hann frú
Anderson til Frakklands. En,
hugsar Cradock með sér, getur
verið að endurkoma Fry’s til
Englands hafi gert einhvern
áhyggjufullan? Ef til vill er
Anderson ekki „Mr. Big“ eftir
allt...
Victor Anderson verður
hræddur og flýr til Sviss. Þar
ætlar hann að selja sinn hluta
af fengnum. Cradock fylgir
honum eftir og kemst að því að
Anderson ætlar að svíkja frillu
sína. Cradock neyðir hana til
að tala, fær alla söguna — og
Anderson. En hvernig vissi
Anderson hvar og hvenær gull-
ið átti að koma inn í landið?
Það hlaut einhver að vera hon-
um æðri.
Richard Bolt, eigandi flug-
félagsins sem flutti gullið til
Englands, býður Cradock að
koma og dvelja með sér á
sveitasetri sínu í nokkra daga.
Þax hittir Cradock dóttur Bolt’s
og vin hennar, engan annan en
Jeremy Forman, manninn sem
hann hefur grunaðan um að
hafa drepið lögregluþjóninn í
upphafi ránsins. Forman reyn-
ir árangurslaust að kúga fé út
úr Bolt og gerir síðan tilraun
til að bjarga eigin skinni með
því að drótta því að Cradock að
Bolt viti meira en almennt sé
álitið. Cradock tekur annan
kipp: Er Bolt „Mr. Big“?
í síðasta þættinum skeður
þetta: Grunsemdir Cradocks fá
byr undrr báða vængi, þegar
rannsókn leiðir í ljós að fjnrir-
tæki Bolt’s voru gjaldþrota áð-
ur en ránið var framið. En
Bolt, skrefi framar en leynilög-
reglumaðurinn, notar pólitísk
áhrif sín til að sjá svo um að
málinu verði opnberlega lokað,
og Cradock er fjrrrskipað að
hætta afskiptum af málinu.
Þegar þannig er málum komið
getur Cradock ekki handtekið
manninn sem hann veit að er
„Mr. Big“ — fjrrr en honum
hefur tekizt að sannfæra Scot-
land Yard um að þeir hafi gert
mistök. Þangað til eltir hann
Bolt — allt til enda jarðarinn-
ar, sé það nauðsynlegt.
Aðalhlutverkið í mynda-
flokknum, Cradock yfirleyná-
lögregluforingja, leikur Peter
Vaughan. Aðstoðarmann hans,
Tommy Thomas, leikur Artro
Morris og milljónamæringinn
Richard Bolt, eiganda flugfé-
KLIPPIÐ HÉR
Pöntunarseðlll
Vinsamlegast sendið mér sniðið, sem ég krossa framan við, I því númeri, sem
ég tilgreini. Greiðsla fylgir með I ávísun/póstávísun/frímerkium (strikið yfir
það sem ekki á við).
. . . . Nr. 24 (9574) Stærðin á að vera nr. ....
Vlkan - Símpiicíiy
KLIPPIÐ HÉR
Nafn
Heimili
36 VIKAN 31.TBL.