Vikan - 06.01.1972, Qupperneq 28
ÞAU GIFTU SIG í KYRTLUM
Okkur var boðið að vera við-
staddir brúðkaup í Kópavogs-
kirkju laugardaginn 4. desem-
ber sl., og þar tók Egill Sig-
urðsson, ljósmyndari VIKUNN-
AR þessar myndir. Þau sem
gefin voru saman voru Edda
Sverrisdóttir og Leifur Hauks-
son, sálfræðistúdent við Há-
skóla íslands. Leifur er annars
að góðu kunnur, en hann var í
hópi þess tápmikla fólks sem
lék í „Hárinu“, er Leikfélag
Kópavogs setti á svið í Glaum-
bæ — áður en þar fór virki-
lega að hitna í kolunum!
Sjálfsagt spyr nú einhver:
„Og hvað með það? Hefur ekki
fólk gift sig áður?“ Jújú, sei
sei jú. Vissulega hefur fólk gift
sig áður og það meira segja á
sama hátt og þau Edda og Leif-
ur. En ekki hafa margir geng-
ið í hjónaband jafn skrautlega
klædd og þau tvö, en myndirn-
ar segja meira um það en nokk-
ur orð. Og hefði ekki verið
fyrir kaldhæðni örlaganna
hefði þetta brúðkaup orðið hið
frumlegasta á árinu — hérlend-
is að minnsta kosti.
„Við erum mjög leið yfir því
að Glaumbær skuli hafa brunn-
ið í nótt,“ sagði brúðguminn,
þegar við höfðum tal af hon-
um eftir athöfnina. „Náttúra
ætlaði að spila verk hér í upp-
hafi athafnarinnar, en þeir
misstu öll hljóðfæri sín í brun-
anum. Verkið sem þeir ætluðu
að flytja heitir „Heaven“ og
átti að koma í staðinn fyrir
brúðarmarsinn — þetta er
geysilega fallegt verk, byrjar
á fallegu orgelspili og tekur síð-
an á sig ýmsar myndir og
skiptist í kafla."
„Hver er ástæðan fyrir þess-
um skrautlega og óvenjulega
klæðnaði?“ spurðum við.
„Okkur langaði einfaldlega
til að vera í einhverju öðru en
þessum sígilda svarta og hvíta
klæðnaði — sem þó er mjög
fallegur,“ svaraði Leifur. „Við
höldum líka að þetta sé miklu
hagkvæmara, við getum notað
þessi föt aftur — við hátíðleg
og viðeigandi tækifæri — og
því þurfum við ekki að eiga á
hættu að þurfa að setja svo-
hljóðandi smáauglýsingu í Vísi:
„Brúðarkjóll til sölu. Selst
„Okkur langaSi til að vera í einhverju öðru en
þessum sígilda svarta og hvíta klæðnaði, sem
þó er mjög fallegur. Við höldum líka að þetta
sé miklu hagkvæmara. Við þurfum ekki að
setja svohljóðandi smáauglýsingu í Vísi: -
Brúðarkjóll til sölu. Selst ódýrt...“
ódýrt“. Jú, við áttum hug-
myndina að þessu sjálf, í fé-
lagi við Messíönu Tómasdóttur,
sem saumaði brúðarklæðin fyr-
ir okkur. Við fórum til hennar
með grófa hugmynd og síðan
varð þetta til smátt og smátt
og var í rauninni ekki fullmót-
að í huga okkar fyrr en síðasta
nálarsporið var tekið."
„Þið eruð ekki með hring:
Hvað veldur?“
„Okkur finnst þetta vera
venja, sem ekki skiptir máli
og þar að auki allt of dýr sið-
ur. Hringurinn er í rauninni
ekkert annað en innsigli, og þá
mætti alveg eins setja band um
handlegginn á okkur eða eitt-
hvað þess háttar.“
„Þvi hefur líka verið fleygt
Framhald á bls. 40.
Dóttir þeirra Eddu og Leifs var
skírð Auður Elísabet að giftingar-
athöfninni lokinni. Það var séra
Árni Pálsson sem sá um athöfn-
ina, en langamma barnsins (amma
brúðarinnar), Sigurpála Jónsdóttir
hélt litlu stúlkunni undir skírn.
28 VIKAN I.TBL.