Vikan - 14.12.1972, Page 37
Smári Kristjánsson.
enda hljómsveitarinnar, fór í
skóla og svoleiðis, en byrjaði
aftur ‘68 og var fram á haust,
hætti aftur og kom endanlega
inn aftur ‘71. „Ég byrjaði sem
gítarleikari, en dútlaði síðan
dálítið á orgel. En ég er nú
aðallega með rafmagnspíanóið,
auk þess sem ég gríp öðru
hvoru í gítarinn.“ Guðmundur
hefur lokið fyrsta bekk í söng-
kennaradeild Tónlistarskólans
og hyggur á frekara nám. Hann
er annar aðalsöngvari hljóm-
sveitarinnar.
Það fer ekki á milli mála,
að það gefur hljómsveitinni
meiri fyllingu að hafa bæði
orgel og rafmagnspíanó. Skil-
yrði þess þó, að aukahljóðfæri
komi vel út í einni hljómsveit,
er að grunnhljóðfærin og leik-
ur á þau sé í góðu lagi. Grunn-
hljóðfæri eru bassi og tromm-
ur. Smári Kristjánsson spilar á
bassann. Hann byrjaði með
Mánum ‘67 og hefur verið
óslitið síðan. A,ðspurður um,
hvort honum fyndist mikill
munur á að spila með Gunn-
ari Jökli á trommunum, kvað
hann já við. Það heyrist líka
greinilega, að taktur hljóm-
sveitarinnar er orðinn miklu
fastari og ákveðnari en áður
var.
Gunnar Jökull tók við
trommunum fyrir rúmum
tveimur mánuðum af Ragnari
Sigurjónssyni, sem er nú með
hljómsveitinni Brimkló. Gunn-
ar hefur lengi verið þekktur
sem einn okkar bezti trommu-
leikari, og án efa á hann eftir
að hafa áhrif á hljómsveitina
til hins betra.
Nú þegar allir meðlimir
hljómsveitarinnar hafa verið
kynntir til leiks, er ekki úr vegi
að reyna að fræðast um eitt-
hvað varðandi hljómsveitina
sjálfa. Hún hefur látið þrjár
plötur frá sér fara, tvær litlar
og eina L.P. plötu. Þeir eru
ánægðastir með útkomuna á
L.P. plötunni og er það ekki
að undra. Þó mun pressunin á
þeirri plötu hafa verið sl,æm,
en upptakan mun hafa tekizt
þokkalega. Þeir höfðu þá að
vísu takmarkaðan tíma (alltaf
sama sagan), auk þess sem —
„við vorum algjörir sveita-
menn í þessu öllu saman“. En
gerðar plötur eru liðin tíð og
því ekki ástæða til að fjölyrða
um þær frekar. Ef til vill fá-
um við plötu frá þeim á ári
komanda.
„Við reynum að hafa kraft-
mikla og góða músík á dans-
leikjum, músík sem fólkið get-
ur skemmt sér við, því dans-
hljómsveit er jú til þess að
skemmta fólki á dansleikjum.
Við gætum eðlilega verið með
Framhald á bls. 51.
Mánar. TaliS frá vinstri: Gunnar Jökull, Smári, Ólafur (Labbi), Björn, Gúðmundur.
edvard sverrisson
3m
músik með meiru
50. TBl. .VIKAN 37