Vikan - 06.01.1972, Síða 6
ÞAR VERÐA MENN
Ef þorpsbúar lifa af fyrstu fimmtán árin, verða
þeir yfir hundrað ára. Vilcabamba í Ecuador
er eitt furðulegasta þorp í heimi; íbúarnir eru
yfirleitt um og yfir hundrað ára. - Vísinda-
menn telja sig hafa fundið ástæðuna fyrir
þessu: kolesterolinnhald blóðsins erað meðal-
tali aðeins 120.250 er algengt á Norðurlöndum.
íbúar þorpsins Vilcabamba í
Ecuador þekkja ekki hina svo-
kölluðu menningu. Þar er
hvergi rennandi vatn í krönum,
engin miðstöðvarhitun og ekk-
ert rafmagn. Þar er heldur ekki
læknir, en samt slá þeir met,
þeir lifa í meira en hundrað ár.
Höfðinginn í Vilcabamba segir:
— Ef einhver deyr hér, þá
er það vegna þess að vatnið er
eitrað. En eftir fimmtán ára
aldur, ef fólkið hér lifir svo
lengi, þá verða íbúarnir ónæm-
ir fyrir því og lifa yfir hundrað
ár.
Þegar blaðamenn koma til
bæjarins, fara íbúarnir í felur.
Þeir eru hræddir um að verða
fyrir blóð og hjartarannsókn-
um.
íbúarnir í Vilcabamba haga
lífi sínu eftir sólinni. Þeir rísa
úr rekkju við sólarupprás og
ganga til hvílu við sólsetur. Á
daginn vinna þeir við jarðyrkju,
enda er loftslagið afar gott.
Hitastigið er alltaf það sama,
munar aðeins fimm gráðum til
eða frá. Hitinn er alltaf 21 til
26 gráður. Þeir rækta aðallega
tóbak og í Vilcabamba er mik-
ið reykt — án þess að nokkur
hafi áhyggjur af krabbameini.
Þeir lifa aðallega á jurtafæðu,
sérstaklega grænmeti sem vex
vilt í nágrenninu. Á helgidög-
um er þó einstöka sinnum kjöt
til matar, það er að segja, ef
einhver nágranni slátrar kú. Þá
kaupa þorpsbúar kjöt af hon-
um. Við sérstök tækifæri gæða
þeir sér á hænsnakjöti og fleski,
en það er líka hámark vel-
sældar. Að meðaltali fá þeir um
sautján hundruð hitaeiningar.
(En t.d. í Svíþjóð, þar sem með-
alaldur er sjötíu ár er meðal-
tal hitaeininga 3.170 hitaein-
ingar á dag).
José er elztur, hann er 140
ára. Prófessorar frá Harvard-
háskólanum og frá Quito-há-
skólanum í Ecuador hafa rann-
sakað til hlítar að þar er rétt
með farið. Það er ekki nokkurt
vafamál að aldur hans er rétt
til greindur: José D. Toledo er
fæddur árið 1831.
José er faðir tíu barna og
hann á þrjátíu og tvö barna-
börn. En José hefur ekki alltaf
lifað rólegu lífi, eins og maður
skyldi ætla, hann var sex ár í
fangelsi, fyrir afbrot, sem hann
hafði ekki framið.
Harvardprófessorarnir halda
sig hafa fundið ástæðuna fyrir
þessum háa aldri: Kolesterol-
innihald blóðsins er aðeins 120
hjá fullorðnum Vilcabamba-
búa. ☆
José, sem er 140
ára, fær engin
ellilaun. Hann
verður að vinna
daglega á ökrun-
um og það hefur
stuðlað að góðri
heilsu hans.
Isabela Quezada Mandiete er 103 ára og systir hennar,
Micaela Quezada Mandiete er 93. Þrátt fyrir háan aldur hafa þær systur
ekki hætt að vinna. Þær sitja við að hreinsa kaffibaunir
allan ársins hring.
6 VIKAN l.TBL.