Vikan - 21.09.1972, Síða 4
Teppin sem endast, endast og endast
á stigahús og stóra gólffleti
Sommer teppin eru úr nælon. ÞaS er sterkasta teppaefnið
og hrindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá-
réttum þráðum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt,
síslétta áferð og er vatnsþétt.
Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppjn
hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu
járrvbrautarstöðvum Hvrópu.
VI8 önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboð og gefum
góSa greiSsluskilmála. Leitið til þeirra, sem bjóða Sommer verð og
Sommer gæði.
GRENSÁSVEGI 22-24
SÍjMAR: 30280 - 32262
P@STURINN
Skammarbréfi
mótmælt
Blessaður Póstur!
Ég vil eins og flestir byrja á að
þakka fyrir mjög gott efni, þó
að þessi „M-16" hafi sagt, að
þið séuð uppiskroppa með efni.
Sú var aldeilis dónaleg! Það er
ég viss um, að það eru fleiri en
ég, sem hafa ekkert út á Vikuna
að setja. Hún hefur verið keypt
hér heima, síðan ég fór fyrst að
grúska í blöðum, svo að ég veit
hvað ég er að segja. En það
hafa víst ekki allir sama smekk
— sem betur fer.
Þessi „M-16" hefur lítið gaman
eða réttara sagt lítið vit á gríni
og gamansemi, því að Henry er
alveg í sérflokki. Ég held, að
flestir hafi gaman af honum.
Ekki vildi ég að minnsta kosti
missa hann.
Og hvernig væri, að hún læsi
framhaldssögurnar eða smásög-
urnar, sem eru margar góðar?
Þátturinn „Heyra má" er alveg
ómissandi, og svo er gaman að
lesa bréfin sem Pósturinn fær.
Það getur líka verið fróðlegt að
lesa Síðan síðast, og einnig er
þátturinn í fullri alvöru góður.
Svona mætti lengi telja.
Mér finnst alls ekkert skrítið,
þó að Vikan birti sömu frásögu
og Morgunblaðið. Það er ekkert
óeðlilegt við það, að tvö mest
seldu blöð landsins séu með
sömu frásöguna á sama tíma.
Hví skrifar hún ekki athuga-
semd um það, að öll dagblöðin
hafi frá sömu fréttinni að segja?
Jæja, Póstur sæll, þá held ég,
að ég sé búin að tala út um
þetta blessaða bréf, sem „M-
16" skrifaði. En það var svolít-
ið, sem mig langaði til að fræð-
ast um, og það er, hvernig skap
Vatnsberinn hafi og hvernig
Vatnsberinn og Ljónið eigi sam-
an. En Vatnsberinn og Vogin?
Hvernig er skriftin og hvað lestu
úr henni?
Þá þakka ég að lokum fyrir-
fram fyrir birtinguna og segi
bara: Kær kveðja.
M.M. - 17.
Nei, það hafa ekki allir sama
smekkinn — því miður fyrir þá,
sem þurfa að velja lesefni fyrir
almenning. Við þökkum kærlega
fyrir þetta vingjarnlega bréf.
Svona bréf hlýja manni sannar-
lega um hjartaræturnar, þótt
skammirnar eigi að sjálfsögðu
líka fullan rétt á sér. Vatnsber-
inn er í stuttu máli mannúðleg
og samúðarrík féiagsvera. Vatns-
berinn og Ljónið eiga ágætlega
saman, þó með því skilyrði, að
Ljónið fái að ráða. Vatnsberinn
og Vogin eiga líka ágætlega
saman. Skriftin er góð, og við
lesum meðal annars út úr henni
tillitssemi og jákvætt lífsviðhorf.
&
Asnaleg bréf
Kæri Póstur!
Nú get ég ekki lengur dregið
það að skrifa þér nokkrar línur.
Hvað hafið þið eiginlega hugs-
að ykkur með þennan þátt, sem
eitt sinn var talinn með skemmti-
legasta lestrarefni, sem Vikan
hafði upp á að bjóða? Flest bréf,
sem eru birt þar núna, eru al-
veg ferlega asnaleg, þótt ekki
sé nú meira sagt. Þið segið
reyndar, að Póstinum sé ekkert
mannlegt óviðkomandi (eða eitt-
hvað þess háttar), en ímyndið
þið ykkur virkilega, að það
fylgi mikil alvara sumum þess-
um bréfum, sem til ykkar eru
skrifuð? Oftast eru ábyggilega
einhverjir krakkakjánar að
skrifa þessi bréf að gamni sínu
til að vita, hvernig þið snúið
ykkur í því að leysa hin „flóknu
vandamál", svo sem hvernig
þessi eða hin eigi að fara að
því að ná sér í strák og annað
því um líkt. I öllum bænum
fækkið að minnsta kosti eitthvað
þessum bréfum. Þið hljótið að
fá bréf innan um, sem eitthvert
vit er í.
Fyrst ég er á annað borð farin
að skrifa Vikunni, þá langar mig
til að þakka fyrir allt ágæta efn-
ið, sem hún býður okkur les-
endum sínum upp á, t. d. þátt-
inn Heyra má, sjálfsmyndirnar
og framhaldssögurnar, svo að
eitthvað sé nefnt.
Að endingu kemur svo ein
spurning: Ætlið þið ekki að taka
viðtöl við sjónvarpsþulina, sem
eftir eru? Þá meina ég að sjálf-
sögðu þær, sem ekki hafa áður
verið birt viðtöl við.
Vertu svo sæll, Póstur minn.
Ein af ungu kynslóðinni.
Táningaástum fylgir mikil al-
vara, einhver mesta alvara, sem
4 VIKAN 38.TBL.