Vikan - 14.12.1972, Síða 29
. . . ..iarðvegur fyrir raunhæfari skoðanaskipti um aðstöðu þessa sjómanns i veröldiiim.
. . .að fá breidd i persónugalleriið ....
. . ,og finna . . .einhver skáldskapargildi i sambandi manns og umhverfis.
— Það yrði undir ýmsu komið,
miðaðist við það fjármagn sem
fyrir lægi. Mest um vert að
ráðast ekki i meira en við-
ráðanlegt er hverju sinni.
— Myndin er fyrst og fremst
hugsuð fyrir sjónvarp?
— Já, i þessum búningi meir
að segja fyrir erlent sjónvarp
þvi hún er i litum og skýringar-
textalaus með það fyrir augum
að hver sjónvarpsstöð geti þá
gert við hana þær talaðar
skýringar sem talið yrði nauð-
synlegt i hverju landi. Sumar
þjóðir eru kunnugri sjómennsku
en aðrar. Vonandi fær hún þó að
standa skýringarlaus sem
viðast.
— Er myndin ef til vill að ein-
hverjum parti hugsuð sem
kynning erlendis á undirstöðu-
atvinnuvegi okkar, ekki sizt þá
viðvikjandi landhelgismálinu?
— Það hafa nú aðrir séð fyrir
þeim beina áróðri i þvi sam-
hengi. Þessi mynd heitir bara
,,Róður”, ekki „Áróður”, og er
ekki af þeirri gerð sem ætluð er
til þess beinlinis að sannfæra
einn eða neinn um nokkurn mál-
stað. Þó má hugsa sér að svona
mynd vinni lika sitt gagn — ef
fólk hefur gaman af þvi að sjá og
kynnast umhverfi sjómanna, lifi
þeirra og vinnu þá getur það
orðið jarðvegur fyrir raunhæfari
skoðanaskipti um aðstöðu þessa
sjómanns i veröldinni. Liggi
okkur áróðurinn á hjarta þá
mætti kannske segja að þessi
gerð mynda sé jarðyegurinn þar
sem siðar mætti sá i fræi áróðurs
eða frekari upplýsinga. Hver
veit?
— Hvað er fyrirhugað um
sýningu myndarinnar hér á
landi?
— Það er margt skrýtið i kýr-
hausnum. Til þessa hefur sjón-
varpið hér ekkert viljað við mig
verzla. Meðal annars þess vegna
hef ég miðað gerð þessarar
seinustu myndar einvörðungu
við erlendar sjónvarpsstöðvar
með litsendingum. En þá
bregður svo við að áhugi þeirra
hérna við Laugaveginn vaknar
skyndilega eftir öll þessi ár.
Sjónvarpið hérna er búið að
h'rciwhnld á hls. 50.
50. TBL. VIKAN 29