Vikan - 05.08.1971, Síða 46
D )ra.
0>
Balliria
r NÝ
h :BRAG RÆRIV AFBRA GÐS J
L TÆKNI Jk
# Stíglaus, elektrónisk hraðastílling # Sama afl
á öllum hröðum # Sjálfvirkur tímarofr # Tvöfalt
hringdrif # öflugur 400 W. mótor # Yfirálags-
öryggi # Hulin rafmagnssnúra: dregst inn f vél-
ina # Stálskál # Beinar tengingar allra tækja.
’BaTeúío—
HAND-hrærivél
Fæst með standi og
skál. öflug vél með
fjölda tækja.
STÓR-hrærívél
650 W. Fyrir mötu-
neyti, skip og stór
heimili.
Bal/erup
VANDAÐAR OG FJÖLHÆFAR HRÆRIVÉLAR
Hræra • Þeyfa • Hnoða • Hakka • Móta • Sneiða
Rífa • Skilja • Vinda • Pressa • Blanda • Mala
Skræla • Bora • Bóna • Bursta • Skerpa
♦ SlMI % 44 20 • svi>i ii<;ata ÍO •
til að angra Kristján? Eða þótti
þér örlítið vænt um Yngva?
Þá finnst mér, að þú ættir að
hlúa að þeim ástarneista!
— Það er svo auðvelt að
segja svona! Við — það geng-
ur ekki vel — hann er ein-
hvern veginn ekki....
— Reynirðu að hjálpa hon-
um? Svo er það ekki það eina,
sem tengir fólk tryggðarbönd-
um.
— ííg veit það, sagði Anna
og hitnaði um hjartrætur. —
En það gengur illa í hjóna-
bandinu, ef illa gengur í rúm-
inu! Og þá er maður ekki leng-
ur maður sjálfur — heldur sár
og vonsvikinn og örvæntingar-
fullur!
— Hefurðu reynt að skýra
það fyrir honum? Talað um
það við hann? Eða er hann
nautheimskur?
— Hann er það alls ekki! -—-
Hann er elskulegur, hann —
það —- hjálp! Það er ekki til
neins eftir þetta! Anna tók fyr-
ir andlit sér, en hún grét ekki.
Hún gat ekki tárast. Hún sá
þetta allt fyrir sér: andlit
Yngva, bláu augun hans, óviss,
undrandi stundum. Hendur
hans, hlátur, snertinguna við
axlir sínar.... Hún beit sér
á vör og það fór hrollur um
hana. Hvar var konan, sem
sagði svo stolt: Eg tek afleið-
ingarnar á mig! Þessu hafði
hún öllu varpað frá sér fyrir
ástríðuþrungna nótt og upp-
götvað of seint, hvað hún hafði
misst.
En nú vissi hún það og hún
skildi standa við það. Hún varð
að taka afleiðingunum af gerð-
um sínum og vera heiðvirð
kona.
— 'Ég fer heim í dag, sagði
hún. — Sg þarf að tala við
Yngva.
— Ætlarðu að segja honum
alltaf létta?
— Hvað gæti ég annað gert?
— Eg veit það ekki. Þú þarft
að létta á samvizkunni og þá
líður þér víst betur. En hon-
um? Skilurðu ekki, að þú velt-
ir allri byrðinni yfir á hann?
— Eg held, að honum myndi
ekki finnast það. Sg held, að
hann vildi vita það. Hann er
bara þannig.
— Ef hann segir þér nú að
fara til helvítis?
— Þá fer ég þangað, sagði
Anna aumingjalega. — Og svo
byrja ég upp á nýtt.
— Já, sagði Kristín hugsandi.
— Þú getur fengið herbergi hjá
mér til að byrja með. Það eru
tvö herbergi uppi á lofti, sem
ég nota ekki. Sg ætla bara að
segja þér þetta til þess, að þú
vitir, að þú hefur þak yfir
höfuðið. Því að það er bezt fyr-
ir þig að fara, nema þú getir
verið konan hans af lífi og
sál.
— Já.
Anna sagði ekki annað. Hún
fór inn á bað og þvoði sér einu
sinni enn. Hún fór í hrein föt
yzt sem innst. Hún gat bara
ekki hreinsað sál sína.
— Sg er að fara, sagði hún
við Kristínu. — Kysstu Stefán
frá mér, þegar hann kemur
heim.
— Eg geri það. Viltu hringja?
— Já.
Tveggja klukkustunda lestar-
ferð. Tveggja tíma umhugsun-
arfrestur og engin lausn, ekk-
ert til að halda sér við. Hún
vissi ekki, hvort. . . .
Hún kom að Steinbrú um
kvöldið. Sólin var enn á lofti,
en skuggar hávöxnu greni-
trjánna féllu á stíginn. Anna
gekk upp hann og horfði allt
af sömu augum og sæi hún það
í fyrsta skipti. Þetta var enn
hennar hús. Hún vissi ekki,
hvort það yrði það mikið leng-
ur.
María hafði tekið hundinn
að sér og það beið enginn eftir
henni, þegar hún opnaði dyrn-
ar. Hún fór og leit inn í stof-
una. Hér var svo margt sem
hægt var að gera, án þess að
breyta öllu. Hún hafði aðeins
ekki viljað það af heilum hug
og það vissi hún núna. Hún
hafði ekki verið nægilega án-
ægð, örlát, það skildi hún.
Hún gekk um húsið og opn-
aði gluggana til að lofta út.
Það var matur bæði í ísskápn-
um og frystikistunni og hún
fór að elda. Yngvi hlaut að
koma fljótlega heim -— ef hann
kæmi þá. Hvað ætti hún að
gera, ef hann svæfi á verk-
stæðinu? Hún varð að fá að
tala við hann núna. Þau urðu
að ganga frá þessum málum.
Hún gat líka gert annað. Hún
gat horfið aftur til síns fyrra
lífs. Hún gat leigt herbergi hjá
Kristínu, þangað til að hún
fengi sér íbúð. Hún vissi, að
Pétur myndi hjálpa henni. Og
þau tækju henni með útbreidd-
an faðminn á blaðinu. Kristján
myndi líka gera það — með
eigin skilyrðum! Hún myndi
aldrei breytast, bara halda, að
hún þroskaðist og eltist. Já,
hún átti völina. Ef hún færi
gæti hún aldrei snúið aftur til
Yngva og líf þeirra saman yrði
að engu.
Hann var að koma. Hún
heyrði fótatak hans á mölinni
fyrir utan, þungt en hratt.
Hann hafði víst séð að glugg-
arnir voru opnir og vitað, að
hún var heima.
Hún fór úr borðstofunni inn
í setustofuna til að hitta hann
og hjarta hennar sló hratt. En
hún hafði notað svo stór orð
um framhjáhald og afleiðingar
þess — nú var röðin komin að
henni að játa.
— Yngvi, sagði hún jafnblíð-
lega og henni var unnt. —• Mig
langar að tala við þig. Eg held
— Hvað? spurði hann.
Þau horfðust í augu.
— Þér liggur víst eitthvað á
hjarta, sagði hann loks. Hann
hafði fulla stjórn á sér, en var-
irnar voru samanbitnar. Það
yrði ekki auðvelt að segja hon-
um allt af létta.
En hún varð að gera það.
Framhald í næsta blaði.
46 VIKAN 31.TBL.