Vikan - 14.12.1972, Síða 14
Fjölgun einkabila i
Vestur—Þýzkalandi siöasta áratug
og áætluö fjölgun til 1985.
1985 19,5MilL
ræða fjarstýrðan, bilstjóralausan smástrætisvagn
með átta sætum og sjö mega standa.
Bæði kerfin eiga ýmislegt sameiginlegt. Far-
þeginnlætur,,sjálfsstjórn” farartækisins vita hvert
hann ætlar, dyrnar lokast, .og klefinn fer á
hreyfingu. Hann fer beint þangað, sem óskað er, án
þess að stanza nokkursstaðar á leiðinni.
Bandariskir umferðarsérfræðingar hafa mjög
haft á orði, að árið sem nú er að liða muni marka
upphaf nýs timabils i umferðarmálum. Á téðri
sýningu i Washington voru nærri hundrað ný farar-
tæki, sem á enskunni eru kölluð „people-movers”.
Sum voru þegar sköpuð i fullri stærð, sem gestir
gátuprófað, önnur aðeins i smærri módelum. Og að
minnsta kosti eins margar hugmyndir eru á döfinni.
Bandariski stóriðnaðurinn hefur greinilega
uppgötvað, að núorðið borgi sig að helga þessu
verkefni tima, starfskrafta og peninga, þvi að nú er'
sagt að farið sé að verja i þetta ekki minna fjár-
magni en i Apolló-förin, sem alltaf annað veifið er
verið að angra karlinn i tunglinu með.
Ekki verður sagt að þessar áætlanir og fram-
kvæmdir til breytinga á umferð séu út i bláinn, þvi
að bilaumferðin er þegar komin langt með að kæfa
velflestar stærri borgir heimsins. 1 velferðar-
rikjunum að minnsta kosti á svo að segja hver
meðallaunþegi bil, sem hann fer á i vinnuna á
morgnana, og svo auðvitað aftur heim i honum á
Frctmhald á bls. 44.
ER HÆGT
AÐ KOMA
EINKABÍLNUM
FYRIR
KATTARNEF
^ ■ 1 w
1 fl
14 VIKAN 50. TBL.