Vikan - 05.08.1971, Síða 47
MIG
OREVMOI
Reykjarbólstrar og
biluð lyfta
Kæri draumráðandil
Hér eru tveir draumar sem mig
dreymdi fyrir stuttu og með
stuttu millibili. Langar mig mjög
til að fá skýringu á þeim, sé
það hægt.
Mig dreymdi að ég og vinur
minn værum að fara í heim-
sókn til foreldra minna. Við stóð-
um öll úti á dyrapallinum. Það
var heiðskýrt veður, en kalt.
Allt í einu vekur mamma athygli
okkar á reykjamökkum, sem
stigu upp í vestri, norðri og
austri.
,,Það er líklega laus eldur
einhversstaðar", sagði ég og
tóku hin undir það. Við stóð-
um þarna góða stund og horfð-
um á þeosa kolsvörtu reykjar-
stróka. Eg og vinur minn horfð-
<Jm fyrst á þann í norðri, síðan
á þann í austri og loks þann
sem var í vestri. Þó fylgdumst
við aðallega með strókunum í
norðri og austri. Ég vaknaði þeg-
ar við vorum að kveðja ogganga
niður stigann ( átt til reykjar-
niökksins í norðri.
Svo dreymdi mig að ég væri
í lyftu með fleira fólki. Við ætl-
uðum að fara upp á fimmtu
hæð, þar sem veitingasalur var.
Eg studdi á hnapp sem talan 5
var letruð á og um leið fór lyft-
an af stað. En þegar hún kom
upp á 5. hæð stanzaði hún ekki,
heldur fór af stað niður aftur.
Gekk svona til ( nokkurn tfma
°g var okkur, sem þarna vor-
um, ekki farið að lítast á blik-
una. Ég byrjaði að ýta á hina
og þessa hnappa, en ekkert
gerðist. Þá studdi ég á hnapp
sem á stóð bókstafurinn F og
þá stoppaði lyftan. Ég studdi
aftur á töluna 5 og þá fór lyft-
an aftur af stað. Þegar við kom-
um svo upp á 5. hæð ýtti ég á
bókstafinn F, og þá stanzaði lyft-
an. Við fórum út úr lyftunni og
inn í veitingasalinn. Þar var fyr-
ir mikið af fólki sem var að
borða. Skvaldur var mikið og
auk þess var hljómsveit að spila
1 einu horninu. Okkur var vísað
til sætis við borð úti við glugg'-
ann og var fagurt um að litast
úti fyrir.
Þjónn kom með mat og drykk
og allir byrjuðu að borða nema
Framhald á hls. 50.
urvalsferðir til
KANARÍEYJANNA
a beztd tímd ársins
JÓLAFERÐ
ÁRAMÓTAFERÐ
ÞORRAFERÐ
SÓLARFERÐ
GÓUFERÐ
VETRARFERÐ
FÖSTUFERÐ
PÁSKAFERÐ
HÖRPUFERÐ
LOKAFERÐ
15 DAGAR
15 DAGAR
22 DAGAR
15 DAGAR
15 DAGAR
15 DAGAR
15 DAGAR
15 DAGAR
15 DAGAR
15 DAGAR
16. desember
30. desember
13. janúar
3. febrúar
17. febrúar
2. marz
16. marz
30. marz
13. apríl
27. apríl
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
31. TBL. VIKAN 47
argus