Vikan - 06.01.1972, Page 26
GfSLI
Gísli Halldórsson hlaut Silfurlampann
fyrir frammistöðu sina í Þjófar, lík og
falar konur, þremur einþáttungum eftir
ítalska skopleikjahöfundinn Dario Fo.
Hér er hann í miðþættinum, Lík til
sölu.
ÞORSTEINN
Kristnihald undir Jökli er orðið eitt
fjölsóttustu leikverka, sem Leikfélag
Reykjavíkur hefur tekið til sýningar,
og fer Þorsteinn Gunnarsson þar með
hlutverk Umba.
Þannig þekkjum við þau bezt
Þótt tiltölulega fáir þekki þau persónulega, kannast þeim mun fleiri við þau af
qviðinu. Hér birtum við myndir af fastráðnum teikurum Leikfélags Reykjavíkur
í þeim hlutverkum, sem þeir hafa orðið hvað vinsælasfirí og skemmf leikhúsgesf-
um einna bezt.
PÉTUR
í Orfeusi og Evrydís eftir Anouilh, nútíma-
leikgerð eftir klassísku harmsögunni, gat
Pétur Einarsson sér góðan orðstír í hlut-
verki þjónsins í gistihúsinu. Hér er hann
ásamt Valgerði Dan, sem lék Evrydís.
HELGI
Veturinn 1963—64 tók Leikfélagið til sýn-
ingar hið fræga verk Jean-Pauls Sartres,
Fangarnir i Altóna. Þá hlaut Helgi Skúla-
son Silfurlampann fyrir leik sinn i hlutverki
Franz. Hér er hann ásamt Helgu Bachmann
i hlutverki Jóhönnu.
HELGA
í Heddu Gabler Ibsens fór Helga Bachmann
með titilhlutverkið. Myndin sýnir dramatisk-
asta andartak leiksins, er lífsverk skáldsins
er borið á bál. Helga hlaut Silfurlampann
fyrir leik sinn í þessu hlutverki.
SIGRfÐUR
Hitabylgja eftir Xed Wiilis vakti athygli á
viðkvæmu vandamáli, sem íslendingar eru
blessunarlega Iausir við — ennþá að minnsta
kosti. Sigríður Hagalín lék þar NeÚ, van-
rækta eiginkonu umsvifamikils verkalýðs-
leiðtoga, og hlaut Silfurlampann fyrir.
GUÐRÚN
STEINDOR
JÖN
Guðrún Ásmundsdóttir vakti verðskuldaða
athygli fyrir frammistöðu sína í hlutverki
Mösju í Máfnum eftir Tsékof. Einnig má sjá
á myndinni Guðmund Pálsson, sem fór með
hlutverk læknisins.
Steindór Hjörleifsson hlaut Silfurlampann
fyrir leik sinn i hlutverki Jonna Popes i
Kviksandi eftir Michael Vincent Gazzo. Hér
er hann ásamt Helgu Bachmann, Gísla Hall-
dórssyni og Brynjólfi Jóhannessyni.
Mikla athygli vakti sýningin á Yvonne
eftir Gombrowics, einn hinn frægasta
af nútímarithöfundum Pólverja. Þar
fór Jón Sigurbjörnsson með hlutverk
konungsins.
BORGAR
Túlkun Leikfélagsins á Plóg og stjörnum
Seans O'Caseys hefur þótt takast vel, og í
því sambandi verið drepið á hinn margum-
rædda skyldleika íslendinga og fra. Borgar
Garðarsson fer þar með hlutverk unga verka-
mannsins og sósíalistans Coveys.
iH > i* I
Ifwm V M
mmSSf ' ?!i3
| * ~ Æ V v áíkáSsm
mwrif