Vikan - 06.01.1972, Side 4
Bók fypip
allt íbpóttafólk
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
POSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
P0STURINN
Svar til tveggja
forvitinna
Heimilisfangið sem þið hafið er
rétt, að undanskildum stafsetn-
ingarvillum og söngvarinn í
Deep Purple heitir lan Gillan.
Svar til Bms í
Vestmannaeyjum
Bréf þitt var því miður of langt
til birtingar, en þú hefur rétt
fyrir þér, Pósturinn ER „hunda-
haldssinni"!
K.A., Patreksfirði
Láttu kauða alveg eiga sig,
hann vill greinilega ekkert með
þig liafa og þá skalt þú ekki
leggja þig svo lágt að ganga á
eftir honum.
Eins í ástarsorg á
Patreksfirði
Hann vill þig ekki og úr því að
hann kemur svona ruddalega
fram við þig skaltu alveg hætta
að hugsa um hann. Hann virð-
ist hvort eð er ekki vera þess
virði eftir bréfi þínu að dæma.
House of the
Rising Sun
Elsku Póstur!
Eg hef mikið dálæti á laginu
„The House of the Rising Sun",
en ég kann ekki textann. Getur
þú ekki birt hann fyrir mig?
Svo annað: Ég er fædd 20 janú-
ar, en ég veit ekki almennilega
í hvaða stjörnumerki ég er,
Vatnsberanum eða Steingeitinni.
I hvoru merkinu á ég að vera?
Lára.
Þú átt að bera í Vatnsberanum,
en ert að sjálfsögðu undir mjög
sterkum áhrifum frá Steingeit-
inni.
Þessi útgáfa af „House of the
Rising Sun" er sú elzta sem vit-
að er um, en þó ekki sú er t. d.
bítlahljómsveitin Animals var
með fyrir nokkrum árum. Það
var Jackie Lomax sem gróf
þessa útgáfu upp árið 1937, en
„orginalinn" er óþekktur.
There is a house in New Orleans
They call the Rising Sun.
And it's been the ruin of many
a poor soul
And me, oh Lord, for one.
If I had listened to what my
mother said
l'd have been at home today.
But I was young and foolish,
oh God,
Let a rembler lead me astray.
Go tell my baby sister
Don't do what I have done.
Shun that house in New Orleans
They call the Rising Sun.
I'm going back to New Orleans
My race is almost run,
l'm going back to spend my life
Beneath the Rising Sun.
Helzt þríbura
Kæri Póstur!
Ég ætla að skrifa þér vegna
þess að mig vantar gott ráð. Ég
er gift og á eitt barn og finnst
það alveg yndislegt. Nú langar
mig til að eignast tvíbura eða
þríbura. Hvernig á ég að fara
að því. Þakka þér fyrir allt gam-
alt og gott, vona að þú getir
ráðið úr þessu, kær kveðja.
Heiðbjört J.
Þríburafæðingar eru ekki mjög
algengar hér á landi, en víða
er konum gefin mögnuð hor-
mónalyf og þá eignast þær börn
rétt eins og kettirnir. Farðu til
heimilislæknisins þíns og ræddu
málið við hann.
„Gunk“
Kæri Póstur!
Ég vil byrja á því að þakka þér
fyrir allt gamalt og gott. Mig
langar að biðja þig að fræða
mig svolítið um hljómsveitina
GUNK. Hvað heita þeir, hvað
eru þeir gamlir, hvar eiga þeir
heima, í hvaða skóla eru þeir
og svo framvegis. — Viltu svo
birta mynd af þeim?
Ein áhugasöm.
zbi
Málið er í athugun.
4 VIKAN l.TBL.