Vikan - 05.08.1971, Síða 48
Síðan Níða§t
McCARTNEY-FJÖLSKYLDAN '
Nú eru þau farin að syngja saman Linda og Paul
McCartney. Það eru víst ekki allir afn hrifnir af
því, eftir því sem stóð í þættinum okkar Heyra má,
um daginn. En hvað um það: Hérna sjáum við
þessa frægu fjölskyldu, Lindu, Paul og börnin þeirra
tvö. Myndin er tekin er þau komu til paradísar
ungra milljónamæringa, St. Tropez Þau komu til
að vera viðstödd hið fræga brúðkaup Micks Jagg-
ers, leiðtoga Rollings Stones, og Bianca Perez de
Macias, sem er sögð vera dóttir vellríks diplómata
í Suður-Ameríku. Það hefur þegar verið sagt nóg
frá brúðkaupi Jaggers, en gaman er að sjá þessa
nýjustu mynd af Paul McCartney og fjölskyldu hans.
Mick Jagger og Biar.ca.
I ■■ Ifl II
| ;
:
HANN LEK A
JAPANINA
Enn er verið að rifja upp sögur
úr síðari heimsstyrjöldinni, og hér
á eftir fer ein, sem birtist nýlega
i því vinsæla blaði, Readers Dig-
est:
Það gerðist í stríðinu, að tveir
amerískir hermenn voru sendir til
könnunar inn á aldeyðuna á milli
víglínanna, og annar hermaðurinn
fótbrotnaði af sprengingu, sem
varð í neðanjarðarsprengju, er
Japanir höfðu komið fyrir.
Hinn særði hermaður var þess
fullviss, að hann gæti ekki kom-
izt hjálparlaust aftur fyrir víglín-
una, svo að hann bað félaga sinn
að halda áfram og hugsa ekki
um sig. Félaginn gerði að broti
hins særða, en fór siðan.
Þetta var svo nærri Japönum,
að þeir hlutu að sjá manninn, þeg-
ar þeir færu á stúfana, og óttað-
ist hann nú illa meðferð, ef hann
kæmist i hendur þeirra.
Daginn eftir unnu Ameríku-
menn allstórt svæði af Japönum
og fundu þeir þá særða hermann-
inn liggjandi á sama stað yaf-
inn innan í kveikjuvíra frá neð-
anjarðarsprengju. Þótti þeim nú
góð ráð dýr og ætluðu að fara
að senda eftir sérfróðum mönnum
til að losa hinn særða á hættu-
lausan hátt, bæði fyrir hann og
þá. En áður en til þess kæmi,
ávarpaði hermaðurinn særði þá
og bað þá að hjálpa sér að vefja
utan af sér vírnum. Hann hafði
sjálfur tekið vírana frá sprengj-
unni, sem særði hann, og vafið
þeim utan um sig til þess að
villa um fyrir óvinunum. Það
tókst líka, því að þeir forðuðust
hann, þar sem þeir voru vissir
um, að þeir dræpu sig á neðan-
jarðarsprengjunni, ef þeir gerðu
honum nokkurt mein.
☆
48 VIKAN 31.TBL.