Vikan - 14.12.1972, Síða 33
„Ég vil helzt ferðast ein”, segir Elin, ,,ég
vil komast i náin kynni við fólkið á hvcrjum
stað, kynnast siðuni heimamann'a, borða
þeirra mat”.
oft að yrkja um mig visur i
sviðaveizlum Ferðafélagsins,
sem ég var fastagestur i, og þær
byrjuðu allar svona: ,,Elin
Pálma að norðan”, og hann
hlustaði ekki einu sinni á mig,
þegar ég reyndi að koma Suður-
nesjablóðinu minu að.
— Hvaðan hefurðu svo þennan
fróðleiksþorsta og ferðalöngun,
sem hafa gert þig að blaðamanni
og viðförlum ferðalangi?
— Ég veit það ekki. Ég hef
alltaf verið ógurlega forvitin. Ég
hef eiginlega veriö á fartinni, frá
þvi ég var litil stelpa. Ég man
t.d. eftir þvi, þegar Bretar komu
hingað og hernámu landið. Við
áttum heima á Lindargötunni og
sáum vel yfir ytri höfnina. Pabbi
kom inn til okkar systranna um
morguninn og sagði okkur, að
það væru komin skip og bærinn
fullur af hermönnum og
,, . . .héðan fer enginn út úr
húsi”, sagði hann. En það leið
ekki á löngu, áður en ég hafði
smeygt mér út og við Ella,
vinkona min á Vatnsstignum,
komnar á hjólunum okkar niður
að höfn og stuttu siðar upp i bæ
og að þýzka sendiráðinu, þar
sem verið var að sækja fanga,
liklega Gerlach. Nei, við
skyldum sko ekki missa af
neinu. Og þannig hefur það alltaf
verið.
— Hvenær fórstu i fyrsta skipti
til útlanda?
— Ég fór á norrænt stúdenta-
þing i Osló, þegar ég var i
háskólanum. En fyrsta stóra
ferðin var náttúrlega vera min
hjá Sameinuðu þjóðunum i New
Við rengum Ellnu til þess að sýna lesendum
Vikunnar ögn af sinum mörgu skemmtilegu
munum. Hún er klædd batikkjól frá Malasiu
með armband úr filabeini og skurðgoð frá
Nigcriu milli handanna. Niður úr loftinu
hangir kinversk lukt, á veggnum cru leik-
brúður frá Malasiu. Á boröinu er listaverk
eftir vinkonu Elinar, Gerði Helgadóttur,
fagurlega útskorin filabeinstönn frá Nigeriu,
grænlenzk stytta, litill japanskur filabeins-
guð og kínverskur karl úr rósaviði.
York. Ég fór að vinna hjá utan-
rikisráðuneytinu fljótlega eftir
stúdentspróf 1947, og þegar ég
hafði unnið þar i eitt ár varð að
ráði, að ég færi á námskeið, sem
haldið var fyrir ungt fólk frá
ýmsum löndum heims til þess að
kynna starfsemi Sameinuðu
þjÓðanna. yrdtnhnlcl ó bls. .lá
50. TBL. VIKAN 33