Vikan - 06.01.1972, Síða 5
Til konu á ísafirði,
sem spurði um Alsír,
gyðinga og fleira
Við biðjum þig í öllum bænum
að halda ekki að við viljum
ekki svara bréfi þínu; satt að
segja þótti okkur mjög gaman
að fá það, en því miður týnd-
ist það. Skrifaðu okkur aftur og
þá skaltu fá svar við allra fyrsta
tækifæri.
Elskar brezkan
sjómann
Kæri Póstur!
Eg er að deyja úr ást til Breta
sem er á togaranum X. Hann
hefur gefið það í skyn að hann
sé dálítið skotinn í mér. Ég hef
hitt hann fimm sinnum og hann
hefur aldrei reynt við mig (kyn-
ferðislega), síðan ég hitti hann
fyrst, en þá sagði ég honum að
ég vildi það ekki fyrr en ég
væri gift og hann sagðist skilja
það en á ósköp bágt með að
halda loforð sitt þegar við er-
um saman.
'Þegar ég spyr hann um nafn
segir hann aðeins: „Kallaðu
mig Jimmy", og ég er of ást-
fangin til að spyrja hann nánar
út í það. Elsku bezti Póstur
minn: hvernig á ég að ná sam-
bandi við hann þegar hann er
á miðunum? Þú mátt ekki halda
að ég sé einhver gæra, en ég
er bara ástfangin af honum og
einhvers staðar hef ég hevrt að
enginn ráði við tilfinningar sín-
ar.
Get ég fengið upplýsingar um
sjómann út í Stoke í gegnum
brezka sendiráðið á íslandi?
Svo er annað vandamál sem ég
á við að stríða. Pabbi hatar mig.
Hann hefur oft sagt mér að ég
ætti að snauta burtu og sjá um
mig siálf, og í haust gerði ég
það. Ég fór í burtu í tvo mán-
uði en þá varð hann vitlaus og
hótaði að senda lögregluna á
mig og láta þá koma mér heim.
Mamma er bezta * mamma í
heim', hún er svo góð við okk-
ur, en nú er hún á spitala og
én er með heimilið og fjögur
systkin til að hugsa um, svo ég
kemst ekki frá þeim. Finnst þér,
Póstur minn, að ég ætti að fara
að heiman? Ég er 16 ára.
Ein í ástarsorg.
Finnst þér ekki að þú ættir að
hitta piltinn að minnsta kosti
fimm sinnum enn áður en þú
tekur alvarlega ákvörðun? Það
minnsta sem hægt er að ætlast
til er þó að þú vitir hvað hann
heitir. Vissulega getur pilturinn
verið ósköp elskulegur og allt
það, en hann gæti alveg eins
verið giftur heima í Bretlandi.
Hafi einhver sagt að enginn ráði
við tilfinningar sínar, þá hefur
sá sami verið misvitur, því allir
geta ráðið við tilfinningar sinar
með hæfilegri sjálfsstjórn og
þjálfaðri einbeitni. Taktu lífinu
með ró þar til þú veizt eitthvað
gagnlegt um piltinn.
Hvernig var það, varð pabbi
þinn „vitlaus" eftir að þú varst
búin að vera að heiman í tvo
mánuði eða um leið og þú fórst?
Við viljum meina að þú ættir
ekki að fara strax að heiman,
heldur skaltu vera og sýna hon-
um (af fullri ákveðni) hvort
ykkar er skynsamara og þrosk-
aðra. Næst þegar hann segir þér
að hann hati þig (og um engan
föður höfum við heyrt svona
lagað áður), skalt þú segja hon-
um að þú elskir hann. Og þótt
þú viljir ekki vera hans vegna,
þá átt þú allavega skyldum að
gegna gagnvart móður þinni og
systkinum.
„Dauðarefsing"
Kæri Póstur!
Ég og vinkona mín vorum að
þræta um það hvaðan hljóm-
sveitin „Dauðarefsing" væri, en
hún var til fyrir einu eða tveim-
ur árum. Ég held að hún hafi
verið frá Vestmannaeyjum, en
vinkona mín vill ekki viður-
kenna það. Nú langar okkur til
að biðja þig, kæri Póstur, að
skera úr um þetta' fyrir okkur
og birta eina eða tvær myndir
af hljómsveitinni og birta við-
töl við þá.
Tvær sem bíða.
Við höfum aldrei heyrt á þessa
hljómsveit minnzt en myndum
þakka allar upplýsingar.
R.H.X.
Segðu honum upp.
r n
MIDAPRENTUN
Takið upp hina nýju aðferð og látið prenta
alls konar aðgöngumiða, kontrolnúmer, til-
.kynningar, kvittanir o.fl. á rúllupappír. Höf-
um fyrirliggjandi og útvegum með stuttum
fyrirvara ýmis konar afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
HILNIR mf
Skipholti 33 - Sími 35320
s----------)______________J
1. TBL. VIKAN 5