Vikan - 06.01.1972, Síða 37
BIÐJIÐ UM BÆKLING FRÁ SÍBS.
Eitt ljóðanna hefur hann
helgað frægu ljóðskáldi, georg-
ísku, Eristavi. Hann lýsir hon-
um sem vegfaranda hér á jörð,
er í ljóðum sínum og söng berst
fyrir réttlæti, en hlýtur ekki,
að launum „lof stjórnarinnar,
aðeins eitrað augnaráð." Þetta
ljóð má vel hafa endurspeglað
særðan metnað Djugashvili
sjálfs og viðurkenningarskort á
prestaskólaárunum. Því að
hversu lítt sem kvæði hans
snertu þjóðfélagsmál, kom þar
einnig til, að sérhver starfsemi
af slíku tagi var stranglega for-
boðin í reglugerð prestaskólans.
— Eitt einstakt ljóða Djugas-
hvili hefur að geyma eins kon-
ar spásögn, þess eðlis, að hún
skírskotar til hugmyndafræði,
sem skotið hafði frjóöngum
innra með þessum unga Georg-
íubúa. Kvæðið nefndist „Karl-
inn Ninika,“ og greinir frá öld-
ungnum Ninika, sem stritað
hefur og amstrað langa ævi. Nú
er hann aldinn og sjúkur. í
æsku hefur hann verið sterk-
byggður, en er nú þrotinn
kröftum, eftir þrældóm og
smánarlaun og á ekkert fyrir
sig að leggja. Hann liggur og
bíður dauðans. Enginn sinnir
um hann, og er hann sér Unga
menn hraða sér til verka, fyll-
ist hann öfund. Því næst skipt-
ir snöggt um í kvæðinu. Og nú
kemur sama rangfærslan fram,
og á stjórnartímum Stalíns og
samkvæmt hugmyndafræði
hans var sífelldlega notfærð til
þess að réttlæta sérhverja þraut
og mannraun, sérhverja fórn
af hálfu fólksins. Þegar öld-
ungurinn Nikita horfir á ungu
mennina hraða sér til verka,
verður hann sæll og ánægður,
þar sem hann skilur nú, að hafi
hann farið á mis við lífsham-
ingjuna, þá mun yngri kyn-
slóðinni falla hún í skaut sem
ávöxtur af hans eigin fórn. —
í sannleika furðulega marxist-
ísk hugmynd hjá uppvaxandi
æskumanni í prestaskóla þeirr-
ar grísk-kaþólsku kirkju aust-
ur í Tiflisborg.
Söguprófessorinn, leiðsögu-
maður minn, tók mig með sér í
ýmis stutt ferðalög, sem hann
hugði að gerðu mér auðveldara
um skilning á Georgíu og kynnu
að opinbera mér fleira um ævi
Stalíns og baksvið hennar.
Fyrst lá leið okkar til Ateni,
sem er lítið en fagurt sveita-
þorp á kalksteinsbökkum Kara-
fljótsins, en þar skyldum við
sjá, hvernig hið fölgullna Ateni-
vín er framleitt. Þetta er fræg-
ast allra víntegunda í héruðun-
um umhverfis Gori, fæðingar-
bæ Stalíns. Ferðin var þægileg
og hressandi upplyfting. Vín-
yrkjubændurnir í Ateniþorp-
inu lifa vel og vistlega. Einn
víngarðsstjóri í Ateni fræddi
okkur um, að þannig hefðu
Georgíumenn framleitt vín í
þúsundir ára. „Við og við opn-
um við vínker og töppum af
nokkra lítra sem sýnishorn
sagði þessi svartstakkur og vín-
yrkjumaður. „Því næst innsigl-
um við ílátið, og eftir, fáeina
daga er það aftur orðið fullt
Náttúran skilar okkur aftur
víni í stað þess, sem við drukk-
um.“ Hvernig þetta gat verið,
vissi hann ekki, en ég komst
að raun um, að þessu trúðu all-
ir í Georgíu skilyrðislaust. —
Hér varð ég einnig vottur að
þeim forna þjóðarsið Georgíu-
manna að rétta gestinum hrúts-
horn fullt af víni. Það skyldi
tæma í botn, áður en sett væri
frá sér, öðrum kosti væri vín-
inu spillt. Auðvelt var að sjá
og skilja, að lífið í víngörðum
Georgíu var síður en svo örð-
ugt. Allra sízt í víngörðum
Ateni, þaðan sem árlega voru
sendar birgðir til Kreml, úrval
vínuppskerunnar.
Næsti staður, sem við heim-
sóttum, voru sérkennilegar
rústir fornar, þær kallast Uplis
Tsikhe, eða „Virki guðs,“ og er
það ævaforn borg úr steini,
Hjólið, sem veldur
byltingu
Bylting hefur oft orðið á efnahag fólks
vegna þess að það átti miða í happdrætti
SÍBS og glæsilegir vinningar hafa dreifzt
um land allt. Meira en fjórði hver miði
hlýtur vinning.
Bylting hefur orðið í heilbrigðismálum.
íslendinga, með því að berklaveikinni hef-
ur verið útrýmt með aðstoð SÍBS.
Það tapar engin í happdrætti SÍBS.
Leitið frekari upplýsinga.
Nafn
Heimilisfang
SENDIST TIL SKRIFSTOFU SÍBS,
BRÆÐRABORGARSTÍG 9, "REYKJAVlK
1. TBL. VIKAN 37