Vikan - 06.01.1972, Qupperneq 14
m 2- 'uém
Vh.
Gunnar Gunnarsson „yfirdubbar" gítarinn i lagi sinu.
LÍTIÐ EITT
taka upp sína fyrstu
plötu
Það getur veriS erfitt að syngja flóknar raddir og ekki sírt þegar maður
fær hvern einasta tón beint í hausinn aftur, en það er það sem skeður
þegar menn nota svona heyrnartól. Frá vinstri: Steinþór Einarsson, Gunn-
ar Gunnarsson og Hreiðar Sigurjónsson.
í nóvembermánuði luku þeir
félagar í hafnfirzka tríóinu
„Lítið eitt“ við að taka upp
sína fyrstu plötu fyrir Tónaút-
gáfuna. Á plötunni, sem vænt-
anleg er . . . ja, bezt er að segja
sem minnst um það, því slíkar
tímasetningar standast aldrei,
eru fjögur lög, þar af eitt eftir
einn þeirra félaga, Gunnar
Gunnarsson. Úttekt stjórnanda
þessa þáttar verður þirt þegar
platan er út komin og skal því
ekki farið nánar út í að lýsa
lögunum, en ekki sakar að geta
Framhald á bls. 36.
Tilvera sáluga: Gunnar Hermannsson, Herbert Guðmundsson, Axel Einarsson, Pétur Pétursson og Ólafur Sigurðsson, sem reyndar var að hætta þegar
hljómsveitin hætti.
TILVERA
HÆTT
Ferill hljómsveitarinnar Til-
veru er á enda, „eftir storma-
sama ævi“, eins og sagt er um
aldraða og umdeilda athafna-
menn þegar minningargreinar
birtast um þá í blöðunum. Vár
ákvörðun um þetta tekin á
fundi sem þeir félagar í hljóm-
sveitinni héldu þann 12. nóv-
ember sl., og að sögn Péturs
Péturssonar, orgelleikara hljóm-
sveitarinnar, var það ákveðið í
miklu bróðerni og með fullu
samþykki allra meðlima hljóm-
sveitarinnar.
Eru þetta heldur leiðinleg
tíðindi, þar sem hljómsveitin
var rétt að ná sér á strik, en
eins og Pétur sagði, þá „var
þetta eiginlega vonlaust, þar
sem þetta nafn, Tilvera, er út-
jaskað og fólk þurfti ekki ann-
að en að heyra það til að kom-
ast í leiðinlegt skap.“
☆