Vikan - 06.01.1972, Qupperneq 3
1. tölublað - 6. janúar 1972 - 34. árgangur
Vikan
Leikfélag
Reykjavíkur
75 ára
Leikfélag Reykjavíkur
verður 75 ára 11. janúar
næstkomandi. I tilefni af
því birtum við viðtal við
Svein Einarsson, leikhús-
stjóra, og myndir af fast-
ráðnum leikurum félags-
ins í minnisstæðum hlut-
verkum. Sjá b!s. 25—27.
Hneyksli
við brezku
hirðina
Fjárhættuspil var bannað
með lögum, en sjálfur
prinsinn af Wales, elzti
sonur Viktoriu drottning-
ar, var sakaður um að
hafa stundað það við
hirðina. Skemmtileg,
söguleg frásögn um þetta
hneyksli birtist á bls. 16.
Snjóflóðið
á Stekk
Þá minnst vonum varði
steyptist ógæfan yfir.
Fyrirboði hennar birtist á
nýársnótt, og nóttina áður
en hinn válegi atburður
gerðist, var bóndi venju
fremur órólegur og gat
ekki fest hugann við
neitt. Sjá islenzka frásögn
á bls. 12.
KÆRI LESANDI!
Ellefta janúar næstkomandi held-
ur Leikfélag Reykjavíkur hátíð-
legt sjötíu og fimm ára afmæli
sitt, og af því tilefni er í þessu
hlaði viðtal við Svein Einarsson,
leikhússtjóra. Varla ætti að þurfa
að minna á, hvilíku hlutverki
Leikfélagið hefur gegnt í sögu is-
lenzkrar leiklistar; má með sanni
segja að með stofnun þess 1897
hefjist íslenzkt leikhúslif fyrir al-
vöru. Starfsemi félagsins fytgdi
stöðug gróandi í leiklist okkar og
leikritagerð gegnum árin, og svið-
setning klassískra meistaraverka
og áhugaverðra samtímaleikrita
komu okkur í samhand við hinn
alþjóðlega leikhúsheim. Og enn
þann dag í dag einkennir stefnu
Leikfélagsins dirfska og fúsleiki
til að taka frumkvæði. Sá fjör-
kippur, sem komið hefur i ís-
lenzka leikritagerð á síðustu ár-
um, er áreiðanlega að verulegu
leyti að þakka örvun af hálfu fé-
lagsins og samstarfsvilja þess við
leikritahöfunda.
Þess er að vænta að án frekari
tafar verði mí hafizt handa um
byggingu hins fyrirhugaða Borg-
arleikhúss, þannig að Leikfélag-
ið fái forsvaranlega aðstöðu til
starfsemi sinnar. Einnig að endir
verði tafarlaust bundinn á það
ófremdarástand, að höfuðborgin
sé án leiklistarskóla. Fullgildur
leiklistarskóli er að sjálfsögðu
grundvöllur þess, að leikhúslíf
geti staðið með viðeigandi blóma.
EFNISYFIRLIT
GREINAR
BLS.
Þar verða menn yfir hundrað ára
Snjóflóðið á Stekk, íslenzk frásögn
12
Hans konunglega tign skemmtir sér, frásögn
af sögulegu máli varðandi fjárhættuspil við
brezku hirðina 16
Leikhúsferð í Tíflis, kafli úr bókinni An
American in Russia eftir Harison Salisbury,
ritstjóra Times. Þýðing: Arnheiður Sigurðar-
dóttir 18
VIÐTÖL
Leikhús leikaranna. Vikan ræðir við Svein
Einarsson, leikhússtjóra, í tilefni af 75 ára
afmæli Leikfélags Reykjavikur 25
Þannig þekkjum við þau bezt, fastráðnir
leikarar LR i minnisstæðum hlutverkum 26
Þau giftu sig í kyrtlum, rætt við ung brúð-
hjón, sem giftu sig nýlega í Kópavogskirkju
á óvenjulegan hátt 28
SÖGUR
Gjafirnar, smásaga eftir Antony Erskine
Lindop
Nornanótt, framhaldssaga, 7. hluti
10
I skugga eikarinnar, framhaldssaga, 10. hl. 20
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn
Heyra má
14
Matreiðslubók Vikunnar
23
Krossgáta
31
Stjörnuspá
32
Myndasögur
35, 38, 42
FORSfDAN
Þau heita Edda Sverrisdóttir og Leifur Hauksson
og giftu sig nýlega í Kópavogskirkju i þessum
skrautlegu kyrtlum. Hljómsveitin Náttúra átti að
leika t kirkjunni, en svo illa vildi til, að kvöldið
áður brann Glaumbær og hljómsveitin missti öll
hljóðfæri sín. (Ljósm. Egill Sigurðsson).
VIKAN Útgefandl: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaöamenn: Dagur Þorlelfsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdlmarsson. Útlitsteikning:
Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: SlgrlSur
Þorvaldsdóttlr og Sigríður Ólafsdóttir. — Rltstjóm,
auglýsingar, afgrelðsla og dreifing: Sklpholti 33.
Simar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð i lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrlr 13 tölu-
blöð órsfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 28 blöð
misserislega. Áskrlftargjaldið grelðist fyrlrfram.
Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, mai og Agúst.
1. TBL. VIKAN 3