Vikan - 05.08.1971, Side 50
Blóm í Skálholti
- pylsur í Hveragerði
VIKAN heldur áfram að heimsækja sumarbúð-
ir og orlofsheimili hér á Suður- og Vestur-
landi. I þessu blaði heimsóttum við hið mynd-
arlega sumarbústaðahverfi ríkisstarfsmanna
í Munaðarnesi. — í næsta blaði liggur
leiðin í sumarbúðir fyrir börn, sem æsku-
lýðsnefnd þjóðkirkjunnar stendur fyrir í Skál-
holti og gamla Menntaskólaselinu í Hvera-
gerði. Við tókum myndir af kátum krökkum
á báðum þessum stöðum og spjölluðum við
þá. Þeir virtust sannarlega una sér vel í
sveitinni og njóta þeirrar starfsemi, sem boð-
ið er upp á í slíkum sumarbúðum.
Samvizka
bókarans
Smásagan segir á
smellinn hátt frá
bókara nokkrum,
sem var grunaður
um fjárdrátt að ó-
sekju, en uppgötv-
aði er hann hafði
verið sýknaður, að
hann hefði getað
krækt sér í aura.
• Síðari hluti smásögunnar Yfirnáttúrleg
hefnd eftir George Bernard Shaw.
• Framhaldssagan Lifðu lífinu, sem er ný-
byrjuð. Þetta er snilldarvel sögð saga, sem
hefur verið kvikmynduð. Myndin verður sýnd
í Tónabíói einhvern tíma næsta vetur.
• Næst lýkur hinni vinsælu framhaldssögu,
Ugla sat á kvisti. Þessi saga hefur notið mik-
illa vinsælda, enda nútimaleg ástarsaga, og
ólík flestum öðrum ástarsögum.
• Þátturinn Heyra má, Simplicity-snið, Póst-
urinn, Krossgáta, myndasögurnar og ótal-
margt fleira.
ég, því ég var alltaf að hugsa
um hvernig fólki tækist að kom-
ast upp í lyftunni og hvort það
vissi hvernig það ætti að fara
að því að láta lyftuna stanza.
Ég fékk enga ró í min bein fyrr
en ég fór aftur að lyftunni og
inn í hana. Síðan fór ég marg-
ar ferðir á milli með fólk. Ég
vaknaði þegar ég var á niður-
leið ( einni slíkri ferð.
Svo langar mig að vita hvað
sjór eða haf merkir í draumi.
Með fyrirfram þökkum, G.
Þessir draumar eru báðir mjög
athyglisverðir og bera með sér
að þeir hafi ýmislegt að segja.
Fyrri draumurinn boðar þér
nokkra mjög ávinningslega
möguleika og liggur nokkuð
Ijóst fyrir að um enga peninga
verður að ræða í því sambandi,
heldur verður þetta annað og
meira. Hefði aftur um raunveru-
legan eld verið að ræða með
reyknum, hefðir þú átt von á
einhverjum peningum, en þar
sem þið hélduð í norður, má bú-
ast við að þessi hamingja — og
þessi ákvörðun — skipfi ykkur
bæði töluverðu máli og því skul-
uð þið ígrunda vel allar hliðar
á málum sem upp koma.
Síðari draumurinn hefur aftur á
móti reynst okkur erfiðari viður-
eignar, en ekki er fráleitt að
hann sé í einhverju sambandi
við hinn. Því höllumst við að
því að þú eigir eftir að lenda
í töluverðum erfiðleikum á næst-
unni, líklegast fjárhagslegum og
þú ættir að vara þig á að sýna
ekki drembilæti í samskiptum
þínum við annað fólk.
Sagan af Al Capone
Allir þekkja Al Capone, glæpaforingjann al-
ræmda, sem þreifst í skjóli bannlaganna í
Bandaríkjunum á millistríðsárunum. í næsta
blaði hefjum við að segja sögu Al Capones
eins og hann var í raun og veru.
Mesti gulifundur sögunnar
Mesti gullfundur sögunnar átti sér stað árið
1848 i námunda við San Francisco í Kaliforn-
íu. Það var fátækur maður sem uppgötvaði
gullið fyrstur manna, en bar sjálfur ekkert
úr býtum. Þessi fundur hrinti af stað hinu
fræga gullæði.
HITTUMST AFTUR - I NÆSTU VIKU
Svar til 00Z
Þetta er eitt af þeim tilfellum
sem við þorum ekki að segja
mikið um, en sú hugmynd hef-
ur hvarflað að okkur að þessi
draumur boði brottför Jóns.
Svar til Röggu í
Rangárvallasýslu
Fyrri draumurinn er þér mjög
hagstæður: boðar þér heppnl og
velgengni í fjármálum. Síðari
draumurinn boðar þér náið —
eða nánara — ástarsamband við
þennan mann sem þú talar um
og það til góða, sbr. „Böl er þá
barn dreymir, nema sveinbarn
sé og sjálfur eigi".
50 VIKAN 31.TBL.