Vikan - 05.08.1971, Blaðsíða 49
OG KÖTTURINN
LÍKA...
Sjaldan höfum við notið sólar
í iafn ríkum mæli og nú í sumar.
I iúní og iúlímánuði að minnsta
kosti hefur hver sólardagurinn
rekið annan, og allir hafa notað
hverja stund til að sleikja sólskin-
ið. Þessi skemmtilega mynd gæti
þess vegna hægilega verið tekin
hér á landi. Hún er reyndar frá
Þýzkalandi. Móðirin og dóttirin
sóla sig — og kötturinn líka.
MEÐHÖNDLUN TIL AÐ LÁTA HÁRIÐ VAXA AFTUR
í síðustu kosningabaráttu, sem
flokkur Willy Brandts háði, var
reynt að skipta um tón meðal
annars með því að nota ný og ó-
venjuleg slagorð, gjarnan eilítið
kímileg. Eitt þeirra hljóðaði til
dæmis svo: „Við kunnum ráð við
öllu — nema hárlosi".
Vesturþýzki vísindamaðurinn
Wilhelm Heger vill gera betur en
flokkur Brandts. Hann hefur eytt
allri ævinni ( að reyna að finna
ráð við hárlosi. Hann starfrækir
sérstaka stofnun, sem er búin alls
konar tækjum, sem hann hefur
látið smíða. Aðferðir Hegers eru
aðallega fólgnar í lyfjagjöfum og
nuddi. Á meðfylgjandi mynd sjá-
um við til dæmis hjálm, sem not-
aður er til að nudda hársvörðinn.
1
\
: > Á
Heger telur sig hafa náð all-
góðum árangri. En þar sem með-
höndlun hans er enn rándýr, kost-
ar á milli 1000 og 2000 mörk,
vill hann ekki taka nærri alla til
meðferðar. Hann rannsakar þá
fyrst og úrskurðar síðan, hvort
hann telji að einhver von sé um
aukinn hárvöxt eða ekki. Ef eng-
inn árangur næst að meðhöndlun
lokinni, fá menn endurgreidda
alla þá peninga, sem þeir' hafa
greitt.
Baráttan við hárlosið heldur á-
fram. Og hárkollurnar verða stöð-
ugt vinsælli að sögn.
Wilhelm Heger.
31. TBL. VIKAN 49