Vikan - 14.12.1972, Síða 17
Hún var búin að biða
lengi eftir þeim eina rétta -
og svo var hann
allt i einu kominn, og ekki einn,
heldur þrir!
Sá á kvölina sem á völina.
Hverjum þeirra ætti hún að giftast?
ÞRÍR
Ellery Queen er eiginlega þrjár persónur. i
fyrsta lagi er þetta höfundarnafn á tveimur
höfundum, sem jafnframt eru ættingjar og
vinna saman, Frederic Danny og Manfred
Lee. í öðru lagi er Ellery Queen önnur aðal-
persónan i svo að segja öllum skáldsögum
þeirra og smásögum. Sjálfur er Ellery einka-
lögreglumaður, og faðir hans kommissar i
glæpadeild lögreglunnar i New York. Þessi
smásaga ber snilld þeirra ljóst vitni!
UTVALDIR
Það» var ekki á neinu sviðanna á
Broadway, sem leikkonan Modesta
Ryan lék stærsta hlutverk ævi
sinnar. Það gerði hún i þakibúð I
hliðargötu nálægt Madison Avenue.
Sýningin átti sér stað sumarnótt eina og
undirleikurinn var regnbuldur, þrumur og
eldingar. Rafmagnið fór af nokkrum bygg-
ingum kríngum Central Park — og Athenia-
ibúðirnar voru auðvitað þeirra á meðal. Svo
að Modesta Ryan varð að leika sitt mikla
hlutverk i öðru ljósi og heppilegra — og það
hlaut að takast.
Ellery Queen varð ekkert hissa á þessu.
Modesta Ryan var aldrei betri en þegar meló-
drama var annarsvegar. Allt sem hún hreyfði
við sló gneistum. Hún gat ekki einu sinni farið
út með hundinn sinn án þess að lenda i
fréttunum. Siðasta kelidýrið hennar hafði
slitið sig laust i Fimmtu tröð og yfir það keyrt
bill, og i þeim bil þurfti endilega að vera
ambassador frá einu rikjanna handan járn-
tjaldsins.
í ástum var Modesta eindæma óláns-
skepna. Hún hafði aldrei gifzt. Karlmenn þeir
er hún lagði hug á virtust alltaf taka framyfir
t)laðrandi smápikur eða svokallaðar dans-
meyjar, hverra dans var ekki annað en klúrt
likamsið með eitthvað af glitrandi hröngli
utan á sér. Og ef einhverjir lögðu hug á hana,
þá þoldi hún þá ekki. Biðlar hennar voru af
þeirri tegundinni sem, kyssir á hendur kvenna
t eykir gegnum munnstykki, einnig þeir sem
klæðast reiðbuxum og þunglyndir mennta-
skóladrengir með móðurflækjur.
En svo var hann allt i einu kominn. Það var
of dásamlegt til að vera satt. Og meira að
segja i þrennu lagi.
Þvi að auðvitað gat ekki öðruvisi farið, að
þegar sá rétti loksins skaut upp kollinum, þá
sýndu sig um leið tveir aðrir jafnréttir.
Þetta var svo sem ekki annað en búast
mátti við, þegar Modesta Ryan átti i hlut, og i
nokkra mánuði var það helzta umræðuefnið á'
Broadway. Hverjum þeirra þriggja skyldi
hún nú giftast?
Jock Shanville hafði aðalhlutverkið i
leiknum, sem Modesta æfði þá einmitt undir,
miðaldalegu stykki frá Feneyjum þar sem
búningar voru skrautlegir og miklir fyrir-
ferðar. Hlutverkið lét honum prýðilega, hann
hafði klassiskan hliðarsvip, var fráneygur og
snotrir fætur hans nutu sin vel i aðskornum
buxum. Jock var að visu kvæntur, konan hét
Pauline og var fyrrverandi sýningarstúlka,
en hún var ekki til trafala. Hann hafði verið
farinn að hugleiða skilnað löngu áður en hann
ákvað að Modesta Ryan skyldi taka við af
henni. Þótt hugsanlegt væri að Pauline liti
öðruvisi á málin, þá lét hann sig það §ngu
skipta.
Svo var það Kid Catt, risi með kolsvartar
augabrúnir, sem heillaði fólk gersamlega
með ætið fersku brosi i sjónvarpinu. Þetta
bros, sem annars var heldur kalt, var orðið
hans vörumerki. Kid hafði likama sinn fyrir
sinn guð, sjálfsafneitun var trúarjátning hans
Framhald. á næstu síðu.
50. TBL. VIKÁN 17